Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 6
6 18. maí 2008 SUNNUDAGUR
ÖRYGGISMÁL Siglingastofnun Íslands stóðst skoðun
Eftirlitsnefndar EFTA án athugasemda. Þetta er
aðeins í annað skiptið í sögu eftirlitsins sem stofnun
sem kemur að siglingavernd nær þessum árangri, en
úttektir á siglingavernd fara fram í sambærilegum
stofnunum allra ESB-landanna auk Íslands og
Noregs.
Óskar Ingi Sigmundsson, deildarstjóri hafnasviðs
Siglingastofnunar, segir úttektina hafa staðfest
hversu vel íslensk siglingayfirvöld hafa staðið að
uppbyggingu og framkvæmd löggjafar og reglukerf-
is auk eftirfylgni við kröfur og fyrirmæli stjórnvalda
EFTA-ríkjanna á sviði siglingaverndar. „Eftirlits-
mennirnir höfðu á orði að hér væri að finna dæmi þar
sem hægt væri að tala um bestu framkvæmd og tóku
jafnframt fram að samstarf og samvinna þeirra
stofnana sem skoðaðar voru væri til fyrirmyndar.
Samgönguráðherra fer með yfirstjórn siglinga-
verndarmála hér á landi en Siglingastofnun Íslands
sér um framkvæmd. Jafnframt gegnir Tollstjórinn í
Reykjavík, Ríkislögreglustjóri, Vaktstöð siglinga,
Landhelgisgæsla Íslands og íslenskar hafnir veiga-
miklu hlutverki. - shá
Siglingastofnun Íslands stóðst úttekt EFtirlitsnefndar EFTA án athugasemda:
Siglingavernd afburða góð
BANDARÍKIN, AP Árið 2013 verður
lýðræði orðið virkt í Írak og
flestir bandarískir
hermenn farnir
þaðan. Lítil hætta
stafar þá af
talibönum í
Afganistan og
Osama bin Laden
verður annað
hvort kominn í
fangelsi eða
dauður.
Svo spáir John
McCain, sem á fimmtudag lýsti
því hvernig hann sér fyrir sér
ástandið í heiminum fjórum árum
eftir að hann tekur við embætti
forseta Bandaríkjanna - að því
gefnu að hann verði kosinn í það
embætti.
Hann sér einnig fyrir sér að
Bandalag lýðræðisríkja hafi tekið
við af Sameinuðu þjóðunum. - gb
McCain spáir í framtíðina:
Útlistar eigin
afrek fyrirfram
JOHN MCCAIN
UMHVERFISMÁL „Þetta passaði ekki alveg því ég var að
taka upp lágstemmd hljóð fyrir kyrrláta stemningu í
ameríska bíómynd,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson,
tónlistarmaður og allsherjargoði Ásatrúarmanna,
sem telur drunur frá frönskum herþotum hafa
truflað upptökur í hljóðveri hans á Álftanesi.
Fjórar franskar herþotur komu hingað á mánudag í
síðustu viku til eftirlitsstarfa. Hilmar telur gný frá
þotunum hafa verið á Álftanesi í tvo daga í síðustu
viku. „Þetta var sérstaklega bagalegt annan daginn
sem segja má að hafa farið meira en hálfur í súginn
hjá mér. En eftir þetta hef ég sem betur fer ekkert
heyrt. Ef þetta héldi áfram væri það ekkert annað en
umhverfismengun,“ segir Hilmar.
Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkis-
ráðuneytisins, segir að ráðuneytinu hafi engar
kvartanir borist vegna flugs frönsku þotanna.
„Þessar þotur sinna fyrst og fremst eftirliti á hafi
úti og stunda ekkert lágflug yfir landi. Hins vegar
þurfa þær auðvitað og taka á loft og lenda á Keflavík-
urflugvelli,“ segir Urður sem kveður þotuflugmenn-
ina þess utan hafa æft lendingar á Egilsstöðum og
Akureyri. - gar
Allsherjargoði við hljóðritanir á kyrrlátum skógarhljóðum í óvæntum mótbyr:
Herþotur trufla hljóðupptöku
HILMAR ÖRN HILMARSSON Tónlistarmaðurinn og allsherjar-
goðinn segir herþotugný og hljóðritanir á skógarstemningu
ekki fara saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMGÖNGUR „Það eru tíu ár frá því
við hófum störf og við erum að
fagna því,“ segir Birgir Örn
Birgisson, markaðsstjóri
Atlantsskipa, en í dag vinna
tæplega sextíu manns vinna hjá
fyrirtækinu. Nokkrar breytingar
eru framundan. Atlantsskip hafa
haft tvö skip í leigu en nýlega var
undirritaður samningur við
Eimskip. „Í stað þess að leigja
skip þá erum við að leigja pláss í
skipum hjá þeim,“ segir Birgir.
Fjöldi viðskiptavina Atlants-
skipa auk erlendra samstarfsaðila
lagði leið sína í vöruhús fyrirtæk-
isins við Cuxhavengötu í Hafnar-
firði í gær. - ovd
Atlantsskip tíu ára:
Breytingar
framundan
AFMÆLISVEISLA Í VÖRUHÚSI Fjöldi fólks
lagði leið sína í vöruhús Atlatnsskipa í
Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/
ÖRYGGISMÁL Nýjar hertar Evrópu-
reglur um barnaöryggisbúnað í
bílum tóku gildi 9. maí síðastlið-
inn. Samkvæmt þeim teljast marg-
ir barnabílstólar, sem hingað til
hafa uppfyllt lágmarkskröfur,
ekki lengur löglegir. Eiga allir
stólar að vera E-merktir eins og til
dæmis ECE 4403 eða ECE 4404.
Á heimasíðu Félags íslenskra
bifreiðaeigenda kemur fram að ef
slíkt merki sé ekki að finna á
stólnum sé hann einfaldlega
ólöglegur og að ýmis önnur
merki, eins og DS (Dansk
Standard) eða sænska merkingin
Vägverket (T) séu ekki lengur
nægar. - ovd
Barnabílstólar skulu E-merktir:
Nýjar og hertar
öryggisreglur
GOÐAFOSS Íslensk siglingayfirvöld hafa fengið staðfestingu á
því að siglingavernd hérlendis er með því besta sem þekkist í
Evrópu. MYND/EIMSKIP
Á að fara fram þjóðaratkvæða-
greiðsla um aðild Íslands að
ESB á þessu kjörtímabili?
Já 73,1%
Nei 26,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú áhyggjur af stöðu
íslenska geitfjárstofnsins?
Segðu þína skoðun á visir.is
STJÓRNSÝSLA Eigandi sjávarlóðar-
innar á Miðskógum 8 og bæjaryfir-
völd á Álftanesi deila enn um rétt
hans til að byggja á lóðinni þrátt
fyrir að Hæstaréttardómur sé fall-
inn í málinu.
Skipulags- og byggingarnefnd
Álftaness hefur haft til umfjöllunar
breytingar á deilskipulagi við Skóg-
artjörn þar sem gatan Miðskógar
er. Meðal breytinganna er að fella
út byggingarlóð Henriks Thoraren-
sens á Miðskógum 8 og skilgreina
hana sem óráðstafað svæði.
Henrik hafi látið vinna fyrir sig
teikningar að einbýlishúsi en fékk
þær ekki samþykktar. Hófst þá
málrekstur sem fyrir mánuði end-
aði með dómi Hæstaréttar sem tók
undir með Henrik og sagði lóð hans
vera byggingarlóð samkvæmt
skipulagi frá árinu 1980. Hins vegar
hefðu uppdrættir að húsi hans ekki
samrýmst skilmálum deilskipu-
lagsins og því rétt hjá bæjaryfir-
völdum að synja honum um að reisa
hús samkvæmt þeim teikningum.
Hæstiréttur segir þannig að
byggja megi hús á lóðinni þótt þess-
ar tilteknu teikningar hafi farið út
fyrir skilmálana. Það lítur samt
ekki út fyrir að Henrik fái að byggja
því eins og áður segir hyggjast bæj-
aryfirvöld afmá byggingarlóð hans
út af skipulaginu.
„Ef fyrirætlanir skipulags- og
byggingarnefndar og sveitarfé-
lagsins ganga eftir er alveg ljóst að
umbjóðandi minn [Henrik] mun
ekki láta þær yfir sig ganga,“ segir
Guðmundur Ágústsson, lögmaður
Henriks, í bréfi til bæjaryfirvalda
á Álftanesi. Guðmundur segir
breytingarnar á skipulaginu ekki
aðeins svipta Henrik eignarrétti
sínum heldur ganga þvert á dóm
Hæstaréttar sem þannig væri gefið
„langt nef“ auk þess sem bærinn
yrði bótaskyldur.
Deilan um sjávarlóðina Mið-
skóga 8 hefur flækst af því að
beint fyrir ofan lóðina býr Kristj-
án Sveinbjörnsson, odddviti meiri-
hluta Álftaneslistans og forseti
bæjarstjórnar. Kristján hafði nýtt
hina óbyggðu lóð, meðal annars
fyrir vaðlaug sem hann útbjó.
Kristján hefur beitt sér gegn
því að Henrik fái að byggja á lóð-
inni en hefur ávallt vísað á bug
ásökunum um að afstaða hans
markist af eiginhagsmunum. Seg-
ist hann einfaldlega telja að ný
bygging rúmist ekki á lóðinni þar
sem hún sé svo nærri sjávarkamb-
inum.
gar@frettabladid.is
Yfirvaldið á Álftanesi
sagt hunsa Hæstarétt
Eigandi lóðarinnar Miðskóga 8 á Álftanesi segist ekki una því að bæjaryfirvöld
gefi Hæstarétti langt nef með því að afmá sjávarlóð hans út af skipulagi. For-
seti bæjarstjórnar býr ofan við lóðina og telur nýtt einbýlishús ekki rúmast þar.
MIÐSKÓGAR 8 Tölvugerð mynd sýnir húsið sem átti að byggja. Reisa má hús á lóðinn en þak á útsýnisturni var of hátt segir
Hæstiréttur Íslands. MYND/EON ARKITEKTAR
KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON Forseti
bæjarstjórnar á Álftanesi á sinni lóð.
HENRIK THORARENSEN Eigandi Mið-
skóga 8 stendur hér í frosinni vaðlaug
sem forseti bæjarstjórnar útbjó á lóð
hans.
BÍLAR Þýskir bílar stöðvast
sjaldnast á vegum úti vegna
bilanna. Er þetta samkvæmt
nýjustu bilanatölfræði ADAC í
Þýskalandi, systurfélags Félags
íslenskra bifreiðaeiganda.
Tölfræðin er unnin upp úr
útkallstölum vegaaðstoðar ADAC
en sem fyrr eru rafmagnsbilanir
algegnasta orsök þess að bílar
stöðvast á vegum úti. Er þetta
þriðja árið í röð sem þýskir bílar
koma best út en fram að því
höfðu japanskir bílar vinninginn.
- ovd
2,5 milljón útköll ADAC í fyrra
Þýsku bílarnir
bila minnst
LIST Anna Halldórsdóttir Spaid
tónskáld samdi tónlistina við
teiknimyndina Written by Gandhi
sem maður hennar Joseph Spaid
framleiddi. Hún verður til sýnis í
Stuttmynda-
horni á
kvikmyndahá-
tíðinni í
Cannes.
„Umsóknar-
fresturinn um
að fá að sýna
mynd á Cannes var að verða
útrunninn þegar við ákváðum að
láta reyna á þetta,“ segir Anna.
„Og það kom okkur eiginlega í
opna skjöldu þegar okkur var
síðan sagt að mæta með myndina.“
Í myndinni eru margar tilvitnan-
ir í Mahatma Gandhi og er
markmiðið með henni að stuðla að
friði. - jse
Kvikmyndahátíðin í Cannes:
Íslenskir tónar
á Canneshátíð
WRITTEN BY GANDHI
KJÖRKASSINN