Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 15
SUNNUDAGUR 18. maí 2008 15
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir heit-
ir eftir langömmu sinni og ber nafn-
ið með stolti.
„Langamma mín var skýrð Ingibjörg
Októvía því hún fæddist í Október
en svo var óið fellt niður og hún allt-
af skrifuð Oktovía,“ útskýrir Lovísa.
Þegar Lovísa var skírð þurfti að sækja
sérstaklega um leyfi til að fá að skýra
hana Oktovíu því nafnið var ekki til.
Langamman Ingibjörg hafði aldrei
notað Oktovíu nafnið því hún var
ekkert hrifin af því en eftir að Lovísa
var skírð í höfuðið á henni fór hún
að nota það aftur.
„Ég held að ég sé sú eina sem
heitir þessu nafni. Fólk skrifar það yf-
irleitt vitlaust og skrifar mig Okta-
vía eins og bílinn, Skoda Oktavia. Ég
er skráð Oktovía í þjóðskrá en ég er
ekki viss um að það sé viðurkennt af
mannanafnanefnd.“
Lovísa Oktovía er stolt af nafninu
sínu og segist ekki hafa lent í telj-
andi vandræðum með það á yngri
árum. „Nei mér var ekkert strítt. Fólk
vissi kannski ekki endilega af Oktov-
íunafninu þegar ég var lítil og ég var
ekkert að útskýra það fyrir því. En
núna er fólk rosalega hrifið af nafn-
inu og ég er mjög stolt af því. Ég
nota alltaf fullt nafn því ég vil ekki
að fólk sleppi því og gleymi Oktov-
íunafninu. Það er svolítið sérstakt og
mér þykir vænt um það.“
NAFNIÐ MITT: LOVÍSA OKTOVÍA EYVINDSDÓTTIR
Nafnið oft skrifað eins og bíllinn Skoda Oktavia
MERKISATBURÐIR:
1710 Sjö sólir sjást á lofti segir í Set-
bergsannál
1804 Napóleon Bonaparte lýstur
keisari Frakklands
1920 Breytingar á stjórnarskránni
vegna sambandslaganna 1918
staðfestar.
1993 Ítalska lögreglan handtek-
ur mafíuforingjann Benedetto
„Nitto“ Santapaola.
1994 Ísrael dregur herlið sitt frá
Gasasvæðinu
1980 Sextíu farast þegar fjallið Sankti
Helena gýs í Washington fylki.
1986 Herlið suður-Afríku hertekur
Botsvana, Simbabve og Samb-
íu.
1989 Rúmlega sex vikna verkfalli
Bandalags hálskólamanna
lýkur.
FLUGVIKU
r flugsins
menningi segir Matthías Sveinbjörnsson sem situr
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
flugvelli og á miðvikudag verð-
ur opið hús hjá Flugstoðum. Þar
verður meðal annars boðið upp á
leiðsögn í flugstjórn og turnhermi.
Þá um kvöldið verða haldnir fyrir-
lestrar um flugkennslu og þróun-
ar- og rannsóknarstarf Íslendinga
á sviði flugsins.
Á fimmtudaginn verður morg-
unmálþing klukkan 8.30 í skýli 25
og seinnipartinn verður opið hús
hjá grasrótinni. Á föstudaginn
verður svo snertilendingarbraut
á Sandskeiði vígð klukkan 14 og
opið hús hjá þeim sem bjóða upp á
viðskipta-, þyrlu- og útsýnisflug.
Alla vikuna verða flugatriði
sem verða auglýst síðar en þar
á meðal verður listflug, hópflug
einkaflugvéla, módelflug, fallhlíf-
arstökk og yfirflug á Þristinum.
Lokahnykkur flugvikunnar verð-
ur á laugardaginn þegar haldin
verður flugsýning og almenningi
gefst kostur á að skoða flugvél-
arnar. Hápunktur laugardagsins
verður þegar franskir flugsveit-
armenn af Keflavíkurvelli fljúga
yfir svæðið á herþotum.
Flugvikan er öllum opin og að-
gangur er ókeypis. Nánar má lesa
um dagskrá flugvikunnar á www.
flugmal.is heida@frettabladid.is