Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 18. maí 2008 11 UMRÆÐAN Ásta Kristrún Ragnarsdóttir skrifar um námstækni Námsmenn eru í mörgum hlut- verkum sam- hliða náms- mannshlutverkinu. Samkeppni um tíma þeirra er gífurleg. Hraði og hátækni eru öflugar breytur í lífsskilyrðum. Að loknu fag- námi mætir ein- staklingnum vinnumarkaður sem einkennist af sveiflum og upp- stokkunum á markaði og hreyf- ingu starfsfólks á milli verkefna og starfa. Krafan um færni til skjótrar aðlögunar í nýjum aðstæðum eykst. Sífelld öflun frekari þekkingar vegna vinnu- staða- og starfsþróunar er það umhverfi sem bíður námsmanna þegar út í atvinnulífið er komið. Kvikar aðstæður hafa margvís- leg áhrif á vaxtarmöguleika ein- staklinga. Öryggi og hugarró sem er kjöl- festa námsárangurs er ógnað af örum breytingum. Útvíkkun náms- umhverfis með tilkomu veraldar- vefsins, aukin samkeppni um inn- göngu í virta skóla, samkeppni um bitastæð störf á hverfulum atvinnumarkaði, eru breytur sem kalla á endurskoðun námsmanna- vænna úrræða. Algengasta hindrun námsmanna í hröðu nútímasamfélagi er skort- ur á ögun í vinnulagi, handahófs- kenndar náms- og lestraraðferðir og skortur á skipulögðu utanum- haldi námsgagna. Aðstæður gera það að verkum að námsmenn koma oft seint auga á að skortur á markvissu vinnulagi er ein helsta hindrunin í að ná þeim árángri sem þeir leitast eftir. Þess í stað setja þeir sökina á óskilgreindan skort á „námsgetu“, á námið sjálft sem sé of þungt og námsefnið sem of umfangsmikið. Þá er stutt í von- leysi og uppgjöf. Til er sérhæfður hugbúnaður fyrir nær allar atvinnugreinar, en bið hefur verið á sérstöku forriti fyrir vinnu nútíma námsmanna. Ekki er ólíklegt að misræmi í áherslum varðandi gildi hugbún- aðar fyrir atvinnugreinar annars vegar og hugbúnaðar sem vinnu- tæki námsmanna, telji drjúgt þegar litið er til einbeitingarleys- is, uppgjafar og brottfalls. NemaNet er ný lausn sérhönnuð fyrir vinnu námsmanna. Forritið er hannað með tilliti til þarfa hug- ans við öflun þekkingar og þarfa námsmanna í upplýsingasamfé- lagi. Því eins og yfirskrift Nema- Nets segir, „Nám er fag“. Höfundur er náms- og starfsráð- gjafi og höfundur NemaNets – namsstofan.is. UNMRÆÐAN Sigrún Elsa Smáradótt- ir skrifar um borgarmál Fyrir um mánuði síðan blésu fulltrúar meiri- hlutans í borgarstjórn Reykjavíkur til blaða- mannafundar og kynntu aðgerðaráætlun sína í leik- skólamálum „Borgarbörn“. Eins og menn muna voru umdeildar heimgreiðslur stærsti einstaki kostnaðarliðurinn í aðgerðaráætluninni á þessu ári, auk þess sem leggja átti aukið fjár- magn í einkarekna leikskóla og dagforeldrakerfið. Við kynningu á aðgerðaráætluninni gerðu fulltrú- ar meirihlutans mikið úr því að verið væri að veita stór- auknu fjármagni til leik- skólamála. Á þessu ári er kostnað- urinn vegna þessara verk- efna áætlaður 118 milljón- ir umfram fjárhagsáætlun sem til stóð að bæta inn í ramma leikskólasviðs. Ein- drægni virtist vera um málið hjá meirihlutanum á blaðamannafundinum þegar aðgerðaráætlunin var kynnt. Enda fundur- inn best heppnaði blaðamannafund- ur þessa meirihluta, búið að ráða auglýsingastofu til þess að yfir- bragð fundarins gæti verið sem glæsilegast, hanna sérstakt merki fyrir aðgerðaráætlunina og borgar- fulltrúar meirihlutans með sín blíð- legustu bros á vörum þegar stór- auknu fjármagni til málaflokksins var lofað. Svíkja sjálf sig Nú mánuði síðar samþykkir svo sami meirihluti í borgarráði að Leikskólasvið eigi að fjármagna aðgerðaráætlun meirihlutans, borgarbörn, innan fjárhagsáætlun- ar ársins. Þannig er sviðinu gert að taka af því fjármagni sem sam- kvæmt fjárhagsáætlun er ætlað til reksturs leikskólanna í borginni. Þessi afgreiðsla er þvert á fyrri yfirlýsingar meirihlutans og kynn- ingu á málinu í leikskólaráði og víðar. Þessi niðurstaða kemur því illa í bakið á þeim borgarbúum sem lögðu trúnað á trumbuslátt meiri- hlutans um stóraukið fjármagn til málaflokksins vegna borgarbarna- stefnunnar. Losaraleg fjármálastjórn Það virðist vera alveg sama hvert litið er, þessum ólánssama meiri- hluta tekst að klúðra öllum málum, meira að segja þeirra eigin tromp breytast í jókera í höndunum á þeim. Meirihlutinn ber því fyrir sig að nota eigi afgang sem hugsanlega verði af rekstri leikskólasviðs á þessu ári til verkefnanna. Það gefur auga leið að það samrýmist ekki góðri stjórnsýslu að ætla að ráð- stafa afgangi ársins áður en árið er liðið. Engin leið er að sjá það fyrir hvort og þá hve mikill afgangur verði af rekstrinum. Til að hægt sé að hafa yfirsýn yfir fjármál borgarinnar er mikil- vægt að gegnsæi sé til staðar og að ákvarðanatökuferli sé skýrt. Þannig er nauðsynlegt fyrir meirihluta hverju sinni að tryggja verkefnum fjármagn áður en samþykkt er að ráðast í þau. Það er ekki boðlegt að ætla bara að vona að í lok árs gangi allt upp, að hlutirnir reddist bara. Það að missa fjármál borgarinnar úr böndunum er ekki bætandi við þær uppákomur sem þessi meiri- hluti býður borgarbúum upp á í hverri viku. Maður skyldi ætla að borgarfulltrúum meirihlutans væri orðið ljóst, að málin hafa því miður ekki tilhneigingu til að reddast hjá þeim þessa dagana. Höfundur er borgarfulltrúi Sam- fylkingar. Námsmenn í nútíð og framtíð Nýjasta uppákoman í Reykjavík ÁSTA KRISTRÚN RAGNARSDÓTTIR SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR Viðskiptafræði BSc Alþjóðaviðskipti MSc Fjármál og reikningshald MSc Endurskoðun MSc Umsóknarfrestur er til 30. maí Kynntu þér námið á www.hr.is Í VIÐSKIPTADEILD HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK MYNDAR ÞÚ TENGSL SEM SKIPTA MÁLI Háskólinn í Reykjavík leggur mikið upp úr því að nemendur myndi góð tengsl við atvinnulífið. Þeir afla sér þekkingar frá fyrsta degi sem nýtist þeim vel þegar þeir verða þátttakendur í að móta og skapa framtíð íslensks samfélags. Nemendur Háskólans í Reykjavík hafa sýnt og sannað að þeir geta látið drauma sína rætast, þeir eru óhræddir við að framkvæma hugmyndir sínar, þeir kunna að stofna og reka fyrirtæki og gera það í miklum mæli. Gæði háskólakennslu eru mest í Háskólanum í Reykjavík, samkvæmt viðhorfskönnun á meðal íslenskra viðskiptafræðinema sem Ríkisendurskoðun birti í fyrra. Þess vegna á viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík að vera fyrsti valkostur þeirra sem ætla að læra viðskiptafræði. Framtíðin er HR. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 6 0 8 Háskólanám með vinnu (HMV)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.