Fréttablaðið - 29.04.2008, Side 22
29. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● kópavogsdagar
Laugardaginn 3. maí verður
blásið í fagnandi lúðra á Holt-
inu, menningarhæð Kópavogs.
Dagurinn markar upphaf
Kópavogsdaga sem er lifandi
og framsækin menningar-
veisla í hinum blómlega kaup-
stað Kópavogi. Eru landsmenn
allir hvattir að mæta.
„Töfrar Kópavogs felast í kaup-
staðarbragnum sem enn heldur
velli í þessum unga bæ, en ekki
síst samkenndinni sem ríkir
meðal fólks þrátt fyrir mikla ná-
lægð við höfuðborgina sem iðar
af lífi aðeins fáeinum fótsporum
frá bæjarlæknum. Þannig kvikn-
aði líka hugmyndin að Kópavogs-
dögum. Við vildum hlúa að íbúum
Kópavogs og leyfa þeim að finna
að þeir tilheyra ungu, sterku og
sjálfstæðu sveitarfélagi, um leið
og við kynntum þá enn betur fyrir
eigin kaupstað,“ segir Sigurrós
Þorgrímsdóttir, formaður lista-
og menningarráðs Kópavogs, þar
sem hún nýtur kyrrðar og vor-
blíðu í garðinum heima.
Kópavogur hefur verið heimabær
Sigurrósar síðastliðin þrjátíu ár.
„Þegar ég flutti hingað voru
móar í kring og hestar á beit í
dalnum. Hér hefur mér alla tíð
liðið vel og engin klisja að gott
sé að búa í Kópavogi; það er ein-
faldlega sannleikur,“ segir Sigur-
rós, sem er forseti bæjarstjórnar
og hlakkar mikið til að hitta sam-
borgara sína í viðamiklum hátíða-
höldum Kópavogsdaga.
„Á þessari hátíð viljum njóta
samveru við sem flesta. Megin-
markmið daganna er að kynna
mýmargar lista- og menningar-
stofnanir Kópavogs fyrir Íslend-
ingum á öllum aldri. Við höfum frá
upphafi haft það sama að leiðar-
ljósi; að leiða saman unga sem
aldna með skemmtilegum viðburð-
um við allra hæfi. Til þess nýtum
við söfn og menningarstofnanir til
hins ítrasta, en förum líka út í leik-
og grunnskólana með leiksýning-
ar og fleira skemmtilegt,“ segir
Sigurrós sem vonar að landsmenn
líti á Kópavog sem menningarbæ,
fyrst og fremst.
„Undanfarin ár höfum við
gert mikið í því að efla menning-
arlíf og erum hvergi hætt. Hér
er mikið af listasöfnum, margir
bestu listamenn þjóðarinnar búa
í Kópavogi, Náttúrustofan er frá-
bær og Salurinn einstakur í sinni
röð. Punkturinn yfir i-ið verður
Óperan sem fyrirhugað er að rísi
á Listatúninu, en menningarstofn-
anir okkar standa allar á Holtinu
sem er okkar menningartorfa og
hjarta Kópavogs,“ segir Sigurrós,
sem hvetur alla til að njóta hátíða-
halda Kópavogsdaga sem enda á
afmælisdegi bæjarins, 11. maí.
„Laugardaginn 3. maí blás-
um við í lúðra og bjóðum til fjöl-
breyttrar menningarveislu í söfn-
um, á Listatúni og Hálsatorgi. Alla
vikuna verða spennandi viðburð-
ir í boði, en einnig opnar Ung-
mennahúsið starfsemi fyrir ungt
fólk á aldrinum 16 til 24 ára, sund-
laug Kópavogs verður opnuð eftir
stækkun og stúkan á Kópavogs-
vellinum verður vígð. Síðast en
ekki síst tilnefnum við heiðurs-
listamann Kópavogs og úthlutum
styrkjum lista- og menningarráðs
til listamanna.“ - þlg
Veisla á menningarhæðinni
Sigurrós Þorgrímsdóttir er formaður lista- og menningarráðs Kópavogs. Hún vonast eftir miklum gestagangi í hjarta Kópavogs
dagana 3. til 11. maí, en þá verða Kópavogsdagar haldnir með pompi og prakt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gönguferð á Þríhnúkagíg verður
farin sunnudaginn 4. maí í fylgd
með Hilmari Malmquist, for-
stöðumanni Náttúrufræðistofu
Kópavogs. Farið verður á einka-
bílum frá Náttúrufræðistofunni
klukkan 13.30 upp í Bláfjöll og
hist klukkan 14 við gönguslóðann
sem liggur upp í Grindarskörð.
„Þaðan ætlum við að ganga
upp að Þríhnúkagígi og skoða
svæðið þar í kring en ég geri
ráð fyrir að ferðin taki um fjóra
klukkutíma,“ segir Hilmar.
Gangan er farin í tengslum við
áætlanir um að gera svæðið að-
gengilegra fyrir ferðamenn. Sú
hugmynd kom upphaflega frá
Árna B. Stefánssyni, augnlækni
og hellakönnuði, og hefur smám
saman undið upp á sig.
„Hugmynd Árna fólst í því
að gera göng inn í gíginn sem
mundu leiða ferðamenn út á út-
sýnispall inni í miðjum gígnum,“
útskýrir Hilmar. „Gígurinn er um
200 metra djúpur og mjög stór en
þetta er einn stærsti gígur sinnar
tegundar í heiminum.“
Hilmar lýsir gígnum eins og
tómri gosrás þar sem efsti hluti
eldstöðvarinnar hefur tæmst
þegar gosið hætti og skilið eftir
risahvelfingu. Hellirinn er ein-
stakur og líklega annar stærsti
hellir sinnar tegundar á jörðinni.
Árið 2004 hóf verkfræðistof-
an VSO Ráðgjöf rannsóknir á að-
gengi við Þríhnúkagíg og hillir
nú undir lok úttektarinnar en
endanleg kynning á verkefninu
er áætluð í haust.
Miðvikudaginn 7. maí mun þó
Einar K. Stefánsson verkfræð-
ingur halda fyrirlestur um verk-
efnið í fundarsal Náttúrufræði-
stofu Kópavogs. Fyrirlestur
Einars hefst klukkan 17 og er
aðgangur ókeypis eins og önnur
dagskrá Náttúrufræðistofu á
Kópavogsdögum.
„Dagskráin hjá okkur verður
fjölbreytt en meðal annars verður
flutt erindi um hlýnun Elliðavatns
en við höfum verið á kafi í rann-
sóknum á lífríki vatna úti um allt
land,“ útskýrir Hilmar.
Auk þess mun starfsfólk Nátt-
úrufræðistofu flytja ævintýri
um Val hval en það er fróðleik-
ur og skemmtun fyrir börn í
máli og myndum um sjávarspen-
dýr. „Við verðum einnig í sam-
starfi við Bókasafn Kópavogs og
þar verður lesin saga fyrir börn-
in sem tengist þessu efni. Svo
enda krakkarnir á því að fara á
hvalbak á uppblásnum gúmmí-
háhyrningi í fullri stærð hér á
Náttúrufræðistofu. Hér verður
því nóg um að vera,“ segir hann.
- rat
Haldið inn í risahvelfingu
Gengið verður um svæðið kringum Þríhnúkagíg á sunnudaginn og hvelfingin skoðuð.
MYND/VSO RÁÐGJÖF
Átján myndlistarmenn í Kópa-
vogi munu opna vinnustof-
ur sínar fyrir gestum og gang-
andi helgina 3. til 4. maí. Ingi-
berg Magnússon á Gilsbakka
við Vatnsenda er einn þeirra,
en hann hefur fengið Íslendinga
heim í hlað frá upphafi Kópa-
vogsdaga.
„Mér finnst þetta ágætis til-
breyting og gott framtak af
bæjarfélaginu að hrinda þess-
ari hugmynd í framkvæmd. Ég
hef haft mikla ánægju af heim-
sóknum á vinnustofuna og þetta
verður þó til þess að maður
tekur til hjá sér einu sinni á
ári, að minnsta kosti, og heng-
ir myndir á veggi sem annars
standa í hrúgum,“ segir Ingi-
berg, sem er jafnframt kennslu-
stjóri listnámsbrautar við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti, þar
sem hann tekur veðrið utan við
afskekktan bæ sinn við Elliða-
vatn, en þar hefur hann búið í
þrjátíu ár.
„Þetta hefur mælst ákaflega
vel fyrir og þótt hingað streymi
ekki múgur og margmenni,
koma alltaf nokkrir tugir manns
í heimsókn. Flestir stoppa dá-
góða stund, spjalla og skoða, og
ég hef tekið eftir að í hópi þeirra
sem koma eru alltaf nokkrir
sem fara á alla staðina. Oftar
en ekki er það fullorðið fólk
sem hefur orð á því að það sé
nú rétt að byrja og ætli að taka
allan daginn í vinnustofurúnt og
hefur greinilega mikla skemmt-
un af þessu,“ segir Ingiberg,
sem býður upp á léttar veitingar
fyrir listelska gesti. - þlg
Snuddað á vinnu-
stofum listafólks
Ingiberg Magnússon myndlistarmaður á vinnustofu sinni heima á Gilsbakka við
Vatnsenda. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Art 11
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi
Skruggusteinn
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi
Himneskir herskarar
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi
Art Iceland
Auðbrekku 6, 200 Kópavogi
25 Stúdíó
Auðbrekku 6, 200 Kópavogi
Jónas Bragi Jónasson
Auðbrekku 7, 200 Kópavogi
Hústaka á lögreglustöðinni
Auðbrekku 10, 200 Kópavogi
Rannveig Tryggvadóttir
Álfhólsvegi 73, 200 Kópavogi
Karl Jóhann Jónsson
Grenigrund 18, 200 Kópavogi
Kristín Þorkelsdóttir
- Gallery
Lindarhvammi 13,
200 Kópavogi
Grímur M. Steindórsson
Áhaldahúsi Kópavogs, Álalind 1,
201 Kópavogi
Ingiberg Magnússon
Gilsbakka við Vatnsenda,
203 Kópavogi
Opin hús listamanna