Fréttablaðið - 14.05.2008, Page 22

Fréttablaðið - 14.05.2008, Page 22
[ ] Það þarf oft ekki mikið til að hressa upp á heimilið. Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir leik- kona greip til einfaldra ráða. „Ég tíndi blóm og setti í vasa inni í stofu,“ segir Jóhanna um nýj- ustu breytingarnar heima hjá sér. „Ég vildi lífga upp á heimilið og gleðja Jón Gunnar, sambýlis- mann minn, sem situr heima og lærir fyrir próf. Ég geri þetta oft á sumrin til að hressa aðeins upp á stemninguna í stofunni. Núna tíndi ég páskaliljur sem ég fann niðri við tjörn, mjög fallegar, og stóðu þær í marga daga.“ Jóhanna segist vera nokkuð handlagin en er þó ekkert dugleg við framkvæmdir heima við. „Ég bý í lítilli íbúð og get ekki sagt að ég sé dugleg við að breyta. Færi frekar til hluti til að hreyfa aðeins við orkunni í húsinu en bara við það að raða öðruvísi þá breytist orkan inni.“ Jóhanna, sem sjálf er leikkona, hefur nýlokið við að leikstýra Nemendaleikhúsinu og er komin í langþráð sumarfrí. Hún ætlar að verja því í rólegheitum. „Nú er ég komin í sveitina í Skagafirðinum og ætla svo að vera í Flatey á Breiðafirði í sumar og hafa það huggulegt.“ - rat Tíndi blóm í vasa Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir leikkona tínir blóm til að lífga upp á heimilið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Garðkanna ætti að vera til á hverju heimili. Ef hún er ekki notuð til að vökva blómin má gróðursetja í hana falleg sumarblóm. Það er spennandi áfangi í lífi barns og foreldra þegar kaupa á fyrsta alvörurúmið. Þegar litlu börnin vaxa upp úr rimlarúmunum þarf að huga að mörgu þegar nýtt rúm er keypt. Margt er í boði en alltaf þarf öryggið að ganga fyrir útlitinu. Þegar farið er úr rimlarúmi yfir í stærra rúm er hætta á að litlu grislingarnir detti fram úr til að byrja með. Mikilvægt er því að setja öryggisgrind fyrir þá hlið sem snýr frá veggnum. Kojurúm eru til af ýmsum toga og er góður kostur þegar plássið er lítið, eitt af því sem hafa þarf í huga er að bilið á milli þrepanna upp í rúmið sé það stutt að lítil höfuð komist ekki þar á milli. Stækkanleg rúm eru oft góð lausn en tryggja þarf að botninn á þeim færist ekki í sundur. Frekari upplýsingar um rúm og öryggi barna má finna á www.lydheilsustod.is. klara@frettabladid.is Frá rimlarúmi yfir í alvöru rúm Þessi koja býður upp á gistingu fyrir þrjá. Undir neðstu kojunni eru skúffur og svo eru blaðarekkar við fótgaflinn. Kojan ber nafnið Olympic og fæst í Rúmfatalagernum. Hún kostar 29.900 krónur. Þetta sæta Olympic- stelpurúm fæst í Rúm- fatalagern- um og kostar 26.900 krónur. Gott geymslupláss er undir rúm- inu, margar skúffur og góð grind. Mammut heitir þetta skemmtilega strákarúm. Það fæst í Ikea og kostar rúmgrind- in 15.700 krónur. Þetta Kritter-barna- rúm fæst í Ikea og kostar 7.700 krónur. Rúmið er með öryggisfjöl svo barnið detti ekki fram úr í svefni. Þessu kojurúmi má snúa við og þá breytist það í venjulegt rúm með hárri himnasæng. Rúmið heitir Kura og fæst í Ikea og kostar 19.950 krónur. Rúm sem þú setur upp á aðeins 3 mínútum og tekur niður á aðeins 3 mínútum kíktu á kynningarmyndbandið á þessum frábæru rúmum Verð frá kr. 27.500 Heitir pottar frá aðeins 495.000 með 6 manna legubekk Sjálfvirkt ozonizer hreinsikerfi - 5,5 KW - 49 nuddstútar - útvarp og CD - LD ljós - 3 hestafl a dælur - stærð 2,28x2,28 - hæð 92 cm einángrun fyrir íslenskar aðstæður Gestarúm / ferðarúm 4you.is • Eddufelli 2 • 111 Reykjavík • Sími 564-2030 690-2020 Lok og trappa fylgir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.