Fréttablaðið - 18.05.2008, Qupperneq 38
ATVINNA
18. maí 2008 SUNNUDAGUR2012
SPENNANDI STARF
Í GÓÐU STARFSUMHVERFI
Flugfjarskipti ehf hafa ákveðið að halda námskeið í fl ugfjar-
skiptum þann 25. ágúst 2008. Áætluð lok náms með starfs-
þjálfun eru í febrúar 2009. Þeim sem standast próf verður
boðið starf fl ugfjarskiptamanna við ,,Iceland Radio”. ,,Iceland
Radio” sér um öll almenn fjarskipti við alþjóðafl ug í íslenska
úthafsfl ugstjórnarsvæðinu. Starfsstöð verður í Reykjavík.
Námið er tvíþætt. Fyrri hlutinn sem er bóklegt og verklegt
nám, fer fram í skóla Flugstoða ohf, en seinni hlutinn sem er
starfsþjálfun, fer fram hjá Flugfjarskiptum ehf. Nemendur eru
á launum á námstímanum.
Hæfniskröfur:
• Umsækjendur skulu hafa lokið stúdentsprófi eða sambæri
legri menntun, hafa góða enskukunnáttu, tala skýrt mál,
auk þess að fullnægja tilskyldum heilbrigðiskröfum.
• Við leitum starfsmanna með góða samskiptahæfi leika,
lipra og þægilega framkomu, sýna frumkvæði í starfi , og
geta unnið undir álagi.
Í boði er spennandi starf í öruggu og góðu starfsumhverfi .
Frekari upplýsingar um starfi ð má fi nna á heimasíðu Flug-
fjarskipta: www.gannet.is. Einnig svarar Reynir Eggertsson,
deildarstjóri, fyrirspurnum í síma 563-6530 eða re@gannet.is
Skrifl egar umsóknir með ítarlegum upplýsingum um fyrri
störf og reynslu, ásamt mynd sendist Flugfjarskiptum ehf,
Sóleyjarima 6, 112 Reykjavík, fyrir 1. júní næstkomandi.
Sakarvottorð fylgi umsókn. Hægt er að nálgast umsóknar-
eyðublöð á heimasíðu Flugfjarskipta: www.gannet.is
Öllum umsóknum verður svarað.
Flugfjarskipti ehf er að fullu í eigu Flugstoða ohf og sinnir tal- og
gagnaviðskiptum við alþjóðafl ug í íslenska fl ugstjórnarsvæðinu.
Starfsmenn fyrirtækisins eru um 45 og starfssemin er á Íslandi, í
Færeyjum og á Grænlandi. Flugfjarskipti ehf leggja áherslu á jafnan
rétt karla og kvenna til starfa.
Vantar þig smiði, múrara, járnabindingamenn
eða hjúkrunarfræðinga?
Höfum á skrá fólk sem að óskar eftir mikilli vinnu.
Getur hafi ð störf nú þegar.
Proventus starfsmannaþjónusta s. 661 7000
Menntasvið
Laus er staða aðstoðarskólastjóra Hagaskóla.
Skólinn er safnskóli á unglingastigi með 560 nemendur. Til
náms í Hagaskóla koma nemendur út Grandaskóla, Melaskóla
og Vesturbæjarskóla. Í Hagaskóla er lögð áhersla á fjölbreytt
námsframboð, fjölbreytta kennsluhætti og námsmat, virðingu,
væntumþykju og vellíðan, þekkingarsamfélag, upplýsingamiðl-
un milli heimila og skóla og öfl ugt menningar- og listalíf. Haga-
skóli fylgir stefnu Reykjavíkurborgar í átt að einstaklingsmiðuðu
námi, samvinnu nemenda og skóla án aðgreiningar.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur:
- Kennaramenntun
- Reynslu af kennslu og félagsstarfi unglinga
- Reynslu af þróunarstarfi í skólum
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
- Þekking á hagnýtingu upplýsingatækni í skólastarfi
- Stjórnunarhæfi leika
- Metnað til að veita faglega forystu á sviði kennslu og
þróunar í skólastarfi
Frekari upplýsingar um starfi ð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur og
viðkomandi stéttarfélags
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til 16. júní 2008. Umsóknum fylgi yfi rlit um
nám og störf auk annarra gagna sem málið varðar.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfi ð á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is
Upplýsingar um starfi ð gefa S. Ingibjörg Jósefsdóttir
skólastjóri Hagaskóla í síma 535 6500 og 664 8210,
singibjorg@hagaskoli.is og Valgerður Janusdóttir starfsmanna-
stjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar, sími 411 7000,
valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Aðstoðarskólastjóri Hagaskóla
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
ÍSLAND
Holtasmára 1
201 Kópavogur
Sími: 517 6699
Fax: 517 6698
HONG KONG
Unit 3, 28/F, Greenfield Tower, Concordia Plaza,
No. 1 Science Museum Road, TST East, Kln, HK
Sími: +852 2368 6016
Fax: +852 2368 6056
LONDON
10-11 Percy Street,
London W1T 1DA
Sími: +44 (0)20 7193 5598
www.mind.is
MIND ehf er brautryðjandi á sviði gagnvirkra, rafrænna leikfanga og tölvuframleiðslu fyrir
börn. Okkar markmið er að framleiða áhugaverðar og fræðandi lausnir, með áherslu á
skemmtun og menntun. Við bjóðum upp á skapandi, alþjóðlegt starfsumhverfi með
tækifærum til að taka þátt í þróun uppbyggilegra nýmiðlaverkefna fyrir yngstu kynslóðina.
PRÓFARI
Meginverkefni eru prófunaráætlanir, gerð prófanatilvika og framkvæmd
hugbúnaðarprófana: virknisprófanir, tækjaprófanir, viðtökuprófanir og skjölun prófana.
Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, kerfisfræði eða
upplýsingatækni – og gjarnan menntun eða námskeið á sviði hugbúnaðarprófana.
Krafist er sjálfstæðra, agaðra og nákvæmra vinnubragða.
VEFFORRITARI
Verkefni veforritara eru hönnun, kóðun og rekstur vefumsýslu- og vefkerfa, m.a.
fyrirtækisvefs, vöru- og söluvefs. Gert er ráð fyrir þróunarverkefnum á sviði
barnamenningar, t.d. í menntun og skemmtimennt. Umsækjandi þarf að hafa reynslu
af Unix/Linux, SQL-gagnagrunnum ásamt því að þekkja vel til vefþjónusta, vefforritunar,
HTML, Javascript, CSS og XML. Reynsla af flash-forritun, leikjagerð og námsefnisgerð er
mikill kostur.
FORRITARI – VERKEFNASTJÓRI
Meginverkefni eru forritun og aðlögun hugbúnaðar fyrir börn á sviði leikja, menntunar og
skemmtimenntar, verkefnastjórn hugbúnaðargerðar og þátttaka í útgáfustjórn. Hæfileikar
til greiningar hugbúnaðar, góð þekking á viðmótshönnun og mismunandi virkniþáttum
áskilin. Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, kerfisfræði eða
upplýsingatækni, reynslu í forritun í C/C++ og góða þekkingu í scriptmálum Linux/Unix.
Reynsla í leikjaforritun, flash-forritun og mobile-forritun er kostur.
Við leggjum áherslu á að starfsmenn tileinki sér nýjungar og vinni að framleiðslu með
stöðugum endurbótum. Mikilvægt er að geta unnið vel í hópi og tileinka sér vinnubrögð
sem byggja á samvinnu og frumkvæði.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Einar Þórðarson í síma: 664-6962 eða et@mind.is.
Leita má frekari upplýsinga á www.mind.is.
MIND ehf er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum.
Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn ásamt ferilskrá á radning@mind.is
fyrir 23.maí.