Fréttablaðið - 29.04.2008, Page 12

Fréttablaðið - 29.04.2008, Page 12
12 29. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR NOREGUR Lögð voru inn tilboð í gær frá tveimur framleiðendum orrustuþotna, annars vegar Saab AB og sænskum stjórnvöldum og hins vegar frá Lockheed-Martin í Bandaríkjunum, í útboði norska varnarmálaráðuneytisins í endurnýjun orrustuþotu- flota norska flughersins. Stefnt er að því að kaupa allt að 48 nýjar þotur í stað F-16 þotna flughersins sem eru við það að úreldast. Hvorki norski varnarmálaráðherrann Anne-Grete Ström-Erichsen né talsmenn framleiðendanna tveggja vildu tjá sig um það hvaða upphæðir væri um að ræða í tilboðunum. Ljóst þykir þó að banda- ríska F-35 „Joint Strike Fighter“-þotan sé mun dýrari valkostur en hin sænska JAS-39 Gripen. Þriðji keppinauturinn um þennan stóra þotukaupa- samning, hinn evrópski Eurofighter, heltist úr lestinni í vetur eftir að framleiðendurnir komust að þeirri niðurstöðu að Norðmenn hefðu í raun fyrir löngu ákveðið að kaupa F-35-þotuna og því væri tilgangslaust að taka frekari þátt í útboðinu. „Það eru góðir keppinautar eftir og ég er sann- færð um að við fáum góða samkeppni sem þrýstir verðinu niður og gæðunum upp,“ hefur Aftenposten eftir Ström-Erichsen. - aa STÓRINNKAUP F-35-þotan bandaríska. Gert er ráð fyrir að samningarnir um kaup á allt að 48 nýjum þotum muni nema minnst 1.000 milljörðum ísl. króna. NORDICPHOTOS/AFP Áfanga náð í 1.000 milljarða króna útboði í endurnýjun norska orrustuþotuflotans: Ekkert upplýst um verð á nýjum þotum LÖGREGLUMÁL Meirihluti öku- manna, sem lögregla höfuðborgar- svæðisins fylgdist með á tveimur stöðum í Breiðholti á föstudag, ók of hratt. Fylgst var með ökutækjum sem óku um Arnarbakka og Öldusel í eina klukkustund. Í Arnarbakka óku 57 prósent ökumanna of hratt. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 48 kílómetrar á klukku- stund, en þarna gildir þrjátíu kílómetra hámarkshraði. Í Ölduseli óku 64 prósent ökumanna yfir leyfilegum hámarkshraða. Þarna er einnig þrjátíu kílómetra hámarkshraði en meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 46 kílómetrar á klukku- stund. - kg Hraðamælingar í Breiðholti: Meirihluti yfir hámarkshraða UTANRÍKISMÁL Það er fjarstæða að evrópskar NATO-þjóðir leggi sitt af mörkum til fjölþjóðlega gæslu- liðsins sem NATO stjórnar í Afgan- istan bara vegna þess að Banda- ríkjamenn þrýsti á þær að gera það. Það sé sameiginlegt mat bandalagsþjóðanna beggja megin Atlantshafs að mikilvægt sé fyrir NATO að ná árangri í Afganistan. Það krefjist viðveru í landinu til lengri tíma og markvissara sam- starfs við aðrar stofnanir og jafn- vel frjáls félagasamtök. Þetta segir Leo G. Michel, fræði- maður hjá Institute for National Strategic Studies í Washington, en áður en hann gekk til liðs við þá stofnun árið 2002 var hann yfir- maður NATO-mála á stefnu- mótunarskrifstofu bandaríska varnar málaráðherrans. Michel var ásamt Chris Holtby, sem er háttsettur embættismaður í breska utanríkisráðuneytinu, frummælandi á málfundi um erindi NATO í Afganistan sem haldinn var á vegum Alþjóðamála- stofnunar Háskóla Íslands í gær. Í viðtali við Fréttablaðið segir Michel „erfitt að trúa því að [evr- ópsku NATO-ríkin beiti sér með þeim hætti sem þau gera í Afgan- istan] bara vegna þess að Banda- ríkjastjórn sé að snúa upp á hand- leggi þeirra.“ Michel bendir á að frumkvæðið að því að NATO tók að sér stjórn friðargæsluverkefnisins í Afgan- istan árið 2003 hafi komið frá Evr- ópumönnum. Sá ágreiningur sem sé uppi um Afganistan-verkefnið snúi meira að því hvernig byrðun- um af erfiðustu þáttum þess sé deilt. Sumar bandalagsþjóðirnar neiti nefnilega alfarið að þeirra hermenn taki þátt í hernaðinum gegn uppreisnarmönnum í suður- hluta landsins. Með fjölgun í her- afla NATO á þeim svæðum náist meiri árangur, afgönskum almenn- ingi til hagsbóta. Með meira her- liði sé til að mynda betur hægt að gera upp á milli skotmarka svo að dregið sé úr hættunni á að óbreytt- ir borgarar lendi í skotlínunni í bardögum við skæruliða. Það sé hins vegar eftir sem áður mjög vandasamt, þar sem talibanar stundi það að dyljast meðal óbreyttra borgara. Spurður um mat sitt á framtíð NATO segir Michel að ekki sé ástæða til annars en bjartsýni. „Á hverjum áratugi tilvistar NATO hafa komið upp árekstrar sem skóku bandalagið,“ bendir hann á. Það sé því ekkert nýtt að bandalagið þurfi að endurskoða hlutverk sitt. Í nærri sex áratuga sögu sinni hafi bandalagið ávallt fundið lausnir á þeim vandamálum sem upp hafi komið og tekist að laga sig að breyttum aðstæðum. „Sameiginlegir hagsmunir og sameiginleg gildi hafa jafnan reynst sterkari en það sem valdið hefur ágreiningi,“ segir Michel. Þetta sanni þá þörf sem eftir sem áður sé fyrir NATO. „Væri það ekki til þyrfti að búa það til.“ audunn@frettabladid.is Telur NATO ná árangri í Afganistan Bandaríski varnarmálasérfræðingurinn Leo G. Michel segist sannfærður um að NATO muni ná árangri í Afganistan, en það krefjist samstillts átaks bandalagsþjóðanna og viðveru þar til lengri tíma. Sparakstur með Volkswagen 7 Das Auto. Skildu tengdó eftir heima! Tengdamömmubox og skíðagrindur á þaki bifreiða auka loftmót- stöðuna og þar með eldsneytiseyðsluna meira en þig grunar. Þess vegna er best að skilja tengdó sem oftast eftir heima. HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur Skráðu þig á námskeið í sparakstri á volkswagen.is. Aðgangur ókeypis, takmarkaður fjöldi sæta í boði! Skráðu þig núna! Lau. 19/4, kl. 10:00 Fullt Sun. 27/4, kl. 10:00 Fullt Lau. 3/5, kl. 1 0:00 Örfá sæ ti Mið. 7/5, kl. 1 9:30 Örfá sæ ti Námskeiðin e ru haldin í HEKLU við L augaveg. Allir velkomnir! Lögreglan í herlausu landi – framtíðarsýn Hádegisverðarfundur í Valhöll miðvikudaginn 30. apríl, kl. 11.45 – 13.15 Frummælendur: Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari. Fundarstjóri: Bjarni Benediktsson, alþingismaður og formaður utanríkismálanefndar. Að fundinum stendur Réttarfars- og stjórnskipunarnefnd. LEO G. MICHEL Hélt erindi á málfundi í Háskóla Íslands í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR HERSVEITIR Í AFGANISTAN Atlantshafsbandalagið tók að sér stjórn friðargæsluverk- efnisins í Afganistan fyrir fimm árum.Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.