Fréttablaðið - 14.05.2008, Blaðsíða 4
4 14. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR
Engin
sætuefni
25% minni sykur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
12
68
03
.2
0
0
8
BORGARMÁL Minnihluti borgar-
stjórnar segir Jakob Frímann
Magnússon, framkvæmdastjóra
miðborgar, tjá sig sem pólitískur
ráðgjafi borgarstjóra og óskar
álits Kristbjargar Stephensen
borgarlögmanns um ummæli sem
Jakob hefur látið falla í fjölmiðl-
um. Orð hans, meðal annars um
Dag B. Eggertsson, borgarfulltrúa
Samfylkingar, túlkar minnihlutinn
sem svo að hann gæti ekki hlut-
leysis sem embættismaður borg-
arinnar og hugsanlega séu lög sem
skilgreini réttindi og skyldur
starfsmanna borgarinnar brotin.
Jakob lét meðal annarra þau orð
falla í þættinum Vikulok á Rás eitt
og Mannamáli á Stöð 2 að Dagur
væri bitur læknir sem uni ekki
kollega sínum að sitja í stól
borgarstjóra.
Dagur segir minnihlutann hafa
óskað eftir áliti borgarlögmanns
vegna framgöngu Jakobs og svara
sé beðið við níu spurningum varð-
andi ráðningu hans sem fram-
kvæmdastjóra miðborgar. Spurð-
ur um persónuleg ummæli sem
Jakob viðhafði um hann segist
Dagur ekki ætla að munnhöggvast
yfir þeim. „Mér finnst Jakob fyrst
og fremst með þessari framgöngu
og orðavali gera lítið úr þeim mál-
flutningi borgarstjóra að hann sé
faglegur embættismaður. Jakob
virðist líta á sig sem pólitískan
málsvara og það er í samræmi við
það sem okkur hefur fundist ráðn-
ing hans bera keim af allt frá upp-
hafi.“
Svandís Svavarsdóttir, borgar-
fulltrúi Vinstri grænna, segir að ef
ummæli Jakobs teljist utan þeirra
marka sem skilgreind séu í reglum
um réttindi og skyldur starfs-
manna Reykjavíkurborgar sé
nauðsynlegt að fá úr því skorið
með áliti borgarlögmanns. „Orð
hans um borgarfulltrúa minnihlut-
ans staðfesta að hann er pólitískur
talsmaður borgarstjóra en ekki
hlutlaus embættismaður. Rökræða
við borgarstjóra um stöðu Jakobs
Frímanns er óþörf, því hann hefur
komið fram með mjög skýrum
hætti sem talsmaður hans. Við
þurfum ekki að fá úr því skorið
heldur hvort Jakob sé að fara á
svig við þær reglur sem hlutlausir
embættismenn eiga að vinna
eftir.“
Jakob Frímann segir umleitan
minnihlutans til borgarlögmanns
ekki þess eðlis að hann sjái ástæðu
til að tjá sig um hana.
Ekki náðist í borgarlögmann við
vinnslu fréttarinnar.
svavar@frettabladid.is
Segja Jakob Frímann
pólitískan ráðgjafa
Minnihluti borgarstjórnar óskar eftir áliti borgarlögmanns vegna orða Jakobs
Frímanns Magnússonar um borgarfulltrúa. Spurt er hvort reglur hafi verið
brotnar og hann sé ráðgjafi borgarstjóra en ekki hlutlaus embættismaður.
DAGUR B. EGGERTSSON JAKOB FRÍMANN MAGNÚSSONSVANDÍS SVAVARSDÓTTIR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
19°
21°
9°
19°
22°
25°
26°
23°
21°
22°
25°
25°
26°
24°
22°
30°
28°
12
Á MORGUN
Hæg, vestlæg eða
breytileg átt.
FÖSTUDAGUR
Hægar, austlægar áttir.
9
12
13
8
14
15
10
11
10
11 4
6
8 6
2
910
HÆGVIÐRASAMT
Fram á föstudag
verður hægviðra-
samt um mestallt
land en um helgina
eru horfur á að
lægð gangi yfi r
landið með vætu.
Samfara því mun
bæta í vind.
Dagurinn í dag
verður mildur með
hita allt að 17-18
stigum til landsins
en á morgun kóln-
ar nokkuð norðan
og austan til.
6 7
7
1412
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
Bilaður neyðarsendir
Þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ
var snúið við í gær eftir að hún hafði
hafið leit að ítölskum ferðamanni.
Sendir sem hann bar hafði farið af
stað fyrir slysni. Lögregla mun taka
skýrslu af manninum.
LANDHELGISGÆSLAN
LISTAHÁTÍÐ „Allur undirbúningur og
miðasala gengur mjög vel,“ segir
Guðrún Kristjánsdóttir, kynningar-
stjóri Listahátíðar í Reykjavík, en
hátíðin verður sett í Hafnarhúsinu
á morgun.
Nær uppselt er á hljómleika
bandaríska djasstónlistarmannsins
Wayne Shorter í Háskólabíói þann
24. maí. Litlu virðist skipta að sama
kvöld fer fram úrslitakeppni Eur-
ovision í Serbíu, enda markhópur
tónleika Shorter líklega annar en
Eurobandsins. Einnig hefur verið
rífandi sala á tónleika afrísku
hljómsveitarinnar Super Mama
Djombo frá Gíneu-Bissá og gengur
miðasala á þá mjög vel. Super
Mama Djombo, sem er ein vinsæl-
asta hljómsveit Vestur-Afríku, tók
upp hljómplötu hér á landi í nóvem-
ber síðastliðnum. Egill Ólafsson
syngur í einu lagi plötunnar og mun
stíga á stokk með sveitinni á Nasa
30. og 31. maí.
Guðrún segir mikla stemningu
ríkja fyrir Listahátíð í ár. „Hátíðin
er orðin að órjúfanlegum hluta af
tilveru mjög margra, hvort sem um
er að ræða menntaskólanema eða
virðulega eldri borgara. Ég veit
ekki hversu lengi hátíðin getur
stækkað, en gæðin eru alltaf í
fyrirrúmi.“
Best er að nálgast miða á við-
burði á listahatid.is og miði.is. - kg
Miðasala á atburði Listahátíðar í Reykjavík gengur vel:
Mikill áhugi á Wayne Shorter
SUPER MAMA DJOMBO Mikill áhugi er á
tónleikum sveitarinnar frá Gíneu-Bissá á
Nasa 30. og 31. maí.
HAMFARIR Rauði kross Íslands
hefur sent 20 milljónir til
hamfarasvæðanna í Búrma. Síðar
í vikunni er von á endurskoðaðri
neyðarbeiðni frá Búrma. Í kjölfar
hennar verður fjárþörfin metin.
Sólveig Ólafsdóttir hjá Rauða
krossinum segir ekki víst hvort
Íslendingar fari til Búrma nú.
Líklegra er að það verði í
uppbyggingarstarfi næstu
mánaða.
Rauða krossinn í Kína hefur
safnað 1,3 milljörðum íslenskra
króna vegna jarðskjálftans þar.
Ekki er víst hvort nauðsyn er á
alþjóðlegri hjálparbeiðni. - kóp
Rauði kross Íslands:
Sendir 20 millj-
ónir til Búrma
GENGIÐ 13.05.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
157,4689
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
78,69 79,07
153,26 154,00
121,69 122,37
16,303 16,399
15,506 15,598
13,107 13,183
0,759 0,7634
127,38 128,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
UMHVERFISMÁL Leiðin til að skapa
rými fyrir fólk í borgum er að
ganga á rými bifreiða, sagði Jan
Gehl, arkitekt og fyrrverandi
prófessor við Kaupmannahafn-
arháskóla, á fyrirlestri á vegum
Félags íslenskra landslagsarki-
tekta í gær. Gehl segir að fleiri
og betri vegir og bílastæði merki
aðeins meiri umferð og loft-
mengun.
Gehl hefur skrifað bók um
hvernig Kaupmannahöfn hvarf
frá því að vera bílaborg til þess
að vera borg útilífs og útivistar.
Hlutfall þeirra sem nú hjóla til
og frá vinnu í Kaupmannahöfn
er nú 36 prósent. Gehl sagði að
leiðin til að bjarga borg undan
bílnum væri að greiða götu
gangandi og hjólandi með
áberandi og áþreifanlegum
hætti. - shá
Fyrirlestur um borgir og bíla:
Bílar víki fyrir
fólki í borgum
BÍLABORG Fólk á að ganga fyrir í skipu-
lagsmálum borga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PALESTÍNA, AP Salam Fayyed,
forsætisráðherra Palestínu-
stjórnar, segir það óviðeigandi að
Ísraelar skuli
halda upp á 60
ára afmæli
ríkis síns
meðan Palest-
ínumenn þjást.
Fayyad þykir
hófsamur og er
ekki vanur að
taka sterkt til
orða, en sagði
ekki rétt að
halda hátíð
meðan Ísrael er enn með herlið
og landtökufólk á Vesturbakkan-
um.
Ísraelar fögnuðu 60 ára afmæli
ríkisins með pompi og prakt í
síðustu viku, en í dag minnast
Palestínumenn upphafs þjáninga
sinna árið 1948. Palestínumenn
kalla þetta sextíu ára tímabil
„nabka“ eða hamfarir. - gb
Forsætisráðherra Palestínu:
Hátíðahöldin
ekki viðeigandi
SALAM FAYYED
STJÓRNMÁL „Ég mun fara yfir
þetta mál ef beiðni kemur um
eignarnám vegna virkjana,“ sagði
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð-
herra að loknum ríkisstjórnar-
fundi í gær, en ekki liggur fyrir
enn hvort forsvarsmenn Lands-
virkjunar fari fram á eignarnám
vegna virkjanaframkvæmda í
Þjórsá.
Landeigendur við Þjórsá hafa
neitað því alfarið að þeir ætli að
semja við Landsvirkjun og því
getur komið til kasta iðnaðarráð-
herra. Hann var ekki tilbúinn til
þess að gefa upp skoðun sína á
málinu. „Ég mun taka á þessu ef
til þess kemur og skoðun mín mun
koma í ljós þá,“ sagði Össur. - mh
Eignarnám vegna virkjana:
Úrskurðar ef til
þess verður þörf