Fréttablaðið - 14.05.2008, Page 12
12 14. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR
BAÐAR SIG VIÐ GULLNA HOFIÐ
Blár vefjarhöttur þessa indverska sikha
stendur upp úr vatninu við gullna
hofið í Amritsar á Indlandi þar sem
maðurinn brá sér í helgibað.
NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL Á aðalfundi
Landverndar fyrir skömmu var
samþykkt ályktun sem segir að
fundurinn hvetji til þess að öll
áform Vegagerðarinnar um
Gjábakkaveg verði tekin til
endurskoðunar. Er þar tekið
undir áhyggjur menntamálaráð-
herra vegna áforma Vegagerðar-
innar og þingmenn Suðurlands
hvattir til að taka málið upp og
finna lausn þar sem tekið er tillit
til athugasemda um áhrif
áformaðrar vegagerðar á
Þingvallavatn, þjóðgarðinn á
Þingvöllum og stöðu svæðisins á
heimsminjaskrá UNESCO.
- ovd
Aðalfundur Landverndar:
Endurskoðun
Gjábakkavegar
LÖGREGLUMÁL Lögreglustjórinn á
Eskifirði hefur hætt rannsókn á
meintum sauðaþjófnaði í Nesjum
í Hornafirði.
Tuttugasta desember síðastlið-
inn leituðu lögreglumenn í
fjárhúsum Bjarna Sigjónssonar,
bónda á Fornustekkum, eftir að
fimm sveitungar kærðu hann
fyrir sauðaþjófnað. Í kjölfarið
voru lambshöfuð send til frekari
rannsókna. Í ákvörðun lögreglu-
stjóra er vísað til 112. greinar
laga um meðferð opinberra mála
en þau gögn sem fram komu í
málinu þykja ekki nægjanleg til
sakfellis. Bændurnir sem kærðu
Bjarna geta nú kært ákvörðun
lögreglustjóra til ríkissaksókn-
ara en vegna vensla kærða og
kærenda hefur málið verið
íbúum í Nesjum afar erfitt.
- ovd
Málið látið niður falla:
Sauðaþjófnaður
í Hornafirði
SKIPULAGSMÁL Verktakar hófust
nýverið handa við að malbika
umdeilda tengibraut við Helga-
fellsland í Mosfellsbæ. Tengi-
brautin liggur um Álafosskvos og
mótmæltu íbúar veglagningunni
harðlega á síðasta ári.
Gunnlaugur Ólafsson, varafor-
maður Varmársamtakanna, reiknar
ekki með frekari mótmælum, enda
búið að láta reyna á allar möguleg-
ar leiðir í stjórnsýslunni. Fram-
kvæmdir hafi verið í gangi í vetur
og gott að þeim sé að ljúka.
Hann segir að Varmársamtökin
muni hugsanlega berjast fyrir
færslu vegarins síðar.
„Þrátt fyrir allt sem á gekk er
þetta orðin staðreynd. Það sýnir
okkur hvað við höfum lítið að segja
þegar stjórnvöld ætla sér að gera
eitthvað,“ segir Jóhannes Bjarni
Eðvarðsson, íbúi við Álafossveg.
Hann sakar bæjaryfirvöld í Mos-
fellsbæ um að draga lappirnar með
breytingar á deiliskipulagi í Ála-
fosskvos. Þær hafi verið boðaðar
síðasta haust. Hann segir að sam-
ráði hafi verið lofað, en íbúar hafi
ekki orðið varir við það. - bj
Framkvæmdir í Álafosskvos langt komnar:
Malbika tengibrautina
MALBIKAÐ Framkvæmdir við tengibraut
við nýtt hverfi í Helgafellslandi eru langt
komnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VINNUMARKAÐUR Stjórnendur fjar-
skiptafyrirtækisins Mílu hafa kynnt
starfsmönnum fyrirtækins á Egils-
stöðum og Höfn í Hornafirði, alls
um tíu manns, umræður sem eru í
gangi um að annað fyrirtæki taki
yfir starfsemi Mílu á svæðinu. Við-
skiptavinir finni ekki fyrir breyt-
ingunum.
Sigurrós Jónsdóttir, verkefna-
stjóri hjá Mílu, segir að ekki verði
um uppsagnir að ræða en staðfestir
að á öðrum stöðum hafi fólki verið
sagt upp og það í langflestum tilfell-
um ráðið til verktakafyrirtækisins
sem tekur við þjónustunni.
„Ef af verður er eingöngu um
aðilaskipti að rekstrinum að ræða,
engar uppsagnir,“ segir Sigurrós.
„Það er búið að upplýsa starfsmenn
á svæðinu um að þessar viðræður
séu í gangi en ekki sé búið að taka
neina ákvörðun og ekki búið að
tímasetja nokkurn skapaðan hlut.
Þetta er á algjöru frumstigi.“
Sigurrós segir að verið sé að
vinna „aðilaskiptin“ á Austurlandi
öðruvísi en áður hafi verið gert.
„Við höfum verið í viðræðum við
starfsfólkið á svæðinu og látið þau
vita af því að þessar viðræður séu í
gangi, og möguleiki sé á því að þetta
geti gerst í framtíðinni en ekki sé
búið að festa það niður. Það er
kannski mesti munurinn.“
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
segir að breytingarnar hjá Mílu séu
kannski ekki alvondar en klaufa-
lega sé staðið að málum og það valdi
óróa meðal starfsmanna.
Um tíu starfsmenn starfa nú hjá
Mílu á Egilsstöðum og Höfn. - ghs
Rekstrarbreytingar til umræðu hjá fjarskiptafyrirtækinu Mílu á Austurlandi:
Órói meðal starfsmanna
KLAUFALEG VINNU-
BRÖGÐ Guðmundur
Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðar-
sambandsins, segir
að breytingarnar
séu ekki alslæmar
en klaufalega sé
staðið að málum.
ALÞINGI Viðbúið er að þinghaldið
síðustu daga vorþingsins verði
annasamt. Alls eru 275 mál óaf-
greidd í málsmeðferðarkerfi
Alþingis og bíða þau ýmist
umræðu sjálfs þingheims,
afgreiðslu fastanefnda þingsins
eða svara ráðherra.
Óafgreidd stjórnarfrumvörp
eru 79. Fjögur bíða fyrstu
umræðu, sjö bíða annarrar
umræðu og þrjú þriðju umræðu.
Þá eru 65 stjórnarfrumvörp í
nefndum. Líklegt er að ríkis-
stjórnin eigi enn eftir að leggja
fram frumvörp á því þingi sem nú
stendur, en til að svo megi verða
þarf að leita afbrigða frá þing-
sköpum þar sem skammt er til
áætlaðra starfsloka Alþingis.
Meðal óafgreiddra viðamikilla
stjórnarfrumvarpa eru frumvörp
um sjúkratryggingar, opinbert
eignarhald á auðlindum og fram-
halds-, grunn- og leikskóla. Þá
hafa ráðherrar meðal annars
boðað frumvörp um breytingar á
lögum um eftirlaun þingmanna og
skiptingu löggæsluembætta á
Suðurnesjum.
Það sem af er þingi hafa 49
stjórnarfrumvörp verið sam-
þykkt, þrjár stjórnartillögur, þrjú
þingmannafrumvörp og ein þing-
mannatillaga. 174 munnlegum
fyrirspurnum hefur verið svarað
og 82 skriflega.
Skammt er til þingloka. Sam-
kvæmt starfsáætlun þingsins
verður því frestað fimmtudaginn
29. maí. Fram að því eru sjö hefð-
bundnir þingfundadagar áætlaðir
og þrír dagar fara í fundi nefnda.
Í dag er kjördæmadagur á Alþingi.
bjorn@frettabladid.is
Næstum þrjú
hundruð mál
til meðferðar
Alþingi hefur til meðferðar 79 stjórnarfrumvörp,
níu stjórnartillögur, 71 þingmannafrumvarp og 76
þingmannatillögur. 178 mál eru í nefndum þingsins.
Tíu starfsdagar eru eftir af þinghaldi vorsins.
ÓAFGREIDD MÁL Á ALÞINGI
Stjórnarfrumvörp:
Bíða 1. umræðu 4
Í nefnd 65
Bíða 2. umræðu 7
Bíða 3. umræðu 3
Stjórnartillögur:
Í nefnd 8
Bíða síðari umræðu 1
Þingmannafrumvörp:
Bíða 1. umræðu 14
Í nefnd 57
Þingmannatillögur:
Bíða fyrri umræðu 23
Í nefnd 48
Bíða síðari umræðu 5
Fyrirspurnir:
Bíða skriflegs svars 32
Bíða munnlegs svars 8
Alls 275
NÓG EFTIR Annir eru fram undan á Alþingi. Fjöldi mála bíður afgreiðslu þegar aðeins
um tíu starfsdagar eru eftir af vorþinginu. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
- Miðvikudaginn 14. maí á Hótel KEA, Akureyri
- Fimmtudaginn 15. maí í Víkinni, Hafnargötu 80, Reykjanesbæ
- Mánudaginn 19. maí í Gistihúsinu, Egilsstöðum
- Þriðjudaginn 20. maí í Skrúðgarðinum, Akranesi
- Þriðjudaginn 27. maí í Tryggvaskála, Selfossi
Fundirnir hefjast kl. 20 – Allir velkomnir!
Nánari upplýsingar á www.samfylking.is