Fréttablaðið - 14.05.2008, Page 48

Fréttablaðið - 14.05.2008, Page 48
28 14. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR ÖSKUR BERA ENGAN ÁRANGUR! NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500 SÍMI 564 0000 14 12 7 HAROLD & KUMAR ESCAPE FROM GB kl. 6 - 8 - 10 WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 8 - 10 MADE OF HONOUR kl. 6 12 PROM NIGHT kl. 6 - 8 - 10 WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 5.45 - 8 - 10.15 WHAT HAPPENS IN VEGAS LÚXUS kl. 5.45 - 8 - 10.15 IRON MAN kl. 5.20 - 8 - 10.40 MADE OF HONOUR kl. 8 - 10.15 SUPERHERO MOVIE kl. 4 - 6 BUBBI BYGGIR Í VILLTA VESTRINU kl. 4 HORTON kl. 4 ÍSLENSKT TAL 5% 5% 5% FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI 50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ KAUPIR BÍÓMIÐANN Á 14 16 12 7 PROM NIGHT kl. 6 - 8.30 - 10.30 WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 5.45 - 8 - 10.15 STREET KINGS kl. 5.30 - 8 - 10.30 21 kl. 8 - 10.30 BRÚÐGUMINN kl. 6 ÍSLENSKUR TEXTI 5% SÍMI 551 9000 12 16 16 16 7 HAROLD & KUMAR ESCAPE FROM GB kl.5.45 - 8 - 10.15 REDACTED kl.6 - 8 - 10 MADE OF HONOUR kl.6 - 8.20 - 10.35 TROPA DE ELITE kl. 8 THE RUINS kl. 10.20 BRÚÐGUMINN kl. 6 ENSKUR TEXTI SÍMI 530 1919 ,,HUGLJÚF OG SKEMMTILEG" VJV - TOPP5.IS/FB FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! TILBOÐSVERÐ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU ÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS NIM´S ISLAND kl. 8 L MAID OF HONOR kl. 8 L IRON MAN kl. 10:10 12 RUINS kl. 10:10 16 NIM’S ISLAND kl. 8 L IRON MAN kl. 10 12 OVER HER DEAD BODY kl. 8 7 STREET KINGS kl. 10 16 NEVER BACK DOWN kl. 8 - 10:15 12 IRON MAN kl. 8 12 THE HUNTING PARTY kl. 10:15 12 Abagil BRESLIN Jodie FOSTER Gerard BUTLER Mynd sem engin O.C.og / eða Mixed Martial Arts aðdáandi ætti að láta fram hjá sér fara. Mögnuð skemm tun! NEVER BACK DOWN kl. 5:40 - 8 - 10:20 14 NIM´S ISLAND kl. 5:50 - 8 - 10:10 L U2 3D kl. 10:30/3D L IRON MAN kl. 5:30D - 8D - 10:30 12 IRON MAN 5:30 - 8 - 10:30 VIP MAID OF HONOR kl. 5:40 - 8 - 10:30 L DRILLBIT TAYLOR kl. 5:50 10 IN THE VALLEY OF ELAH kl. 8 16 3-D DIGITAL 3-D DIGITAL DIGITAL NEVER BACK DOWN kl. 8:10 - 10:30 14 NIM´S ISLAND kl. 6 - 8 L U2 3D kl. 6/3D L THE HUNTING PARTY kl. 8:10 - 10:30 12 IRON MAN kl. 10 12 SHINE A LIGHT kl. 5:50 L - bara lúxus Sími: 553 2075 HAROLD & KUMAR 2 kl. 6, 8 og 10.10 12 WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 5.50, 8 og 10.10 L FORGETTING SARAH MARSHALL kl. 8 og 10.10 12 SPIDERWICK CHRONICLES kl. 6 7 1/2 SV MBL T.V. - kvikmyndir.is “Ein besta gamanmynd ársins” - V.J.V., Topp5.is / FBL Hank Deerfield er tilkynnt að Mike sonur hans hafi snúið aftur heim úr herþjónustu sinni í Írak. Hann sé hins vegar týndur. Deer field er reynslubolti úr her- lögreglunni og ákveður sjálfur að hefja leit að syninum en kemst fljótt að því að hann hafi verið myrtur. Eftir því sem Hank grefur dýpra í fortíð sonar síns kemst hann að ýmsu um dvöl hans í Írak, sem virðist síður en svo hafa verið auðveld. In the Valley of Elah er nýj- asta kvikmynd Pauls Haggis, leikstjóra Óskarsverðlauna- myndarinnar Crash frá 2004. Myndin er fyrst og fremst morð- gátumynd, mjög snjöll og óvænt sem slík, en hún er ekkert síður ádeila á stríðsrekstur. Eitt af meginstefjum myndar- innar er til að mynda að her- menn snúa ekki allir heilir til bara eftir stríðsátök. Titill mynd- arinnar vísar í söguna um Davíð og Golíat úr Gamla testament- inu, þegar risinn var veginn í Elah-dal; viðeigandi myndlíking fyrir baráttu Hanks gegn hernum. Tommy Lee Jones er algjörlega í essinu sínu í mynd- inni enda tilnefndur til Óskars- ins á dögunum. Hann er fullkominn í hlutverki lífsreynds manns sem tekst á við mikla sorg og skoðanir sínar á her og stríði. Charlize Theron er fantagóð sem lögreglukonan sem aðstoðar Hank og Susan Sarandon á einnig góða innkomu. Til gamans má reyndar geta þess að í myndinni eru alls fjórir leik- arar úr No Country for Old Men, Jones og Josh Brolin en auk þess er kvikmyndatakan í höndum Roger Deakins. In the Valley of Elah er á köfl- um lágstemmd mynd en yfir höfuð mjög kröftug. Hún er mynd sem hefur margt að segja. Frammistaða Jones ber hana uppi en það hlýtur að segja eitt- hvað um hversu frábær leikari hann er að útkoman er ein af áhrifameiri myndum ársins. Vignir Jón Vignisson-topp5.is Lágstemmd en áhrifarík ádeila KVIKMYNDIR In the Valley of Elah Leikstjóri: Paul Haggis Aðalhlutverk: Tommy Lee Jones og Charlize Theron ★★★★ In the Valley of Elah er fyrst og fremst morðgátumynd og hún er mjög snjöll og óvænt sem slík. Hún er lágstemmd en kröftug og vafalítið ein af áhrifameiri myndum ársins. Fréttamenn RÚV hafa farið þá leið að velja sér verka- lýðsleiðtoga sem formann, enda standa kjarasamn- ingar fyrir dyrum. Nýr formaður er Aðalbjörn Sigurðsson og mun hann fljótlega blása til félags- fundar þar sem málefni fréttaþula verða rædd. „Ég var aðallega fenginn í þetta starf vegna bakgrunns sem verka- lýðsforingi,“ segir Aðalbjörn Sig- urðsson fréttamaður. Hann tók nýverið við formennsku í Félagi fréttamanna sem í eru starfandi fréttamenn við Ríkisútvarpið. Áslaug Skúladóttir er fráfarandi formaður, en hún hverfur frá meðal annars vegna þess að hún er að fara að fjölga mannkyninu. Aðabjörn var áður framkvæmda- stjóri Afls, Starfgreinafélags Aust- urlands, og starfaði þar í fjögur ár. Hann mun njóta þeirrar reynslu þegar fréttamenn RÚV setjast að samningaborði, en þeir eru með lausa samninga. Við breytingu RÚV í opinbert hlutafélag (ohf.) hafa byggst upp ákveðnar væntingar. Auk þess hafa fréttir Vísis af laun- um útvarpsstjóra vakið eftirtekt. „Það verður örugglega allt nefnt í komandi kjaraviðræðum. Menn telja sig eiga inni leiðréttingu. Og frekar það heldur en hversu marga þúsundkalla Páll [Magnússon] er með í laun eða hvort hann ekur á Audi eða Yaris verður lagt til grundvallar. Með hlutafélagavæð- ingu hættum við að falla undir opin- bera geirann og eru viðsemjendur RÚV ohf. og Samtök atvinnulífsins. Og þar er mikill munur á réttind- um. Það þarf að samræma samn- inga öðrum samningum á almenn- um vinnumarkaði og það er flókið,“ segir Aðalbjörn. Í Fréttablaðinu var nýverið greint frá því að þulur, sem heyrir ekki undir fréttastofurnar heldur Sigrúnu Stefánsdóttur dagskrár- stjóra, hafi lesið útvarpsfréttir. Viðkomandi starfar jafnframt hjá Rio Tinto Alcan í Straumsvík og getur sú staðreynd, burtséð frá þessu tiltekna dæmi, hæglega orðið til að koma niður á trúverðugleika fréttastofunnar. Aðalbjörn segir að borið hafi á óánægju félagsmanna vegna þessa. „Ég las fyrst um þetta í Frétta- blaðinu, fór þá fljótlega á fund Sig- rúnar og kom þeim sjónarmiðum á framfæri að það væru fréttamenn sem þætti þetta skrýtið. Hún kom sínum sjónarmiðum á framfæri, svo sem þeim að þarna væri um afleysingamann að ræða en ekki fastráðinn starfsmann,“ segir Aðal- björn. Hann segir jafnframt að til- högun fréttalesturs verði rædd á komandi félagsfundi. jakob@frettabladid.is Verkalýðsleiðtogi verður foringi fréttamanna AÐALBJÖRN AÐ STÖRFUM Hann fór strax á fund Sigrúnar Stefánsdóttur og kom á framfæri óánægju vegna fréttalesturs starfsmanns Rio Tinto Alcan um síðustu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hljómsveitin Dark Harvest er nýkomin heim frá Osló þar sem hún spilaði á alþjóðlegri húðflúrhátíð. Meðlimir Hell‘s Angels fjölmenntu á svæðið. „Nei nei, við vorum ekkert hræddir við þá, enda eru þetta nú mest megnis ósköp venjulegir gaurar,“ segir Guðlaugur Falk gítarleikari. „Ég væri miklu hræddari við mafíuna, held ég. Maður fer kannski ekkert að æsa þessa gaura upp í rifrildi en þeir eru fínir á meðan maður er bara sanngjarn.“ Gulli og Gísli Brynjar Kristinsson söngvari voru einir á ferð að þessu sinni og spiluðu órafmagnað fyrir gesti. „Við spiluðum einmitt í fyrra í tíu ára afmælisveislu Hell‘s Angels í Osló. Fórum við þá allir fjórir. Þeir héldu ekki vatni yfir okkur þá, til dæmis gamla Exist-laginu, sem er ekta „biker“-lag. Við fengum það gigg í gegnum Fáfni MC. Maður hefur náttúrulega þekkt þessa gaura, Jón Trausta og þá, síðan maður var gutti. Við erum samt ekkert beint tengdir Hell‘s Angels. Þeir fíla bara tónlistina okkar og vilja hjálpa okkur eins og þeir geta.“ Fulltrúir frá fimmtíu tattústofum voru á hátíðinni og bæði norska sjónvarpið og Discovery fjölluðu um hátíðina. „Það var mjög gaman að fá að spila okkar frumsömdu tónlist á stað eins og þessum, okkur var vel tekið“ segir Gulli. „Við gistum á heimili Hell‘s Angels og þeir sáu alveg um okkur. Virkilega næs. Svo var Willie Nelson í bænum, var að spila á öðrum stað. Umboðsmaður hans er víst í Hell‘s Angels. Ekki vissi ég það. Það er margur skrítinn grautur- inn.“ Gísli keypti sér tattúbyssu á ráðstefnunni en Gulli fékk sér nýtt húðflúr. „Mér fannst ekki annað hægt en að fá mér eitt. Ég fékk mér víking á öxlina.“ - glh Hell‘s Angels héldu ekki vatni MEÐ KAMPAKÁT- UM TATTÚKÖLLUM Gísli söngvari á milli tveggja listamanna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.