Fréttablaðið - 29.04.2008, Page 11

Fréttablaðið - 29.04.2008, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 29. apríl 2008 11 NOREGUR Norðmaðurinn Arne Treholt, sem á níunda áratugnum var dæmdur fyrir landráð og njósnir fyrir Sovétríkin, mun fyrir hönd rússnesks fjárfestingar- félags fara fyrir nýjum fjárfestingar- sjóði sem mun starfa í samræmi við sjaríalög múslima. Þetta upplýsti norska viðskiptablaðið Dagens Nærings- liv. „Sjóðurinn verður skráður í Bahrain og mun fá startkapítal upp á 100 milljónir (norskra) króna,“ hefur blaðið eftir Treholt, sem býr á Kýpur og stýrir þar eigin verðbréfafyrirtæki. Að starfa samkvæmt sjaría takmarkar í hvers konar fyrir- tækjum sjóðurinn má fjárfesta. Það gerir hann vænlegri kost fyrir aðila í Mið-Austurlöndum. - aa Fyrrverandi norskur njósnari: Fer fyrir nýjum sjaría-sjóði ARNE TREHOLT DÓMSMÁL Áhöfn þyrlu Landhelg- isgæslunnar, TF-GNÁ, stóð norska línuveiðiskipið Gayser Senior að meintum ólöglegum veiðum á sunnudagskvöld. Skipið var þá statt inni á lokuðu svæði í Skaftárdjúpi undan Suðaustur- landi. Svæðið er lokað á þessum árstíma vegna friðunar hrygn- ingarþorsks og skarkola. Stýrimaður þyrlunnar seig um borð og kannaði afladagbækur og önnur skjöl. Að því loknu var skipið fært til hafnar í Vest- mannaeyjum. Verið er að verðmeta veiðarfæri og fer aflinn á fiskmarkað. Játi skipstjóri bíður hans sekt. - kóp Ólöglegar veiðar í Skaftárdjúpi: Norskt skip tek- ið í landhelgi BUNDINN VIÐ BRYGGJU Togarinn í Vest- mannaeyjahöfn. MYND/ÓSKAR GSM Kvíabryggja er komin með GSM-samband eftir að nýr sendir var gangsettur á Klakki við Grundarfjörð í síðustu viku. Í tilkynningu frá Vodafone segir að fjórðungur þeirra GSM- senda sem ráðgert er að tækni- menn fyrirtækisins setji upp á árinu sé nú þegar kominn í notkun. Ellefu nýir sendar voru gangsettir í síðustu viku og hafa aldrei fleiri sendar verið teknir í notkun í sömu vikunni. Í tilkynningu frá Vodafone segir að uppbyggingunni verði haldið áfram út árið og á næstu vikum muni íbúar á völdum svæðum finna áþreifanlega breytingu. - kg Nýir GSM-sendar gangsettir: GSM-samband á Kvíabryggju Bylting með ruslbaggavél Með nýrri böggunarvél í móttökustöð Fjarðabyggðar á Reyðarfirði verður hægt að setja um 25 tonn af endur- vinnanlegum úrgangi í gám sem er fluttur til útlanda beint frá Reyðarfirði. Áður var verið að flytja fjögurra til fimm tonna gáma til Reykjavíkur á bílum og þaðan var úrgangur fluttur út til vinnslu. Þetta kemur fram á heimasíðu Fjarðabyggðar. FJARÐABYGGÐ AUSTURRÍKI, AP Josef Fritzl, 73 ára Austurríkismaður, hefur játað fyrir lögreglu að hafa í nærri aldarfjórð- ung haldið dóttur sinni fanginni í kjallaraholu heima hjá sér í bænum Amstetten og níðst á henni kynferðis- lega. Hann viðurkennir einnig að hafa brennt líkið af einu þeirra sjö barna sem hann eignaðist með dóttur sinni Elizabethu. Öll fæddust þau í kjallara holunni, en eitt þeirra lést fáeinum dögum eftir fæðingu. Þrjú þeirra voru alin upp í prís- undinni og fengu aldrei að sjá dags- birtu fyrr en elsta dóttirin, sem nú er nítján ára, veiktist hastarlega 19. apríl síðastliðinn. Faðir hennar flutti hana á sjúkrahús, og á laugar- daginn var leyfði hann loks Eliza- bethu og hinum börnunum, tveimur drengjum, fimm og átján ára göml- um, að koma út undir bert loft. Hin þrjú börnin – tvær stúlkur, sem nú eru 14 og 15 ára, og drengur sem er 13 ára – ólust upp hjá Josef og eiginkonu hans, sem segist ekk- ert hafa vitað af því sem fram fór í kjallaranum. Elsta dóttirin liggur enn þungt haldin á sjúkrahúsi en hin börnin fimm og móðir þeirra eru undir handleiðslu sálfræðinga. Natascha Kampusch, sem nú er orðin tvítug, hefur boðist til að hjálpa fjölskyldunni, bæði fjárhags- lega og með samtölum. Fyrir tveimur árum tókst Kampusch að sleppa úr prísund mannræningja, sem hafði haldið henni fanginni í níu ár. - gb Lögreglan í Austurríki segir að Josef Fritzl hafi tekist að blekkja alla: Austurríski faðirinn hefur nú játað allt KJALLARAHOLAN Hluti þeirra þröngu húsakynna sem Elizabeth og börn henn- ar máttu hírast í. NORDICPHOTOS/AFP JOSEF FRITZL Tókst að blekkja umheim- inn. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.