Fréttablaðið - 18.05.2008, Qupperneq 96
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Í dag er sunnudagurinn 18. maí,
140. dagur ársins.
4.06 13.24 22.45
3.26 13.09 22.55
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
*Börn, 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur.
Evrópa er ævintýri líkust
Skemmtigarðar, dýragarðar, fróðleg söfn, fjölskylduvæn veitingahús,
sólarstrendur – og að sjálfsögðu frábært veður!
Bókaðu skemmtiferð fyrir alla fjölskylduna á www.icelandexpress.is!
Krakkar eiga líka
skilið að fara í frí!
BÖRN FÁ
AFSLÁTT*
50%
London
Chessington
Royal Air Force Museum
British Museum
The London Eye
Kaupmannahöfn
Tívolíið
Dyrehavsbakken
Billund
Lególand
Løveparken
Gautaborg
Lisebjerg
Stokkhólmur
Skansen
París
Disneyland Park
Basel
Dýragarðurinn
Friedrichshafen
Ravensburger Spieleland
Berlín
Dýragarðurinn
Alicante
Terra Mitica
Barcelona
Sólarstrendur
PortAventura
Frankfurt Hahn
Wild- und Freizeitpark Klotten
Phantasialand
Varsjá
Ostrogski-höllin
Fantasy-garðurinn
Fullt í boði fyrir alla fjölskylduna
Í fréttum vikunnar voru tvær frétt-ir þannig að margir vissu ekki
hvort þeir ættu að hlæja eða gráta
vegna yfirgengilegs skilningsleysis
sem þar birtist.
ÖNNUR fréttin var af mótmælend-
um á pöllum Alþingis í umræðu um
mögulega aðstoð vegna jarðskjálft-
ans í Kína þar sem talið er að allt að
50.000 manns hafi farist, að tugir
þúsunda hafi grafist lifandi í húsa-
rústum og tæpar fimm milljónir
manna misst allt sitt. Mótmælend-
urnir, sem voru víst flestir úr hópi
atvinnubílsstjóra, gerðu hróp og köll
að þingmönnum og öskruðu reiðir
með hnefann á lofti að fyrst ætti að
hjálpa heimafólki með sín vandamál.
HIN fréttin var af formanni svokall-
aðs félagsmálaráðs á Skaganum sem
mótmælti hástöfum komu um þrjátíu
erlendra flóttamanna. Um er að ræða
konur, einstæðar mæður og ekkjur
með börn, sem dvelja í flóttamanna-
búðum í Írak. Konurnar munu flestar
hafa misst eiginmanninn í stríðs átök-
um. Formaður félagsmálaráðsins
taldi að ástandið á Akranesi byði ekki
upp á aðstoð við aðra en bæjarbúa.
Bærinn standi til dæmis tæpt vegna
mikilla framkvæmda sem séu fram-
undan.
GETUR virkilega verið að hátt bens-
ínverð og reglur um hvíldartíma
teljist á pari við náttúruhamfarir
sem kosta tugi þúsunda lífið? Mikil
má þá eymd atvinnubílstjóranna
vera. Og hvers vegna hefur ekki
verið vakin athygli á ástandinu á
Skaganum í heimspressunni nú þegar
komið hefur í ljós að félagsleg vanda-
mál þar eru brýnni en aðstoð við
flóttamenn sem bókstaflega ekkert
eiga?
FYRRVERANDI formaður félags-
málaráðsins hefur gefið til kynna að
hann sé í sjálfu sér reiðubúinn til að
taka á móti flóttamönnum. Skilyrðið
er bara að öll félagsleg vandamál í
bænum hans hafi verið leyst áður. Þá
geti bærinn hjálpað.
ÞAÐ er auðvitað engin ástæða til að
gera lítið úr því að íslenskt efnahags-
líf er veikara en það var fyrir örfáum
mánuðum eða úr því að vitaskuld eru
næg verkefni heima fyrir. En hvaða
mynd er verið draga upp af Íslandi ef
ekki er hægt að aðstoða fáeinar
flóttakonur með börn eða fórnarlömb
náttúruhamfara?
LÍKAST til er það nú frekar þannig
að menn hafa það kannski ekki svo
slæmt eftir allt saman þegar þeir
upplifa óhagstæðan leigumarkað á
Akranesi og erfiðleika vegna afborg-
ana á risatrukkum sem keimlíkt því
að þola stríð eða náttúruhamfarir.
KANNSKI skortir menn þá eitthvað
annað en efnisleg gæði.
Neyðin á
Skaganum
BAKÞANKAR
Þorbjargar
Sigríðar
Gunnlaugsdóttur