Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 96
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 Í dag er sunnudagurinn 18. maí, 140. dagur ársins. 4.06 13.24 22.45 3.26 13.09 22.55 með ánægju F í t o n / S Í A *Börn, 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum, fá helmingsafslátt af verði fyrir skatta og aðrar greiðslur. Evrópa er ævintýri líkust Skemmtigarðar, dýragarðar, fróðleg söfn, fjölskylduvæn veitingahús, sólarstrendur – og að sjálfsögðu frábært veður! Bókaðu skemmtiferð fyrir alla fjölskylduna á www.icelandexpress.is! Krakkar eiga líka skilið að fara í frí! BÖRN FÁ AFSLÁTT* 50% London Chessington Royal Air Force Museum British Museum The London Eye Kaupmannahöfn Tívolíið Dyrehavsbakken Billund Lególand Løveparken Gautaborg Lisebjerg Stokkhólmur Skansen París Disneyland Park Basel Dýragarðurinn Friedrichshafen Ravensburger Spieleland Berlín Dýragarðurinn Alicante Terra Mitica Barcelona Sólarstrendur PortAventura Frankfurt Hahn Wild- und Freizeitpark Klotten Phantasialand Varsjá Ostrogski-höllin Fantasy-garðurinn Fullt í boði fyrir alla fjölskylduna Í fréttum vikunnar voru tvær frétt-ir þannig að margir vissu ekki hvort þeir ættu að hlæja eða gráta vegna yfirgengilegs skilningsleysis sem þar birtist. ÖNNUR fréttin var af mótmælend- um á pöllum Alþingis í umræðu um mögulega aðstoð vegna jarðskjálft- ans í Kína þar sem talið er að allt að 50.000 manns hafi farist, að tugir þúsunda hafi grafist lifandi í húsa- rústum og tæpar fimm milljónir manna misst allt sitt. Mótmælend- urnir, sem voru víst flestir úr hópi atvinnubílsstjóra, gerðu hróp og köll að þingmönnum og öskruðu reiðir með hnefann á lofti að fyrst ætti að hjálpa heimafólki með sín vandamál. HIN fréttin var af formanni svokall- aðs félagsmálaráðs á Skaganum sem mótmælti hástöfum komu um þrjátíu erlendra flóttamanna. Um er að ræða konur, einstæðar mæður og ekkjur með börn, sem dvelja í flóttamanna- búðum í Írak. Konurnar munu flestar hafa misst eiginmanninn í stríðs átök- um. Formaður félagsmálaráðsins taldi að ástandið á Akranesi byði ekki upp á aðstoð við aðra en bæjarbúa. Bærinn standi til dæmis tæpt vegna mikilla framkvæmda sem séu fram- undan. GETUR virkilega verið að hátt bens- ínverð og reglur um hvíldartíma teljist á pari við náttúruhamfarir sem kosta tugi þúsunda lífið? Mikil má þá eymd atvinnubílstjóranna vera. Og hvers vegna hefur ekki verið vakin athygli á ástandinu á Skaganum í heimspressunni nú þegar komið hefur í ljós að félagsleg vanda- mál þar eru brýnni en aðstoð við flóttamenn sem bókstaflega ekkert eiga? FYRRVERANDI formaður félags- málaráðsins hefur gefið til kynna að hann sé í sjálfu sér reiðubúinn til að taka á móti flóttamönnum. Skilyrðið er bara að öll félagsleg vandamál í bænum hans hafi verið leyst áður. Þá geti bærinn hjálpað. ÞAÐ er auðvitað engin ástæða til að gera lítið úr því að íslenskt efnahags- líf er veikara en það var fyrir örfáum mánuðum eða úr því að vitaskuld eru næg verkefni heima fyrir. En hvaða mynd er verið draga upp af Íslandi ef ekki er hægt að aðstoða fáeinar flóttakonur með börn eða fórnarlömb náttúruhamfara? LÍKAST til er það nú frekar þannig að menn hafa það kannski ekki svo slæmt eftir allt saman þegar þeir upplifa óhagstæðan leigumarkað á Akranesi og erfiðleika vegna afborg- ana á risatrukkum sem keimlíkt því að þola stríð eða náttúruhamfarir. KANNSKI skortir menn þá eitthvað annað en efnisleg gæði. Neyðin á Skaganum BAKÞANKAR Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.