Fréttablaðið - 18.05.2008, Side 76
MENNING 46
Kassinn með Heildarútgáfu Bergþóru Árna-
dóttur hefur að geyma fimm geisladiska og 64
síðna bók. Bergþóra sendi á ferlinum frá sér
fjórar sólóplötur, Eintak sem kom út 1977,
Bergmál (1982), Afturhvarf (1983) og Í seinna
lagi (1987). Allar þessar plötur eru að sjálf-
sögðu í kassanum með aukalögum, en líka
fimmta platan, Skref fyrir skref sem hefur að
geyma 18 hljóðritanir frá árunum 1985-2005.
Bergþóra andaðist í Danmörku 8. febrúar
2007, en þar bjó hún síðustu ár ævi sinnar.
Bergþóra var fædd 15. febrúar 1948. For-
eldrar hennar voru bæði hljóðfæraleikarar
þannig að hún ólst upp umlukin tónlist. Hún
kom fyrst fram á skemmtikvöldi í Lídó í
desember 1967, en fyrstu lögin sem hún sendi
frá sér komu út á safnplötunni Hrif 2 árið
1976 á vegum ÁÁ-útgáfu Ámunda Ámunda-
sonar.
Næstu tíu árin var Bergþóra mjög virk í
tónlistarlífinu bæði sem sólólistamaður og
meðlimur í hljómsveitum og samstarfsverk-
efnum. Hún var m.a. í hljómsveitunum Tríó
túkall og Hálft í hvoru og var virkur meðlim-
ur í Vísnavinum. Hún tengdist líka baráttu-
samtökum á vinstri vængnum, spilaði á
vegum Menningarfélags alþýðu og studdi
baráttuna fyrir herlausu landi með Heima-
varnarliðinu sem sendi frá sér plötuna Eitt
verð ég að segja þér árið 1979. Bergþóra starf-
aði með fjölmörgum tónlistarmönnum á ferl-
inum. Meðal þeirra má nefna Aðalstein
Ásberg Sigurðsson (sem hefur umsjón með
Heildarútgáfunni), Gísla Helgason, Eyjólf
Kristjánsson, Pálma Gunnarsson, Tryggva
Hübner, hinn norska Geir-Atle Johnsen og
Graham Smith.
Vinskapur við ljóð
Aðalsteinn Ásberg segir í texta sínum um
hljómplötuna Bergmál að lögin á henni séu
sprottin upp úr vinskap Bergþóru við ljóð.
Bergþóra samdi flest lögin sem hún flutti
sjálf, en við texta annarra. Framan af voru það
ljóðskáld eins og Steinn Steinarr, Davíð Stef-
ánsson, Tómas Guðmundsson, Hannes Péturs-
son og Halldór Laxness, en þegar leið á feril-
inn urðu samtímahöfundar meira áberandi og
Bergþóra sjálf samdi nokkra texta líka.
Tónlistin á þessum fimm diskum er fjöl-
breytt og nokkuð misjöfn að gæðum. Þjóðlaga-
áhrif ýmiskonar eru áberandi í útsetningun-
um, en hljómurinn og áferðin eru líka lituð
tíðarandanum. Það sem stendur upp úr hjá
Bergþóru allan ferilinn eru næmni fyrir mel-
ódíu og söngurinn hennar sem bregst aldrei.
Bergþóra á mörg frábær lög sem flestir
þekkja bæði í flutningi hennar sjálfrar og ann-
arra, þ.á.m. má nefna Verkamaður, Lífsbókin,
Hveragerði, Gott er að lifa og Einu sinni þú.
50 aukalög
Það er óhætt að hrósa aðstandendum þessar
útgáfu fyrir vel unnið verk. Alúðin og metnað-
urinn sem einkennir hana eru einstök. Kass-
inn sjálfur hefur kannski ekki yfir sér sama
glæsileikann og nýlegur kassi Þursanna, en
hvað alla aðra þætti varðar þá eru vinnubrögð-
in til fyrirmyndar. Eins og áður segir eru allar
fjórar sólóplötur Bergþóru í kassanum, en
þær eru drekkhlaðnar af aukaefni. Á þessum
fjórum diskum eru hvorki meira né minna en
32 aukalög. Lög af safnplötum og plötum með
samstarfsverkefnum eru áberandi, en líka
sjónvarpsupptökur og tónleikaupptökur.
Fimmti diskurinn er svo safn af 18 lögum frá
síðustu tuttugu árunum sem Bergþóra tók upp
tónlist.
Og svo er það bókin. Í henni eru allir text-
arnir, nákvæmar og ítarlegar upplýsingar um
allar plöturnar sem Bergþóra átti lög á og glás
af myndum. Og svo er saga Bergþóru sem er
bæði dramatísk og heillandi rakin af Aðal-
steini Ásbergi í nokkuð löngum texta sem
stiklar á stóru í persónulegu lífi söngkonunnar
og rekur tónlistarferil hennar af nákvæmni.
Bergþóru Árnadóttir var merkilegur tón-
listarmaður sem hvarf af sjónarsviðinu allt of
snemma. Þessi Heildarútgáfa gerir henni
mjög góð skil. Trausti Júlíusson
BERGÞÓRA ÁRNADÓTTIR
Heildarútgáfa - kassi með fimm diskum
★★★★
Alúð og vandvirkni einkenna alla vinnu við þennan fimm diska pakka með tónlist Bergþóru
Árnadóttur. Heildarútgáfa sem stendur undir nafni.
Heildarútgáfa sem stendur undir nafni
Bergþóra Árnadóttir söngvaskáld.
14