Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 87
SUNNUDAGUR 18. maí 2008 27
„Krúttið er dautt. Það er allt í lagi
að klæða sig eins og krútt en það
er enginn að hlusta á þessa tónlist
lengur,“ segir útvarpsmaðurinn
Þorkell Máni Pétursson hjá X-inu
977 sem hefur breytt spilunarlista
sínum.
„Krúttið er ekkert ósvipað og
þetta ömurlega góðærisfyrirbæri
sem allir héldu að væri hinn nýi
sannleikurinn en viti menn, krepp-
an kom og líka hjá krúttunum.“
Að sögn Þorkels Mána verður
spilunarlisti stöðvarinnar svipað-
ur og áður fyrir utan það að krútt-
sveitir fá minna vægi, sérstaklega
þær erlendu. „Hlustendur eru
ekki að fíla krútt-tónlistina. Þeir
vilja meira rokk og meiri
greddu.“
Eldri sveitir á borð við Led
Zeppelin, Deep Purple og gítar-
snillinginn Jimi Hendrix hljóta
sem fyrr ekki náð fyrir augum X-
ins. „Ég vil taka það fram að Zepp-
elin er frábær hljómsveit en hún
verður ekki spiluð hér á X-inu. Við
erum ekki að fara að spila gamalt
rokk og við spilum í mesta lagi eitt
og eitt „eitís“-lag með böndum
eins og The Clash og The Smiths.
Þorkell Máni segir að X-ið hafi
fyrrum spilað mikið af nýju efni
sem hafi ekki enn náð vinsældum
hér heima. „Við erum ekki að taka
inn nýtt efni jafnhratt og áður. Við
höfum oft verið svo mikið á undan
„hæpinu“ og það var að bíta okkur
svolítið í rassinn. Við erum alltaf
nýjastir og ferskastir en það þarf
stöðugt að vera endurnýjun í
gangi.“ - fb
Krúttin lenda í kreppunni
ÞORKELL MÁNI OG FROSTI Rokkararnir á X-inu hafa breytt spilunarlista sínum og
dregið úr krútt-áhrifunum.
Þriðjudaginn 27. maí kl. 8:30-11:10 á Grand Hótel Reykjavík, Hvammi, Sigtúni 38.
Rannsóknir í fyrirtækjum
R A N N S Ó K N A Þ I N G
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • www.rannis.is
Alþjóðlegar samanburðarmælingar sýna að Íslendingar hafa dregist aftur úr í nýsköpunar- og þróunarstarfi í atvinnulífinu
á undanförnum árum og er brýnt að auka hvata til að snúa þeirri þróun við. Í fámennu landi er mikilvægt að sameina
kraftana. Vísinda- og tækniráð hefur í framtíðarsýn sinni til 2020 m.a. lagt áherslu á virkt samstarf fyrirtækja, háskóla
og stofnana í rannsóknum, nýsköpun og þróunarstarfi. Öflugar rannsóknir eru undirstaða þekkingarþjóðfélagsins og brýnt
að hvetja sem flest fyrirtæki til þess að þær verði reglulegur þáttur í starfsemi þeirra.
Dagskrá
8.30 Setning. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra
8.45 Rannsóknir í íslenskum fyrirtækjum.
Hver er staðan nú? Guðrún Nordal, formaður
vísindanefndar
9.00 Rannsóknir í sprotafyrirtækjum. Kristján Leósson,
Háskóla Íslands (Hvatningarverðlaun 2007) Björn Örvar, ORF
Líftækni (Nýsköpunarverðlaun 2008) Vilbjörg Einarsdóttir,
Mentor (Vaxtarsprotinn 2008)
9.45 Nauðsyn rannsókna í fyrirtækjum.
Tryggvi Þór Herbertsson, forstjóri Askar Capital
10.00 Pallborð. Hvernig er hægt að örva fyrirtæki
til rannsókna? Þingmennirnir Illugi Gunnarsson, Katrín
Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir og Birkir Jónsson sitja í
pallborði. Stjórnandi er Þorlákur Karlsson prófessor, forseti
viðskiptadeildar HR
Dagskrá vegna hvatningarverðlauna
Vísinda- og tækniráðs
10.30 Tónlist. Ragnheiður Gröndal söngkona og
Guðmundur Pétursson gítarleikari
10.45 Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Vísinda-
og tækniráðs, afhendir Hvatningarverðlaun Vísinda- og
tækniráðs. Jakob K. Kristjánsson formaður dómnefndar gerir
grein fyrir niðurstöðu nefndarinnar
11.10 Rannsóknaþingi slitið
Fundarstjóri Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
IÐNAÐAR
RÁÐUNEYTIÐ
FORSÆTIS
RÁÐUNEYTIÐ
MENNTAMÁLA
RÁÐUNEYTIÐ
Rannsóknaþingið er öllum opið.
Þinggestir eru vinsamlega beðnir að skrá sig með
tölvupósti til rannis@rannis.is eða í síma 515 5800
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið