Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500018. maí 2008 — 133. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
B L A Ð H J A R T A V E R N
D A R
F Y L G I R F R É T T A B L A Ð
I N U Í D A G !
FÓLK Í asísku matvöruversluninni
Global Store í Brautarholti má
finna ýmiss konar framandi
matvöru. Einu sinni til tvisvar í
mánuði berst versluninni sending
af lifandi filippseyskum kröbbum
til sölu. Eigandinn, Jón Þór
Karlsson, segir krabbana rjúka út
þegar þeir berast.
„Það er dálítið púsluspil að
flytja þá inn. Þeir eru fluttir í sjó,
og það þarf að passa að þeir hafi
alltaf nægilegt vatn, en þó ekki of
mikið. Það má heldur alls ekki
verða of heitt, þá deyja þeir,“
útskýrir Jón Þór, sem hvetur
íslenska sælkera til að smakka
krabbana. - sun/ sjá síðu 34
Asísk matvöruverslun:
Selur lifandi
krabba í soðið
FÓTBOLTI „Þetta er langbesti árang-
ur sem ég hef náð. Þetta er
stórkostlegt,“ sagði Hermann
Hreiðarsson eftir sigur
Ports mouth á Cardiff í úrslitaleik
ensku bikarkeppninnar í gær.
Hermann varð þar með fyrsti
Íslendingurinn til að vinna þessa
elstu bikarkeppni heims.
Þetta er fyrsti titill Hermanns á
Englandi þar sem hann hefur
leikið í ellefu ár sem atvinnumað-
ur. Sigurinn tryggði Portsmouth
sæti í UEFA-bikarkeppninni og
spilar þá í fyrsta sinn í Evrópu-
keppni. - hþh/ sjá síðu 30
Hermann Hreiðarsson:
Bikarmeistari
með Portsmouth
SÆLA Hermann ærðist eðlilega af fögn-
uði eftir sigurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Milt um allt land Það má búast
við úrkomu víða um norðanvert
landið í dag, en þurru að mestu
syðra þó síðdegisskúrir gætu látið
á sér kræla inn til landsins SV. Hiti
verður á bilinu 6-13 stig yfir daginn
og dreifist jafnt yfir landið.
VEÐUR 4
7
9
6
88
HEILBRIGÐISMÁL Vitað er um fjörutíu barnshafandi
konur sem neyttu fíkniefna á meðgöngu í fyrra.
Jóna Dóra Kristinsdóttir, yfirljósmóðir á Miðstöð
mæðraverndar, segir þann fjölda þó aðeins segja til
um hverjar svara heiðarlega spurningum um þessi
mál hjá ljósmóðurinni. „Við getum aðeins hjálpað
þeim sem segja satt og rétt frá,“ segir hún.
Jóna Dóra tekur fram að flestar mæðurnar leggi
sig fram við að breyta lifnaðarháttum sínum til hins
betra á meðgöngunni og oft á tíðum takist það.
Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi, segir
að nú sé talið að sprautufíklar séu um 700 talsins á
Íslandi. Vandi þeirra og fjölgun hafi í för með sér
vaxandi álag á heilbrigðiskerfið auk þess sem afbrot
meðal þessa hóps fíkla eru mjög tíð og hafa því í för
með sér mikinn kostnað fyrir samfélagið.
Sigurður Örn Hektorsson, geðlæknir á Land-
spítalanum, segir að á um sex árum hafi hlutfall
langt leiddra fíkla sem leita á bráðamóttöku aukist
um 60 til 80 prósent. „Í raun má segja að hér sé
kominn upp faraldur en um hann er þagað,“ segir
Sigurður.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að árið
2007 hafi 95 manns greinst með lifrarbólgu C. Það sé
umtalsverð aukning miðað við árin á undan en árið
2006 greindust 56 og árið 2005 voru 44 greindir með
sýkinguna. Þá hafi hlutur fíkniefnaneytenda meðal
HIV-smitaðra einnig vaxið.
Úr upplýsingum í sjúklingabókhaldinu á Sjúkra-
húsinu Vogi má lesa að meðal þeirra sem sprauta sig
reglulega í æð, hafa rúmlega 60 prósent fengið
lifrarbólgu C. Rúmlega 300 virkir sprautufíklar, séu
sýktir af lifrarbólgu og geti því smitað aðra. Í
síðustu ársskýrslu Vogs segir að málefni sprautu-
fíkla séu mikið áhyggjuefni sérstaklega aukningin
meðal þeirra „sem eru yngri en 25 ára, þó að enn
noti þeir amfetamín og kókaín en ekki heróín“.
- kdk/sjá síðu 16
Gríðarleg fjölgun
virkra sprautufíkla
Talið er að um 700 virkir sprautufíklar séu á landinu og fjölgar þeim um 70 til
110 á ári. Tíðni lifrabólgu C eykst mikið. Áhættumeðgöngum fjölgar samhliða
fjölgun fíkla og álag eykst á nær öllum sviðum heilbrigðiskerfisins.
KYNLÍF HEFUR EKKERT BREYST
Frægasti kynlífsfræðingur heims,
Dr. Ruth, tekur þátt í tilraunamaraþoni.
Hinn íslenski Andabær
Tuttugu og fimm ár liðin frá því að
Andrés önd hætti að tala dönsku
HELGAREFNI 20
Fjörugt ársþing HSÍ
Sitjandi formaður var naumlega
endurkjörinn og fjögurra liða
úrslitakeppni hefur
verið komið á
aftur.
ÍÞRÓTTIR 28
REYKJAVÍKURBORG Lögð hefur verið
fram tillaga í menningar- og ferða-
málaráði Reykjavíkur um að reist
verði stytta af Vigdísi Finnboga-
dóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
„Okkur vantaði sniðuga tillögu og
varð hugsað til Vigdísar,“ segir
Kjartan Þór Ingason í Reykjavíkur-
ráði ungmenna sem leggur tillög-
una fram.
„Hvernig á manni ekki að detta
Vigdís í hug,“ spyr Kjartan á móti
spurður um ástæður þess að ung-
mennin leggja til að reist verði
stytta af Vigdísi „Hún er merkileg
kona, fyrsti lýðræðislega kjörni
forseti heims sem er kona. Það ætti
að vera komin stytta af henni fyrir
löngu.“
Kjartan segist telja heppilegast
að styttan verði fyrir framan tón-
listarhöllina sem nú er í byggingu.
„Það væri upplagt enda tengist
Vigdís mikið listum og menningu,
var til dæmis leikhússtjóri og
frönskukennari,“ segir hann.
Styttutillagan hefur enn ekki
verið afgreidd en Kjartan segir að
mjög vel hafi verið í hana tekið
meðal borgarfulltrúa. - gar
Reykjavíkurráð ungmenna vill að Vigdísi Finnbogadóttur verði sýnd virðing:
Reist verði stytta af Vigdísi
EMBÆTTI BORGARSTJÓRA 100 ÁRA Aldarafmæli borgarstjóraembættisins var í gær fagnað í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
með opnun á sýningunni Kæri borgarstjóri. Viðstaddir sýninguna voru fyrrverandi borgarstjórar sem og núverandi borgarstjóri.
Nítján hafa sinnt starfi borgarstjóra í Reykjavík, þar af þrjár konur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJARTAN ÞÓR INGASON Telur löngu
tímabært að reist verði stytta af Vigísi
Finnbogadóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SUNNUDAGUR
18