Fréttablaðið - 14.05.2008, Side 46
26 14. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
> JESSICA ALBA Í STÖRUKEPPNI
Á heimasíðunni ibeatyou.com
má sjá leikkonuna Jessicu Alba
taka þátt í störukeppni. Á upp-
tökunni segist Jessica hafa
verið mönuð til að taka þátt og
tekst að stara í vefmyndavélina
í tæpar sjö mínútur án þess að
depla auga. Þetta mun ekki vera
eina myndbandið af Jess-
icu á síðunni en unnusti
hennar Cash Warren
er annar höfundur
heimasíðunnar.
„Þetta er alveg nýtt hér hjá
okkur á Rex. „Happy hour!“
Frá níu til miðnættis. Tveir
fyrir einn,“ segir Sverrir
Rafnsson, vert á Rex.
Nánast er sama hvar borið
er niður, veitingastaðaeigend-
ur tala allir um mikinn sam-
drátt. Bjórsala hefur dregist
saman um 30 prósent eftir að
reykingabannið tók gildi sem
þýðir einfaldlega að sam-
keppni milli staða er orðin
harðvítug. Það sætir tíð-
indum að Rex, staður
sem löngum hefur
verið kenndur við
uppa, skuli nú bregða á
það ráð að bjóða upp á tvo
fyrir einn. „Kaupir þú frosinn
Heineken eða kokkteil færðu
tvo drykki en ekki einn,“ segir
Sverrir.
„Já, við erum meðal annars
að bregðast við aukinni sam-
keppni og ekki síður reykinga-
banninu. En þess má reyndar
geta að við erum með bestu
reykingaaðstöðu í borginni. En
… sko, drykkjan hefur verið
að færast í auknum mæli inn á
heimilin. Meiri sala er í Ríkinu
en minni á veitingastöðum,“
segir Sverrir. Hann segist
jafnframt verða þess mjög var
að fólk sem leyfir sér að fara
út að borða og vilji fá sér drykk
á skemmtistað á eftir komi að
tómum kofunum. Fólk fer ekk-
ert á stjá fyrr en upp úr mið-
nætti. Og það sem meira er,
fólk sem stundar næturlífið er,
að sögn Sverris, farið að láta
sér nægja annað kvöldið.
Þannig eru föstudagskvöldin
orðin miklu rólegri en var.
„Já, segja má að þetta sé
okkar svar við kreppunni.
„Happy hour“ ætti ekki að rífa
eins mikið í veskið. Áfengi er
dýrt. Fólk sem fer út að borða
og vill svo í kjölfarið fara út að
skemmta sér finnur vel fyrir
því. Það kostar tugi þúsunda,“
segir Sverrir á Rex. - jbg
Uppastaðurinn Rex bregst við kreppunni
Ungur drengur að nafni Andrew
Johnston kom öllum í opna skjöldu
þegar hann hóf upp raust sína í
þættinum Britain‘s Got Talent nú
á dögunum. Enginn vissi við
hverju var að búast þegar hann
steig á svið, augljóslega stressað-
ur, en hann réðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur og söng
klassísku aríuna Pie Jesu. Hann
hlaut einróma lof dómnefndar
fyrir frammistöðuna, allir salur-
inn stóð á fætur og lófatakinu ætl-
aði aldrei að linna. Frá sex ára
aldri hefur hann orðið fyrir einelti
af hálfu skólafélaga. ,,Þeir segja
mér að hætta að syngja og þeim
finnst klassísk tónlist leiðinleg, en
ég hef samt haldið áfram. Mig
langar til að gera eitthvað gott við
líf mitt,“ sagði hinn ungi Andrew í
viðtali við stjórnendur þáttarins,
en hann býr í fátækrahverfi í Carl-
isle þar sem gengi og glæpir eru
algengir.
Andrew er talinn mjög sigur-
stranglegur í keppninni en í fyrra
var það klassíski söngvarinn Paul
Potts sem bar sigur úr býtum í
keppninni.
Þrettán ára dreng-
ur slær í gegn
SVERRIR Á REX Þar er nú boðið
upp á „tveir fyrir einn“ – en aukin
samkeppni er milli skemmtistaða.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Keppendur í Eurovision eru nú allir komnir til
Belgrad og hamast á sviðinu í æfingum. Sviðið mun
vera nokkuð sleipt en enginn hefur slasast til þessa.
Sumir tala þó um að gott væri að líma eitthvað
neðan á skóna sína til að vera alveg öruggir.
Meðal þeirra sem sleipa sviðið er að trufla er
söngkonan í belgísku hljómsveitinni Ishtar, Soetkin
Baptist. Hingað til hefur hljómsveitin verið alþýðleg
og látlaus enda þekktust fyrir túlkun sína á þjóðlög-
um og miðaldamúsik, en nú er búið að popp hana
verulega upp og söngkonan er komin á háa hæla.
Hún á í basli með þá á sleipu sviðinu enda ekki vön
svona skófatnaði.
Ishtar var stofnuð árið 2003 og er tíu manna
hópur. Aðeins sex mega þó vera á sviðinu í Belgrad;
söngkonan, lagahöfundurinn og gítarleikarinn
Michel Vangheluwe og systkinin Ann, Marleen, Els
og Hans Vandaele. Fyrsta plata Ishtar, Troubamour,
kom út árið 2005. Á henni voru ástarlög frá miðöld-
um á mörgum tungumálum, þar á meðal grísku,
hollensku, búlgörsku, serbnesku og já, íslensku.
Hópurinn er nú með aðra plötu í smíðum.
Lagið sem þau flytja er á „bullmáli“ og er nokkuð
grípandi, minnir einna helst á lagið „Dominique“,
sem „syngjandi nunnan“ söng inn á vinsældarlistana
1963. Sú var einmitt belgísk líka. Nú er að sjá hvað
bullmálið og háu hælarnir gera fyrir Belga, sem
keppa á fyrra undankvöldinu.
Sleipt á háu hælunum
POPPVÆDDIR BELGAR Ishtar syngur og leikur á bullmáli.
ÁTTA DAGAR TIL STEFNU
ANDREW JOHNSTON SLÆR Í GEGN
Dómnefndin átti ekki til orð þegar Andr-
ew hóf upp raust sína.
Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri enska úrvals-
deildarliðsins Arsenal, fer
fögrum orðum um Albert
Guðmundsson, fyrrum
leikmann Arsenal, í þáttun-
um 10 bestu sem sjónvarps-
stöðin Stöð 2 Sport 2 sýnir í
sumar.
„Við höfum verið að leita eftir við-
brögðum frá fólk sem tengist 10
bestu og það er mikið gleðiefni að
Arsene tók mjög vel í að tjá sig um
Albert Guðmundsson,“ segir
Hilmar Björnsson, sjónvarpsstjóri
Stöðvar 2 Sport. „Arsene þjálfaði
Mónakó þegar Albert var sendi-
herra í Frakklandi. Þáverandi
yfirmaður knattspyrnumála hjá
liðinu kynnti Wenger fyrir Alberti
og tókst með þeim mikil vinátta,“
segir Hilmar. „Wenger tjáir sig
um Albert sem leikmann og talar
sérstaklega um hann sem per-
sónu.“
Að sögn Hilmars
talaði yfirmaður
knattspyrnumála
hjá Mónakó einnig
mjög vel um
Albert eftir að hafa séð hann spila
á sínum tíma í Frakklandi. „Sá
maður gerði lítið í því að hæla
leikmönnum en hann hældi Alberti
á hvert reipi og sagði að hann
hefði verið ótrúlegur leikmaður.
Síðan talaði hann líka um persónu-
töfra Alberts og hvaða virðingu
hann hafði í Frakklandi sem
leikmaður.“
Þess má geta að Ingi Björn
Albertsson, sonur Alberts,
lánaði Fréttablaðinu ljósmynd af
föður sínum og Wenger, sem sá
síðarnefndi áritaði með glöðu geði
fyrir Inga Björn.
Fyrri upphitunarþátturinn af
tveimur fyrir 10 bestu var sýndur
á Stöð 2 Sport 2 í gærkvöldi og
verður sá síðari sýndur næstkom-
andi þriðjudag. Fyrsti þátturinn í
röðinni hefst síðan 27. maí þegar
fjallað verður um Pétur Pétursson.
- fb
Arsene Wenger
tjáir sig um Albert
ALBERT OG WENGER Albert Guðmunds-
son ásamt Arsene Wenger, núverandi
knattspyrnustjóra enska úrvalsdeildar-
liðsins Arsenal.
ARSENE WENGER
Wenger er einn
virtasti knatt-
spyrnustjóri
ensku úrvals-
deildarinnar.
Miele ryksugurMeðal fáanlegra fylgihluta:
TILBOÐ kr.: 18.900