Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.05.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 18.05.2008, Qupperneq 10
10 18. maí 2008 SUNNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björgvin Guðmundsson og Björn Ingi Hrafnsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Snýst um traust á heilbrigðisráðherra Það liggur fyrir að íslenska heilbrigðiskerfið er eitt það besta í heimi. Samkvæmt niðurstöðu OECD er það öfundsvert. Það er vissulega viðunandi einkunnagjöf fyrir Framsóknarflokkinn sem fór með heilbrigðismál í landinu í tólf ár, eða þar til í maí í fyrra. Nú eru hins vegar runnir upp óvissutím- ar. Ástæðan er sú að í skammri tíð nýs heilbrigðis- ráðherra, sem starfar m.a. á ábyrgð Samfylkingar- innar, hafa virtir embættismenn hrakist úr starfi og boðuð hefur verið grundvallarbreyting á stefnunni í heilbrigðismálum. Áhugi Sjálfstæðisflokksins á heilbrigðismálum Það er langt síðan okkur framsóknarmönnum varð ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn hefði mikinn áhuga á að fara með heilbrigðismál í landinu. Formaður Sjálfstæðisflokksins tjáði sig í viðræðuþætti í aðdraganda kosninga með þeim hætti að ekki fór á milli mála að Sjálfstæðisflokkurinn myndi gera kröfu um að fá heilbrigðisráðuneytið í þeirri ríkisstjórn sem mynduð yrði að loknum kosningum. Vitandi það að við framsóknarmenn myndum ekki verða fús til að láta málaflokkinn af hendi af ótta við einkavæðingaráform sjálfstæðismanna, sneri Geir sér til Samfylkingarinnar sem seldi sig ódýrt. Stefnan birtist síðan í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar þar sem segir m.a. að skapað verði svigrúm til fjölbreytilegra rekstrarforma í heil- brigðisþjónustu, m.a. með útboðum og þjónustu- samningum. Yfirgangur stjórnarflokkanna Á haustþingi flutti ríkisstjórnin frumvarp þar sem m.a. var kveðið á um nýja stofnun sem hafi það hlutverk að styrkja hlutverk ríkisins sem kaupanda heilbrigðisþjónustu og að kostnaðargreina heilbrigð- isþjónustuna. Samkvæmt 18. grein frumvarpsins fékk heilbrigðisráðherra heimild til að skipa stofnuninni stjórn og ráða forstjóra, án þess að Alþingi hefði fjallað um stofnunina sem slíka. Við framsóknarmenn sátum hjá við afgreiðslu greinar- innar þar sem vinnubrögðin voru alls óviðunandi. Það næsta sem fréttist af þessari nýju stofnun var að auglýst var eftir forstjóra. Þegar níu þingdagar voru til þinghlés birtist svo loks frumvarp til laga um sjúkratryggingar, upp á 73 greinar. Málið var tekið á dagskrá í vikunni með afbrigð- um sem samþykkt voru af stjórnarsinnum. Þá bar enn til tíðinda. Formaður heilbrigðisnefndar greindi frá því úr ræðustól að hún væri í eigin nafni búin að senda málið út til umsagnar. Samkvæmt þingsköp- um eru það hins vegar nefndir þingsins sem senda mál út til umsagnar en ekki einstaka þingmenn. Allt ber þetta með sér yfirgang stjórnarflokkanna og lítilsvirðingu gagnvart Alþingi. Við framsóknarmenn setjum okkur ekki fyrirfram gegn tilvist Sjúkratryggingastofnunar. Áþekkar hugmyndir höfðu komið fram í tíð framsóknarráð- herra í heilbrigðisráðuneytinu. Það sem gerir málið hins vegar snúið er að við treystum illa heilbrigðis- ráðherranum Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Sjálfstæð- isflokknum til að fara með það vald sem lög um sjúkratryggingar veita. Það virðist hins vegar Samfylkingin gera með bros á vör. Mikilvægt framfaraskref Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um sjúkratryggingar sem felur í sér breytingu á fyrirkomulagi greiðslna ríkisins fyrir heilbrigðis- þjónustu. Höfuðáhersla verður lögð á að fjárveiting- ar ríkisins til veitenda heilbrigðisþjónustu verði tengdar þeirri þjónustu sem veitt er. Fagleg umgjörð rekstrar Nýja kerfið byggir á sænskri fyrirmynd. Markmið kerfisins er viðhalda hinu norræna þjónustukerfi, sem felst í að notendur heilbrigðisþjónustu eigi aðgang að heilbrigðisþjónustu sem veitt sé án tillits til efnahags. Í dag búa opinberar heilbrigðisstofnan- ir við óskilvirka fjárveitingaumgjörð, þar sem ekki er skýrt samhengi milli þeirra verka sem unnin eru og þeirra fjárveitinga sem ríkið veitir til starfsem- innar. Þannig býður núverandi kerfi heim þeirri hættu að fjárlagaramminn stjórni þjónustustiginu, með hörmulegum afleiðingum fyrir þá sem þjónust- unnar eiga að njóta. Í hinu nýja kerfi er gert ráð fyrir að allar fjárveit- ingar verði byggðar á samningum um tiltekna þjónustu og að komið verði á skipulegu verklagi við eftirlit með gæðum þeirrar þjónustu sem veitt er. Nú þegar eru í lögum víðtækar valdheimildir fyrir stjórnvöld til að semja um framkvæmd heilbrigðis- þjónustu og er ekki gert ráð fyrir að þær verði aukn- ar, en komið verði á faglegri umgjörð um beitingu þeirra. Nýju stofnuninni verður þannig gert að gæta að öryggishlutverki opinberra sjúkrahúsa og því að viðhalda faglegri þekkingu þar. Jafnframt verður hætt að semja við hagsmunasamtök veitenda heilbrigðisþjónustu á borð við félög lækna, eins og tíðkast hefur hingað til, og bannákvæði samkeppnis- laga munu gilda um samstilltar aðgerðir veitenda þjónustunnar gagnvart ríkinu. Aukið jafnrétti Ýmsir hafa haft hátt á undanförnum mánuðum um að í breytingunum felist einkavæðing, markaðsvæð- ing, sala sjúklinga eða eitthvað þaðan af verra. Í frumvarpinu er þvert á móti að finna ákvæði sem tryggja betur en gert er í núgildandi lögum að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eigi að vera án tillits til efnahags. Þá er sett í lög ákvæði sem beinlínis bannar veitendum þjónustu að krefja sjúkratryggða einstaklinga um frekara gjald en felst í almennri kostnaðarþátttöku skv. reglugerð. Þannig er beinlínis bannað með lögum að veitendur þjónustu bjóði notendum að borga sig fram fyrir í biðröð. Þá er girt fyrir að hér geti skapast banda- rískt kerfi sem felur í sér endurgreiðslu að hluta á útlögðum kostnaði, sem myndi leiða til aukins kostnaðar og brjóta niður hið norræna þjónustukerfi sem við höfum byggt á. Betri velferðarþjónusta Markmið jafnaðarmanna er nú sem fyrr að tryggja bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á fyrir alla, án tillits til efnahags. Óskilvirkt fjárveitingakerfi dregur úr gæðum þjónustu og kostnaðaraðhaldi. Við verðum að tryggja hámarks gæði fyrir alla – ekki bara suma. Einungis þannig þróum við hágæða heilbrigðiskerfi fyrir alla til lengri tíma litið. BITBEIN Árni Páll Árnason spyr: Á að setja nýja Sjúkratrygginga- stofnun á fót? ÁRNI PÁLL ÁRNASON VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Meirihlutamambó Eftir meirihlutabreytingar í bæjarstjórn Akraness er þar sama staða komin upp og í Reykjavík. Það er að fyrstu varabæjar- eða varaborgarfulltrúar F- lista styðja ekki sitjandi meirihluta sem aðalmenn þeirra standa að. Á Akranesi og í Reykjavík getur því meirihlutinn fallið við það eitt að varamaður taki sæti í stað aðalmanns. Í Fréttablaðinu á fimmtudaginn sagðist Magnús Þór Hafsteinsson, varabæjarfulltrúi F-lista á Akranesi erfitt að segja hvort hann myndi fella meirihlutann kæmist hann í aðstöðu til þess. Það yrði bara að ráðast. Framtíð meiri- hlutanna veltur því líklega á heilsu og viðveru sitjandi aðal- manna. Annars gætu íbúar Reykjavíkur og Akraness þurft að búa við enn ein meirihlutaskiptin á kjörtímabilinu. Meirihluti Frjálslyndra Með breytingum á meirihluta í bæjar- stjórn Akraness er Frjálslyndi flokkurinn hvergi í meirihluta í bæjar- eða sveit- arstjórn á Íslandi þar eð Ólafur F., borg- arstjóri F-lista, tilheyrir Íslandshreyfing- unni. Hvort minnihlutaseta Frjálslyndra er til komin vegna frambjóðenda- eða stefnumála er sjálfsagt mismunandi. Grímur Atlason, fyrrverandi bæjarstjóri í Bolungarvík virðist þó hafa fund- ið ástæðu fyrir litlu fylginu og segir flokkinn vera þann stjórn- málaflokk á Íslandi sem tekið hafi málstað þeirra sem óttast hið útlenda og gert að sínum. Segir hann slíkt byggt á ótta og þröngsýni og því sé Frjálsblyndir réttnefni á flokknum. Davíð í Skaptahlíðinni Davíð Oddsson, seðlabankastjóri var gestur í hádegisviðtalinu á Stöð 2 á föstudaginn. Ræddi hann meðal annars það að Seðlabanki Íslands hafi tryggt sér aðgang að 1,5 milljarði evra með samningum við seðlabanka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Það þótti tíðindum sæta að Davíð kæmi í viðtal í Skaftahlíðinni þar sem Stöð 2 er til húsa. Í það hús kom Davíð síðast árið 1978 og þá til að dansa á skemmtistaðn- um Lídó sem þá var í Skaftahlíðinni. olav@frettabladid.isF orsætisráðherra sendi mjög ákveðin skilaboð á ársfundi Seðlabankans í vor um ráðstafanir á sviði peningamála til þess að mæta lausafjárvanda bankakerfisins. Seðla- bankinn kynnti fyrsta skref þeirra viðbragða í lok síð- ustu viku. Þau hafa haft góð áhrif og eru líkleg til að auka bjartsýni. Í sumum erlendum umsögnum hefur þessum ráðstöfunum verið lýst sem neyðaraðgerðum eða framlengingu í hengingaról. Veru- leikinn er sennilega sá að á þessar aðgerðir má líta sem mikilvæga viðspyrnu en ofmat væri að líkja þeim við lausnarorð. Ekkert bendir til að einungis sé verið að lengja í hengingarólinni. Vissulega er það svo að nauðir hafa rekið stjórnvöld til aðgerða af þessu tagi. Viðbrögð markaðarins benda hins vegar til að á þeim vettvangi sé trú á að Ísland geti unnið sig út úr örðugleikunum. Annað verður því ekki sagt en að forsætisráðherra hafi tekið á viðfangsefninu af mikilli yfirvegun og styrk. En stóra spurningin er þessi: Hvað svo? Ýmsir hafa lýst efasemdum um réttmæti þess að gera rástafan- ir til þess að Seðlabankinn geti í reynd verið trúverðugur lánveit- andi til þrautavara fyrir viðskiptabanka sem hafa vaxið honum yfir höfuð. Af því hlýst alltaf nokkur kostnaður fyrir skattborg- arana. Það er satt og rétt en er ekki gild mótbára eins og sakir standa. Svo lengi sem Ísland kýs að reka sjálfstæða peningastefnu með ósamkeppnishæfan gjaldmiðil verða skattgreiðendurnir að bera þennan kostnað. Þá má spyrja á móti: Er ávinningurinn af því að viðhalda sjálf- stæðri mynt slíkur að það réttlæti þessar sérstöku fórnir skatt- borgaranna til frambúðar? Helsta röksemdin sem færð hefur verið fram í því efni er sú að sjálfstæð peningastefna sé nauð- synleg til að jafna ólíkar sveiflur í þjóðarbúskap Íslands og við- skiptalandanna. Veruleikinn er hins vegar sá að hún hefur í reynd fremur ýkt þennan sveiflumun en hitt. Það mun ekki breytast við þessar aðgerðir. Niðurstaðan er þá þessi. Fórnarkostnaður skattborgaranna er óhjákvæmilegur um tíma en ekki réttlætanlegur til frambúðar. Fyrir þá sök þarf að fylgja tímabundnum ráðstöfunum langtíma stefnumörkun um íslensk peningamál. Kostirnir eru tveir: Krónan með þeim aukakostnaði sem henni fylgir og lélegri samkeppnis- stöðu eða evra með þeim hagstjórnaraga sem hún kallar á. Eru menn reiðubúnir til að beygja sig undir aukinn aga til að ná betri stöðugleika í þjóðarbúskapinn og traustari samkeppnisstöðu? Næsti prófsteinn í því efni eru fjárlög komandi árs og fjárhags- áætlanir sveitarfélaga. Ljóst er að bæði ríkissjóður og sveitar- sjóðir munu tapa tekjum fyrir áhrif af falli krónunnar. Tekjuöflun ríkissjóðs hefur verið að hluta til fölsk vegna viðskiptahallans. Framhald þeirra aðgerða sem nú hafa verið ákveðnar á peninga- markaðnum hlýtur því að felast í mjög aðhaldssömum ráðstöfun- um í ríkisfjármálum. Þetta á alveg sérstaklega við hafi menn í huga að gera Ísland í stakk búið til að taka upp evru. Það getur ekki gerst nema sæmilegu jafnvægi verði náð fyrst. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort þeir stjórnmálamenn sem eru hlynntir evru gangi fram fyrir skjöldu með meiri aðhalds- semi í ríkisfjármálum en aðrir. Við fjárlagagerðina reynir á hversu fúsir menn eru að beygja sig undir aukinn aga og sýna í verki að við getum tekið þær ákvarðanir sem óhjákvæmilegar eru vilji menn stefna að betra jafnvægi til frambúðar. Kostnaðurinn við sjálfstæða peningastefnu: Hvað svo? ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.