Fréttablaðið - 29.04.2008, Síða 53
ÞRIÐJUDAGUR 29. apríl 2008 21
Kammerkór Mosfellsbæjar heldur vortónleika sína
í Bókasafni Mosfellsbæjar á fimmtudag kl. 16. Yfir-
skrift tónleikanna er Salut d´Amor, en óvenju
margar söngperlur eru á efnisskránni að þessu
sinni sem eru frá sjö mismunandi löndum.
Á tónleikunum mun kórinn syngja verk frá ólík-
um tímabilum, allt frá endurreisninni fram til dags-
ins í dag. Á meðal þeirra verka sem kórinn flytur
má nefna tvö lög úr Flamenco-messu eftir Paco
Pena og frönsku danslögin Belle qui og Tourdion.
Einnig eru á efnisskránni lög eftir tónskáld á borð
við G. F. Händel, W. A. Mozart og E. Elgar. Úr
íslensku flórunni koma verkin Haldið’ún Gróa hafi
skó eftir Gunnar Reyni Sveinsson og Maríukvæði
eftir Atla Heimi Sveinsson. Kórinn fagnar sumri
með flutningi glaðlegs gospel-lags, Ride on, King
Jesus, í útsetningu Moses Hogan. Einsöngvari á
tónleikunum er Auður Árnadóttir, en hún leikur
jafnframt á flautu, og meðleikari er Arnhildur Val-
garðsdóttir. Einnig kemur fram Eva Þórdís
Ebenezers dóttir fiðluleikari og strengja- og slag-
verksnemendur úr Listaskóla Mosfellsbæjar og
Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Stjórnandi
Kammerkórs Mosfellsbæjar er Símon H. Ívarsson.
-vþ
Tónlist frá sjö löndum
KAMMERKÓR MOSFELLSBÆJAR Heldur tónleika í Bókasafni
Mosfellsbæjar á fimmtudaginn.
Það hefur aldrei ríkt lognmolla í
kringum franska rithöfundinn
Michel Houellebecq.
Bækur hans eru umdeildar, en
hann hefur einnig staðið í
ritdeilum við ýmsa aðila, enda
óhræddur við að láta skoðun sína
tæpitungulaust í ljós. Nýjasta
deila Houellebecq kann þó að
reynast honum ofviða enda þarf
hann að mæta sjálfri móður sinni.
Rithöfundurinn hefur aldrei leynt
andúð sinni á foreldrum sínum,
sem skildu hann eftir hjá ömmu
hans á meðan þau ferðuðust um
Afríku í nokkur ár. Houellebecq
byggði meðal annars persónu
kynóðrar og sjálfselskrar móður í
bókinni Öreindirnar á sinni eigin
móður.
En nú hefur Lucie Ceccaldi, hin
83 ára móðir Houellebecq, gefið
út sjálfsævisögu, en í henni fer
hún hörðum orðum um hegðun
sonarins. Nokkuð erfiðlega gekk
að finna útgefanda að bókinni þar
sem Houellebecq er ein skærasta
stjarna franska bókmenntaheims-
ins og vildi enginn eiga á hættu
að móðga hann. Enn sem komið er
hefur Houellebecq lítið gefið
fyrir skrif móður sinnar og segist
ekki hafa í hyggju að lesa bók
hennar. - vþ
Mamma
hefnir sín
MICHEL HOUELLEBECQ Hefur lítið álit á
móður sinni.
Í tilefni af 40 ára afmæli Nor-
ræna hússins efnir það til veiga-
mikillar og metnaðarfullrar dag-
skrár, Byggingarlist í brennidepli
– Mannlíf í miðborg, sem stendur
fram í miðjan maí. Dagskráin
samanstendur af fyrirlestrum,
umræðum og sýningum. Viðburð-
urinn er samstarf milli Norræna
hússins, Arkitektafélags Íslands,
Listaháskóla Íslands, Center for
Icelandic Art og Listasafns
Reykjavíkur.
Það er einmitt Arkitektafélag
Íslands sem stendur fyrir fyrir-
lestrum og umræðum sem fara
fram í Norræna húsinu í dag kl.
17 undir titlinum Menningar-
stefna og uppbygging – Stefnu-
mótun í byggingarlist og borgar-
skipulagi. Þar taka til máls þau
Halldóra Vífilsdóttir arkitekt,
Magnús Árni Skúlason fram-
kvæmdastjóri, Einar Ólafsson
arkitekt og Dennis Davíð Jóhann-
esson arkitekt, en að loknum
erindum þeirra taka við pallborð-
sumræður undir stjórn Jóns
Kaldals, ritstjóra Fréttablaðsins.
- vþ
Menningarstefna
og byggingarlist
Inga Lára Baldvinsdóttir,
fagstjóri Ljósmyndasafns Íslands
í Þjóðminjasafninu, eys úr
viskubrunni sínum í síðarnefnda
safninu í dag kl. 12.05. Hún ræðir
um klæðaburð Íslendinga eins og
hann birtist á ljósmyndum á
sýningunni Til gagns og til
fegurðar – sjálfsmyndir í
ljósmyndum og klæðnaði 1860-
1960. Sýningin byggist á rann-
sóknum Æsu Sigurjónsdóttur
listfræðings. Íslendingar hafa
lengi notað ljósmyndir, þjóðbún-
inga og tísku til að búa til mynd
af sjálfum sér. Ljósmyndirnar á
sýningunni gefa vísbendingu um
hvernig þjóðin leit út og hvernig
hana langaði til að líta út. - vþ
Fötin skapa
manninn