Fréttablaðið - 29.04.2008, Side 58
FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR GRINDVÍKINGUM 12. SÆTINU Í LANDSBANKADEILD KARLA 2008
26 29. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
> LYKILMAÐURINN
Scott Ramsey átti frá-
bæra endurkomu í boltann
síðasta sumar og þótti flestum
hann vera besti leikmaður
1. deildarinnar. Ramsey
skoraði 8 mörk í 21 leikjum
og bjó til fjölmörg mörk
til viðbótar
með
frábærum
rispum
sínum upp
kantana.
> X-FAKTORINN
Nýir útlendingar Grindavík
verður að minnsta kosti með fjóra
nýja erlenda leikmenn í sumar og
það er ljóst að þeir þurfa að vera
mjög heppnir ætli liðið að forðast
fallbaráttuna.
Gjörbreytt Grindavíkurlið
Íþróttablaðamenn Fréttablaðsins spá
Grindavíkur liðinu 12. og neðsta sætinu í Lands-
bankadeild karla í sumar. Grindavík vann 1.
deildina í fyrra en liðið hefur gjörbreyst á einu
ári og því erfitt að gera sér nákvæma grein fyrir
styrk þess.
Milan Stefán Jankovic, þjálfari liðsins, fór í
verslunarleiðangur til heimaslóða sinna í Serbíu
og fann þar tvo Serba en eins hefur liðið fengið
til síns fyrrverandi landsliðsmann Slóveníu og
franskan framherja og allt eins líklegt að fleiri
útlendingar bætist í hópinn.
Grindvíkingar hafa misst þrjá „karakter-leik-
menn” á stuttum tíma, fyrst Sinisa Kekic á miðju
tímabili 2006 og svo bæði Óla Stefán Flóvents-
son og Paul McShane fyrir þetta tímabil. Liðið
féll úr efstu deild á fyrsta ári án Kekic og það
er okkar trú að liðinu takist ekki að vega upp á
móti brotthvarfi hinna reynslumiklu og fjölhæfu
Óla Stefáns og Paul McShane, sem áttu mikinn
þátt í að liðið komst upp í fyrrasumar.
Bjartsýni Grindvíkingurinn vonast til þess að
nýir útlendingar falli vel inn í liðið og bæjarlífið
í Grindavík og ungu strákarnir hafi náð sér í fína
reynslu úr 1. deildinni síðasta sumar. Gangi allt
upp hjá Grindavík gæti liðið komist upp í miðja
deild og forðast fallbaráttuna.
Sá svartsýni í Grindavík efast um að Grinda-
víkurliðinu takist að búa til nægilega sterka
liðsheild úr þessum sundurleita her og þá er
óvíst að nýjum útlendingum takist að laga sig
að íslenska boltanum. Liðið þarf einnig að finna
nýja leiðtoga inni á vellinum til þess að leysa
hlutverk þeirra Óla og McShane.
GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2007 1. Sæti í B-deild 2006 9. Sæti 2005 7. Sæti 2004 7. Sæti 2003 6. Sæti 2002 3. Sæti
AÐRIR
LYKILMENN
GENGI Á VORMÓTUNUM
■ Sigrar ■ Jafntefli ■ Töp
2 2
1RAY ANTHONY JÓNS-SON
ORRI FREYR HJALTALÍN ANDRI STEINN
BIRGISSON
8. sæti 12. sæti
FÓTBOLTI Í kvöld kemur í ljós hvort
al-enskur úrslitaleikur verði í
fyrsta sinn í sögu Meistara deildar-
innar í fótbolta þegar Manchester
United tekur á móti Barcelona á
Old Trafford.
Liðin gerðu markalaust jafntefli
á Nou Camp í fyrri leiknum og
liðið sem hefur betur í kvöld kemst
í úrslitaleikinn í Moskvu á móti
annað hvort Chelsea og Liverpool,
sem mætast á miðvikudags-
kvöldið. Mark á útivelli í þessari
stöðu er gulls ígildi og Íslendingur-
inn í liði Börsunga hefur upplifað
það oftar en allir aðrir að skora
hjá Manchester United á Old
Trafford.
Spænskir og enskir fjölmiðar
búast allir við að Thierry Henry
verði í byrjunarliði Barcelona í
kvöld en Henry er með mun lakari
árangur á Old Trafford en Eiður
Smári Guðjohnsen. Frank Rijkaard
setti Henry inn á í seinni hálfleik í
fyrri leiknum en okkar maður sat
þá allan tímann á bekknum. Það er
vonandi að Rijkaard kynni sér frá-
bæra frammistöðu Eiðs Smára í
„Leikhúsi draumanna“. Henry
hefur aðeins skorað 1 mark í 8
leikjum á vellinum en Eiður Smári
hefur aftur á móti skorað 3 mörk í
7 leikjum þar af 3 mörk í þeim fjór-
um leikjum sem hann var í byrjunar-
liði Chelsea. Eiður Smári hefur
skorað þessi 3 mörk á 417 mínútum
sem þýðir 139 mínútna bið á milli
marka en Henry hefur aðeins
skorað 1 mark á 578 mínútum. Eina
mark hans á Old Trafford kom í 1-6
tapi 25. febrúar 2001 en hann er
síðan búinn að leik í 472 mínútur á
vellinum án þess að skora.
Það er líklega ekki von á mörg-
um mörkum í kvöld því bæði lið
hafa haldið hreinu í fjórum Evr-
ópuleikjum í röð en eins er langt
síðan liðin töpuðu í keppninni.
United hefur ekki tapað í síðustu
ellefu heimaleikjum sínum í
Meistaradeildinni og Börsungar
hafa ekki tapað í tólf síðustu
Meistaradeildarleikjum sínum.
Þetta er í þrettánda sinn sem
Manchester United kemst í undan-
úrslit í Evrópukeppni en félagið
hefur aðeins þrisvar komist í
úrslitaleikinn en unnið hann í öll
þrjú skiptin. Barcelona hefur
komist áfram úr 14 af 22 undanúr-
slitaviðureignum sínum í Evrópu-
keppnum.
Sagan er hliðholl United því 14
af þeim 20 liðum sem hafa gert
markalaust jafntefli á útivelli í
fyrri leiknum hafa komist áfram.
Bæði lið voru kannski með hugann
við þennan risaleik í kvöld um
helgina því United tapið 1-2 fyrir
Chelsea á Stamford Bridge og
Barcelona lá 0-2 gegn Deportivo
Coruna á útivelli.
Manchester United vonast eftir
því að Wayne Rooney og Nemanja
Vidic verði með en þeir meiddust
báðir um helgina. Yaya Toure er
meiddur á ökkla hjá Bracelona og
þó að menn búist við því að Edmil-
son taki stöðu hans á miðjunni
gæti Rijkaard sett okkar mann inn
á miðjuna. Rafael Marquez hjá
Barcelona verður í leikbanni í leik
kvöldsins og þá munu þeir Owen
Hargreaves, Nani og Patrice Evra
(Manchester United) Lionel Messi,
Yaya Toure og Gabriel Milito (Bar-
celona) allir missa af úrslitaleikn-
um fái þeir spjald í leiknum í
kvöld.
ooj@frettabladid.is
Eiður Smári hættulegri
en Henry á Old Trafford
Barcelona heimsækir Manchester United á Old Trafford í kvöld í seinni undan-
úrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni. Eiður hefur skorað þrjú mörk á vellinum.
SAMAN Á ÆFINGU Thierry Henry og
Eiður Smári Guðjohnsen. NORDICPHOTOS/AFP
HÆTTULEGUR Eiður Smári kann greini-
lega vel við sig á Old Trafford.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo,
leikmaður Manchester United,
var í fyrrakvöld kjörinn besti
leikmaður tímabilsins í ensku
úrvalsdeildinni af samtökum
atvinnumanna í knattspyrnu á
Englandi.
Þetta var annað árið í röð sem
Portúgalinn snjalli hlýtur
verðlaunin. Steven Gerrard og
Fernando Torres hjá Liverpool,
David James hjá Manchester City
og Emmanuel Adebayor og Cesc
Fabregas hjá Arsenal voru einnig
tilnefndir.
Fabregas fór þó ekki tómhentur
heim því hann var valinn besti
ungi leikmaðurinn tímabilsins í
ensku úrvalsdeildinni.
Lið ársins var einnig valið og
þar á Arsenal flesta fulltrúa, eða
fjóra, en Manchester United
kemur næst með þrjá fulltrúa.
Engir leikmenn Chelsea komust í
liðið í þetta skiptið. - óþ
Leikmenn ársins á Englandi:
Ronaldo bestur
BESTUR Ronaldo hefur farið á kostum
með United í vetur og skorað 38 mörk í
öllum keppnum. NORDIC PHOTOS/GETTY
Enska úrvalsdeildin
Derby-Arsenal 2-6
0-1 Nicklas Bendtner (25.), 1-1 James McEveley
(31.), 1-2 Robin van Persie (39.), 1-3 Emmanuel
Adebayor (59.), 2-3 Robert Earnshaw (77.), 2-4
Theo Walcott (78.), 2-5 Emmanuel Adebayor
(81.), 2-6 Adebayor (90.)
Sænska úrvalsdeildin
Helsingborg-Malmö 4-2
Norrköping-Örebro 0-0
Djurgården-Ljungskile 2-1
Sölvi Geir Ottesen kom inn á 62. mínútu og
tryggði Djurgarden sigurinn á 88. mínútu.
Gautaborg-Sundsvall 1-0
Ragnar Sigurðsson skoraði sigurmark Gautaborg
ar á 59. mínútu leiksins.
Norska úrvalsdeildin
Viking-Vålerenga 2-3
Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom Valerenga í 2-0
á 12. mínútu.
ÚRSLIT
LIÐ ÁRSINS Á ENGLANDI
Valið af samtökum atvinnumanna
David James (Manchester City)
Bacary Sagna (Arsenal)
Rio Ferdinand (Manchester United)
Nemanja Vidic (Manchester United)
Gael Clichy (Arsenal)
Steven Gerrard (Liverpool)
Cesc Fabregas (Arsenal)
Cristiano Ronaldo (Manchester Utd)
Ashley Young (Aston Villa)
Emmanuel Adebayor (Arsenal)
Fernando Torres (Liverpool)
HANDBOLTI Ólafur Haukur
Gíslason, markvörður og fyrirliði
Vals, hefur skrifað undir nýjan
samning við handknattleiksdeild
Vals en þetta var staðfest á
heimasíðu félagsins í gær. Nýr
samningur Ólafs Hauks, sem er
uppalinn í Val en hefur einnig
leikið með Aftureldingu og ÍR, er
til þriggja ára og hann mun því að
öllu óbreyttu verða á Hlíðarenda í
það minnsta til ársins 2011.
Þetta eru gleðifréttir fyrir
Valsmenn sem hafa nú samið við
báða markverði sína því Húsvík-
ingurinn Pálmar Pétursson
framlengdi einnig samning sinn
við félagið til ársins 2011 á
dögunum. - óþ
Ólafur Haukur Gíslason:
Samdi til 2011
FÓTBOLTI Emmanuel Adebayor
skoraði þrennu í seinni hálfleik í
2-6 sigri Arsenal á botnliði Derby
í ensku úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi. Derby náði að jafna
leikinn í 1-1 og minnka muninn í
2-3 þegar 13 mínútur voru til
leiksloka en Arsenal skoraði þrjú
mörk í lokin. Adebayor kom inn á
sem varamaður fyrir Robin van
Persie sem hafði sjálfur lagt upp
fyrsta markið fyrir Nicklas
Bendtner og skoraði annað
markið sex mínútum fyrir
hálfleik. - óój
Enska úrvalsdeildin í gær:
Arsenal skoraði
sex hjá Derby
ÞRENNA Emmanuel Adebayor hefur nú
skorað 24 mörk. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Valur vann KR 2-1 í
Meistarakeppni KSÍ í fjörugum
leik í Kórnum í gærkvöld og náði
þar með að hefna fyrir tapið í
úrslitaleik Lengjubikarsins á
föstudag þegar KR vann 4-0.
Valsstúlkur héldu boltanum
betur innan liðs síns en KR og það
blés heldur ekki byrlega fyrir KR
þegar sóknarmaðurinn Hólm-
fríður Magnúsdóttir þurfti að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla á
25. mínútu. Til að bæta gráu ofan
á svart hjá KR skoraði Valur strax
í næstu sókn þegar Margrét Lára
skallaði boltann af öryggi í markið
eftir góðan undirbúning Thelmu
Bjarkar Einarsdóttur.
KR var þó ekki af baki dottið
og náði að vinna sig ágætlega inn
í leikinn. Á lokakafla hálfleiksins
komst Katrín Ómarsdóttir af
harðfylgi í gegnum vörn Vals og
virtist vera brugðið innan teigs
en ekkert var dæmt. Katrín náði
hins vegar að standa upp og ná
skoti á markið sem Pála Marie
Einarsdóttir bjargaði á línu. Stað-
an var 1-0 fyrir Val í hálfleik.
Valur var líklegra til að bæta
við marki heldur en KR að jafna í
upphafi síðari hálfleiks en það
var ekki fyrr en á 67. mínútu sem
Margrét Lára komst ein inn fyrir
vörn KR og skoraði annað mark
Vals. KR svaraði hins vegar að
bragði strax á 68. mínútu þegar
Fjóla Dröfn Friðriksdóttir lagði
boltann snyrtilega í markið.
Valur gerði harða hríð að marki
KR í framhaldinu en inn vildi
boltinn ekki þegar Margrét Lára
átti skot í stöng. Hallbera átti svo
skot og Katrín Jónsdóttir skalla
sem varnarmenn KR björguðu á
línu.
Það var svo komið að KR að
pressa stíft á lokakafla leiksins
og Hrefna Huld Jóhannesdóttir
fékk besta færi KR þegar hún
skaut yfir markið á 85. mínútu.
Lokatölur urðu 2-1 í skemmtileg-
um leik sem gefur góð fyrirheit
fyrir sumarið. - óþ
Íslandsmeistarar Vals lögðu bikarmeistara KR að velli 2-1 í Meistarakeppni KSÍ í Kórnum í gærkvöldi:
Fjórði sigur Vals á síðustu fimm árum
SÓTT AÐ MARKI VALS Fjóla Dröfn
Friðriksdóttir skoraði mark KR gegn Val í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR