Fréttablaðið - 18.05.2008, Side 20

Fréttablaðið - 18.05.2008, Side 20
MENNING 2 F yrstu listahátíðir sem hér voru haldnar spruttu upp beint í í kjölfar stofnunar lýðveldisins: samsettar dagskrár sem innibáru allar listgreinar voru teknar með og leitað í þau hús sem voru gjaldgeng: Myndabók Jónasar Hallgrímssonar í samantekt Halldórs Laxness var flutt af fríðum flokki leikara í stóra bragganum við Suðurgötu. Tveimur áratugum síðar, um miðjan sjöunda áratuginn, voru íslenskir listamenn enn að hóa í hátíðir, slá saman í dagskrár. Aðkoma Ragnars í Smára, Ivars Eskeland og Vladimírs Ashkenazy að hátíðinni 1970 studdist því við öflugan bakhjarl íslenskra listamanna. Þeir eru enn bakhjarlar hennar þott hin erlenda áhersla sé alltaf meira áberandi. Lestur í sögu hátíðarinnar, sem hófst á fimmtu- dagskvöld og setur mark sitt á þetta blað í dag, ætti eðli máls samkvæmt að vera í annarra höndum en hátíðarinnar sjálfrar. Síðgotungum þessarar nær fertugu móður fjölgar stöðugt: Listahátíðin er með einum og öðrum hætti móðir allra þeirra hátíða sem nú setja svip sinn á menningar- og samkomuhald um allt land. En það er fleira matur en feitt kjöt, virkir dagar fleiri en tyllidagar. Listahátíðin er daglegur viðburður í mörgum miðlum misfín, misstillt, og þeim sem að standa misjafnlega hampað. Þeir sem standa fyrir hátíðahaldinu hafa kosið að hlamma opnunum á flestum sýningum sem hátíðin inniber á fyrstu 48 klukkustundirnar – 22 sýningar opna þá um allt land. Og rétt eins og fagna má þessum mikla straumi myndlistarupplifana verður að hafa verulegar áhyggjur af því hvort það þjóni hagsmun- um hina fjölmörgu aðila sem standa fyrir sýningar- haldinu undir stórri regnhlíf Listahátíðar að láta allt fara af stað í einu: fjölmiðlun í landinu ræður einfaldlega ekki við svo stóran pakka. Hvers vegna er þetta svona? Jú, það er stefna forráðamanna Listahátíðar að gera þennan hvell að blaðaefni í erlendum tímaritum um myndlist. En árangur í kynningarstarfi á myndlist eða hvaða liststefnu sem er má Listahátíð í Reykjavík ekki mæla í dálksenti- metrum í erlendum tímaritum. Hátíðin er ekki fyrir erlenda blaðamenn, ekki einu sinni fyrir erlenda gesti – hún er fyrir þá sem búa hér á landinu og borga brúsann, bæði í beinum styrkjum til hátíðar- innar og eins í gegnum styrktarfé fyrirtækja til hennar. Það er almenningur á Íslandi sem stendur undir þessu hátíðahaldi. Liðið sem sækir opnanir verður búið á því þegar þessi fjörutíu og átta tíma törn er yfirstaðin og blaðamennirnir verða farnir heim til sín. Þeir hafa þá lent í þeim ósköpum að reyna að sjá eitthvað í salíbunu sinni í gegnum alla þessa myndlist. Það væri kannski ráð að gefa sumum fastagestum á boðslistum Listahátíðar og samstarfsaðilum frí og bjóða á opnanir einhverjum þeim þremur fjórðu almennings í landinu sem aldrei fer á myndlistar- sýningar. HÁTÍÐAHÖLDIN HAFIN Páll Baldvin Baldvinsson skrifar LJÓÐIÐ Sigfús Daðason Í BLÖÐUNUM okkar sem við lesum daglega er nú varla nema um tvennt að velja: vitleysu eða óþverra. Brátt rennur upp nýtt árþúsund. – Að líkindum hið síðasta. Óþverrinn hrannast upp hvarvetna. Við því mun og þurfa að búast að vitleysan ómenguð nái þá fullum undirtökum á blöðunum okkar sem við hljótum að sönnu halda áfram að lesa ótrauð hvern dag sem Guð kann að hafa ætlað þeim aldur. Ljóðið birtist í bók Sigfúsar Daðasonar Og hugleiða steina sem kom út 1997. Þ að eru ekki bara íslensk- ir dansarar sem koma að verkinu. Kira Kira og Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir sem báðar eru þekktar hér á landi sem tón- listarmenn og tónsmiðir semja tónlist við verkið ásamt þýskum samverkamanni sínum Dirk Dess- elhaus. Leikmynd og búninga gerir Kristina Torp, ljós hannar Kyrre Heldal Karlsen en hljóð Morten Cranner. Verkið tekur 70 mínútur í flutningi. Alls kemur tuttugu og einn dansari fram í sýningunni sem verður á Stóra sviði Borgar- leikhússins. Koma Listahátíðirnar báðar að framleiðslu verksins. Uppspretta hugmyndarinnar er bláhvalur sem rak á land á strönd Jan Mayen árið 2001. Beinagrind hans er á safni í Noregi og verður notuð í sýningunni. Höfundar vilja nota sögu hvalsins, þessa ótrúlega dýrs sem syndir um heimsins höf áratugum saman. Hvalurinn virð- ist ætíð vita nákvæmlega hvert hann á að fara og gefur frá sér hljóð á „tungumáli“ sem er ein- stakt og vísindamenn kappkosta enn að skilja. Sýningin er óður til hvalanna, framleidd af listafólki sem kemur frá löndum sem enn stundar hval- veiðar þrátt fyrir víðtæk mótmæli um heim allan. Verkið fjallar um samskipti milli þjóða og einstaklinga, ferðir okkar, leyndardóma og þrár. Norski nútímadansflokkurinn Carte Blanche höfðar til stórs áhorfendahóps með framúrskar- andi norskum og alþjóðlegum nútímadansi. Sem „repertory company“ á hann samstarf við marga þekkta norska og alþjóð- lega danshöfunda. Flokkurinn er einstakur vettvangur fyrir norska danshöfunda til að skapa ný verk. Þar eru fremstar í flokki þær Ingun Bjørnsgaard, Ina Christel Johannessen og Eva-Cecilie Richardsen. Flokkurinn leitast einnig við að kynna áhorfendum sínum verk eftir erlenda danshöfunda á heims- mælikvarða. Verkin eru unnin í nánu samstarfi danshöfundar og dansara flokksins þar sem dansar- arnir leika mikilvægt hlutverk í sköpun nýrra verka. Þetta leiðir til sívaxandi danshæfni og sköpunar- HVALREKI DANSUNNENDA Einn þekktasti nútímadansfl okkur norðursins, Carte Blanche frá Björgvin, slær sér saman við Íslenska dansfl okkinn og fl ytja fl okkarnir tveir saman verkið Ambra í þrígang hér í vikunni á Listahátíð og fara síðan á Tónlistarhátíðina í Bergen og ljúka sýningum þar. Höfundurinn er Ina Christel Johannessen og verkið heitir Ambra. DANSLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON Frá æfingum í Bergen í liðinni viku. Hjalti Rögnvaldsson, leikari og ljóð- aunnandi, heldur uppteknum hætti annað kvöld í Iðnó en þar hyggst hann lesa öll ljóð Sigfúsar Daðasonar en um þessar mundir er þess minnst að áttatíu ár eru liðin frá fæðingu skáldsins. Hjalti hefur áður lagst í maraþonlestur á heildarsafni ljóða merkra skálda á tímamótum. Er skemmst að minnast lesturs hans fyrr í vetur á ljóðmælum Þorsteins frá Hamri sem dró að sér marga áheyrendur og stóð fram á nótt. Í fyrra kom út greining Þorsteins Þorsteinssonar á ljóðheimi og verki Sigfúsar og hlaut mikið lof, með‘al annars hin íslensku bókmenntaverðlaun. Var þar svipt hulu af mörgum óskýrum og földum kimum og strengjum í ljóðmælum Sigfúsar, tengslum hans við erlend skáld sem voru mikilvirk á fyrra helmingi síðustu aldar og höfðu mótandi áhrif á hinn unga Snæfelling. Skýrðir staðir í höfundarverki Sigfúsar urðu ljósari, erindi hans brýnna, hugsun hans beittari eftir þá bók. Í vikunni voru afhent Landsbókasafni öll gögn Sigfúsar við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðu. Þá er komið út hjá Forlaginu ljóðasafn Sigfúsar sem geymir öll hans ljóð en fyrr var komið út ritgerðasafn hans. Fylgir ljóðasafninu ljóðdiskur með upplestri skáldsins á eigin verkum. Reyndir flytjendur hafa til þessa ráðist í upplestur á ljóðum Sigfúsar og sumir borið sig undan þeim hljóða og þunga straumi tilfinninga sem í ljóðum hans leynist. Nú gefst unnend- um ljóðalesturs tækifæri til að eiga fund við skáldið. Lesturinn í Iðnó hefst kl. 17 á morgun en þá verður lesið úr Ljóðum 1947-1951 frá 1951, kl. 19 verður farið með ljóðin úr Hendur og orð frá 1959. Fá ein ljóð frá 1977 og Útlínur bakvið minnið frá 1987 verður flutt kl. 21 og kl. 23 eru á dagskránni ljóð bókanna Provence í endursýn (1992) og Og hugleiða steina frá 1997. Aðgangur er öllum velkominn meðan húsrúm leyfir en gestir eru beðnir að koma tímalega svo ekki verði rask á lestrinum eftir að upplesturinn hefst hverju sinni. Hjalti les ljóð Sigfúsar í Iðnó Sigfús Daðason (1928-1996) gáfu hjá dönsurunum, sem aftur verður til að kveikja nýja sköpun- arneista hjá danshöfundunum. Carte Blanche er rekinn af norska ríkinu, Hörðalandssýslu og Björgvin og er til húsa í Naustinu þar í bæ. Flokkurinn setur fjögur til fimm verk á svið á ári hverju en sýningar hans í Björgvin og annars staðar í Noregi eða erlendis nálg- ast sjöunda tuginn. Frá árinu 2000 hefur flokkurinn aukið við áhorf- endahóp sinn og sýnir nú fyrir um 20.000 manns á ári hverju. M YN D : TH O R BRØ D RESKIFTÍD /CA RTE BLA N CH E

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.