Fréttablaðið - 14.05.2008, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 14.05.2008, Qupperneq 16
16 14. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Framtíðarskipan löggæslumála Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra vill stækka lögregluumdæmi enn frekar, utan höfuðborgarsvæð- is og Suðurnesja. „Með stækkun lögregluumdæma eykst styrkur hvers embættis fyrir sig, þar á meðal til rannsókna,“ segir ráðherra. „Til álita kemur að mæla fyrir um verkaskiptingu á milli einstakra embætta, svo að innan þeirra myndist sérþekking, sem nýttist öllum embættum, ef á henni þyrfti að halda. Lögregluumdæmi hafi sjálf- stæðan fjárhag en fyrir hendi sé fjárlagaliður hjá ríkislögreglu- stjóra til að auðvelda samskipti milli einstakra embætta, ef um sér- stakar aðgerðir og samvinnu er að ræða,“ segir ráðherra enn fremur. Hann bendir á að tillögur rétt- arfarsnefndar og ráðuneytisins um ákvæði í frumvarpi um með- ferð sakamála, sem er til umræðu á Alþingi, miði að því að ákæru- valdið sé þrískipt, það er hjá ríkis- saksóknara, héraðssaksóknara og lögreglustjórum, öðrum en ríkis- lögreglustjóra. „Ásýnd ákæruvaldsins ætti þannig að verða enn skýrari en nú er, með einum ríkissaksóknara og einum héraðssaksóknara, ásamt saksóknurum og öðru starfsliði við embættin,“ útskýrir ráðherra. „Þá er gert ráð fyrir, að lögreglustjórar geti í ríkari mæli en nú lokið máli án ákæru, og ætti það að hlífa sak- borningi, lögmönnum og dómurum við að sitja yfir málum, sem eru betur afgreidd með sektargreiðslu en í dómsal.“ Varðandi sérsveitina segir ráð- herra að 2004 hafi hún verið flutt til ríkislögreglustjóra, en í aðgerð- um eigi hún að lúta boðvaldi við- komandi lögreglustjóra. „Flutningurinn kom til vegna þess að sú skipan sem gilti tryggði ekki stöðuga viðveru sérsveitar- manna á höfuðborgarsvæðinu, svo að dæmi sé tekið. Fjöldi sérsveitar- manna byggist á því, að hér sé í landinu nægilega stór og þjálfuð sveit lögreglumanna til að takast á við verkefni eins og flugrán. Ég hef ekki séð nein rök, sem mæla með því að horfið sé frá þeirri skipan, sem kom til sögunnar 2004.“ Björn Bjarnason dómsmálaráðherra: Stærri og öflugri lögregluumdæmi BJÖRN BJARNASON Dómsmálaráðherra leggur til að lögregluumdæmi hafi sjálf- stæðan fjárhag. FRÉTTASKÝRING JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR jss@frettabladid.is Menn eru ekki á einu máli hvernig framtíðarskipan löggæslumála skuli háttað. Ríkislögreglustjóri telur þann kost fýsilegan að sam- eina lögregluna í eitt lög- reglulið undir stjórn emb- ættis RLS. Fjárveitingar til lögreglumála færist frá ráðuneyti til embættisins. Lögreglustjóri höfuðborgar- svæðisins vill færa deildir sem sinna sérhæfði lög- gæslu frá RLS til stærstu lögreglustjóraembættanna. Skiptar skoðanir eru nú uppi um framtíðarskipan löggæslumála í landinu. Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri telur málum best þannig fyrir komið til fram- tíðar að lögreglustjóraembættum verði fækkað enn frekar eða niður fyrir tíu. Lögreglustjórar eigi nánast eingöngu að sýsla með lög- regluverkefni en ekki verkefni sýslumanna og tollstjóra. Sér- fræðingar um stjórnskipulag lög- reglu hafi meðal annars bent á fyrirkomulag á Írlandi og álíti að þar eigi að leita fyrirmyndar. Vænlegast til árangurs væri að sameina lögregluna í eitt lög- reglulið undir stjórn ríkislög- reglustjóra. Þá eigi ákæruvaldið ekki að vera í höndum lögreglu- stjóranna. Fjárveitingar til lög- reglumála færist til ríkislögreglu- stjóra og þaðan til lögreglustjóra og löggæsluverkefna. Þannig verði fjárveitingum og starfs- kröftum best varið almenningi til heilla. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, álítur hins vegar mjög koma til álita að færa deildir sem sinna sérhæfðri almennri löggæslu frá embætti ríkislögreglustjóra til stærstu lögregluembætta landsins, það er höfuðborgarsvæðisins og Suður- nesja, og eftir atvikum fleiri emb- ætta ef tillögur um enn frekari stækkun embætta ganga eftir. Um er að ræða sérsveitina, alþjóðadeildina, efnahagsbrota- deildina og fjarskiptamiðstöðina. Lögreglustjórar fari einungis með lögreglustjórn „Ég setti fram fyrir rúmum tíu árum hugmyndir að breytingum á skipulagi lögreglunnar í landinu, fjölda lögreglustjóra og hlutverki þeirra, sem gætu leitt til bættrar starfsemi og skilvirkara og hag- kvæmara stjórnkerfis lögregl- unnar,“ segir Haraldur Johann- essen ríkislögreglustjóri. Hann segir þær hugmyndir einnig hafa falist í því að lögreglustjórar færu einungis með lögreglu- stjórn, en ekki verkefni á sviði sýslumanna og tollgæslu eða ann- arra verkefna utan löggæsluverk- efna. „Ég er enn á þeirri skoðun að lögreglustjórarnir eigi nánast eingöngu að sinna lögreglu- stjórn,“ segir ríkislögreglustjóri. Hann útskýrir að eftir ofangreind- ar breytingar gætu menn svo velt fyrir sér hjá hvaða lögreglustjóra einstök verkefni myndu liggja hverju sinni. Það færi eftir þörf- um á hverjum tíma og faglegu mati. Verkefni á landsvísu Haraldur bendir einnig á að ríkis- lögreglustjóri hafi byggt upp verkefni á landsvísu, eins og fjar- skiptamiðstöð, bílamiðstöð, sér- sveit, almannavarnadeild, grein- ingardeild og alþjóðadeild, sem sum eru alþjóðleg verkefni. Mörg verkefna embættisins séu frum- kvæðisvinna sem byggð hefur verið upp frá grunni. Haraldur segir að hugmyndir hans að fram- tíðarfyrirkomulagi löggæslumála eigi stoð í áliti Dr. Niels Bracke sem er helsti sérfræðingur Evr- ópusambandsins í löggæslumálum og hefur verið ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðherra til ráðgjaf- ar í þessum efnum um nokkurt skeið. Vill sérhæfða almenna löggæslu til lögreglustjóra Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir umræðu um tilfærslu sérhæfðrar almennrar löggæslu frá embætti ríkislögreglustjóra til lögreglu- embættanna hafa meðal annars komið fram þegar verkefnisstjórn um nýskipan lögreglumála hafi skilað skýrslu sinn árið 2005. Þar voru gerðar tillögur um fækkun lögregluembætta og nefnt sér- staklega að eftir því sem einstaka lögregluembætti væru stærri því betur væru þau í stakk búin til að taka að sér sérhæfð almenn lög- gæsluverkefni á landsvísu. „Þróun í þessa átt væri í sam- ræmi við stöðu mála á hinum Norðurlöndunum,“ útskýrir hann. „Ríkislögreglustjóraembættin þar eru í raun hreinar stjórnsýslu- stofnanir og einbeita sér að sam- ræmingu og eftirliti með störfum lögregluliðanna, bæði varðandi fagleg atriði sem og markmið og árangur á sviði löggæslu. Þennan þátt innan löggæslunnar er mikil- vægt að efla hér á landi.“ Lögreglustjórinn segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra aðaldrifkraftinn í þeim miklu breytingum sem orðið hafa und- anfarið í löggæslumálum. Þar sé af mörgu að taka. „Framsýni hans og þekking á sviði löggæslu og öryggismála hefur gert það að verkum að allir þeir aðilar sem þar leika lykil- hlutverk eru í dag mun betur í stakk búnir til að sinna sínum verkefnum en áður.“ Yfirmenn ósammála um framtíðarskipan LÖGREGLAN Skoðanamunur á skipan löggæslu í landinu snýst einkum um tilfærslu yfirstjórnar lögreglu, deilda sem sinna sér- hæfðri almennri löggæslu, svo og verkefna lögreglustjóra. STEFÁN EIRÍKSSON Vill að deildir sem sinna sérhæfðri almennri löggæslu færist frá embætti ríkislögreglustjóra til stærstu lögregluembætta landsins. HARALDUR JOHANNESSEN Segir að vænlegast til árangurs sé að sameina lögregluna í eitt lögreglulið undir stjórn ríkislögreglustjóra. RV U N IQ U E 04 08 05 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Fagleg og persónuleg þjónusta Sjúkraliði RV, Jóhanna Runólfsdóttir, leiðbeinir skjólstæðingum TR, einstaklingum með þvagleka og aðstandendum þeirra og veitir ráðgjöf varðandi hjúkrunarvörur. Sími: 520 6673 johanna@rv.is www.rv.is 1Ýmis úrræði og ráðgjöf vegna þvagl eka Við höfum gefið út vandaðan TENA bækling- um úrræði og ráðgjöf vegna þvagleka. Hafðu samband og við sendum þér eintak.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.