Fréttablaðið - 29.04.2008, Side 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
ÞAÐ skal alveg viðurkennast að
sá skáldskapur sem ég setti niður á
blað sem barn hlaut aldrei náð
fyrir augum dómnefnda sem verð-
launuðu kvæði eftir börn á níunda
og tíunda áratugnum. Kvæða- og
sagnagerð lagði ég því snemma á
hilluna enda biturt og leiðinlegt
barn sem orti nær eingöngu um
verðbólgu, loftslagsbreytingar,
atvinnuleysi, landsbyggðina sem
var að blæða út og kjör kennara og
sjómanna.
EN þótt kvæðin mín hafi ekki orðið
ódauðleg eru yrkisefnin jafn við-
eigandi í dag og þegar ég var á
barnsaldri. Aftur er ég uggandi
yfir fréttum af verðbólgu-
draugnum, sem er að verða jafn
feitur og hann var fyrir tæpum
tuttugu árum. Í þetta skiptið ætla
ég þó ekki að fá útrás fyrir ótta
minn í kveðskap. Frekar vil ég vera
bjartsýn og reyna að sjá heiminn
með augum prófessors Altúngu, úr
Birtíngi Voltaires, sem taldi að allt
væri í allra besta lagi.
VISSULEGA gæti ég ort ljóða-
bálka um að allt sé að fara á hinn
versta veg. Óánægja hjúkrunar-
fræðinga, geislafræðinga, kenn-
ara, lögreglumanna og vörubíl-
stjóra með kaup sín vekja með mér
ljótan grun um að ekki sé allt eins
og best verður á kosið í samfélag-
inu. Sömuleiðis fyllist ég stundum
heimshryggð þegar ég heyri af
ofbeldisverkum hér og erlendis.
En ég ætla ekki að fyllast vonleysi
heldur treysta á að æðri máttar-
völd bjargi málunum. Það að fólk
taki málin í sínar hendur virðist
ekki kunna góðri lukku að stýra,
samanber mótmæli vörbílstjóra.
EN þótt allt virðist í bölvuðu ólagi
reynist allt vera í allra besta lagi
þegar betur er að gáð. Harður
skellur efnahagslífsins hefði til
dæmis orðið miklu harðari ef hús-
næðisverð væri ekki í botni og
stöðnun á fasteignamarkaði. Og
hvað með Vilhjálm Þ. Vilhjálms-
son? Allt virtist hafa farið á versta
veg hjá honum hér um árið en í síð-
asta þætti Spaugstofunnar kom
hann fram og sýndi að honum
þættu öll mistök sín með minnis-
blöð og skuldbindingar borgarbúa
fyndin og skemmtileg. Og sjá, áður
en langt um líður gæti Villi aftur
orðið borgarstjóri, verðbólgan
hjaðnað með stýrivöxtum og
byggðir á landsbyggðinni jafnað
sig, hjúkrunarfræðingar orðið
glaðir og það án þess að við lyftum
hendi til að taka á málunum.
GERUM bara eins og Villi og
gerum grín að váboðunum. Þá
hljóta þau að hverfa.
Allt er í allra
besta lagi
Í dag er þriðjudagurinn 29. apríl,
120. dagur ársins.
5.05 13.25 21.46
4.39 13.10 21.43
Keyrðu upp framlegðina
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Atvinnubílar
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Transporter
TDI® eyðir aðeins 7.5 l/100km
TDI® eyðir aðeins 9.8 l/100km
Caddy
TDI® eyðir aðeins 6.1 l/100km
Vinnubílarnir okkar eiga það sameiginlegt að eyða litlu
enda fást þeir allir með hinni ótrúlega hagkvæmu VW TDI®
dísilvél. Þá er viðhaldskostnaður lægri en gengur og gerist,
til dæmis þarf ekki að smyrja bílinn fyrr en eftir 30.000 km.
akstur* og þjónustuskoðun á Transporter er aðeins á 60.000
km. fresti. Sýndu fjármálavit í verki og fáðu Volkswagen
strax í vinnu fyrir þig.
Láttu Volkswagen Transporter vinna fyrir þig
* fer eftir notkun bílsins.
Eigum nú tak
markað magn
af
hvítum Transp
orter 1.9 TDI
®
á verði frá
3.490.000 kr
.
Crafter
Auglýsingasími
– Mest lesið