Fréttablaðið - 18.05.2008, Síða 80

Fréttablaðið - 18.05.2008, Síða 80
EINKAFLUGMANNSNÁM ATVINNUFLUGMANNSNÁM FLUGKENNARANÁM 20 18. maí 2008 SUNNUDAGUR Hinn íslenski Andabær Föstudaginn síðastliðinn voru 25 ár liðin frá því að vinir okkar í Andabæ hættu að tala dönsku og fóru að góla hver á annan á móðurmáli okkar þeg- ar fyrsta íslenska Andrésar andarblaðið leit dagsins ljós. Af því tilefni fékk Júlía Margrét Alexandersdóttir þrjá valinkunna einstaklinga til að segja til um hvaða þjóðþekktu einstaklingar líktust mest Andrési önd, Mikka mús og Hexíu de Trix. ➜ ÁLITSGJAFAR FRÉTTABLAÐSINS DRÖFN ÖSP SNORRADÓTTIR KRISTJÁN B. JÓNASSON GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON ANDRÉS ÖND G: Davíð Oddsson. Dálítið uppstökkur, samt fyndinn. Verður oft reiður og segir eitthvað sem fáir skilja. Eins og Andrés. K: Andrés Önd er hinn ódrepandi fótgönguliði kapítalismans, smáborgarinn sem er sífellt sannfærður um að einhver hafi það betra hann, sé framar honum eða sé að stela einhverju af sér. Hvert einasta ævintýri hans, hvort sem það er heima í garði eða inn í myrkum frumskógum Amasón, miðar að því að sanna fyrir umheimin- um að hann sé stór karl hvað sem hver segir. Fyrir vikið er ljóst að honum mun í sífellu mistakast því hann hefur í raun ekki hæfileika til eins né neins nema að vera stöðugt reiður og argur en um leið útsjónarsamur við að redda sér á sem allra billegastan og aumlegastan hátt út úr öllum vandræðum. Næstum hvert íslenskt heimili hefur einn Andrés önd. D: Pétur Jóhann er alveg eins og Andrés önd. Og aldrei í buxum. GEORG GÍRLAUSI K: Enginn Íslendingur er jafn slyngur í að stinga upp á hinu fáránlega í bland við hið snilldarlega og Ómar Ragnarsson. Eitt sinn lýsti hann því í sjónvarpinu hvernig væri hægt að stökkva út úr Herkúlesflugvél á snjósleða yfir Vatnajökli og lenda á réttum kili og fannst þetta sjálfsagt mál að prófa en hann sagði líka árið 1975 að rafbílar væru framtíðin. D: Kári Stefánsson á þennan titil skuldlausan. G: Ólafur F. Magnússon. Eins og Georg reynir hann að láta verkin tala, en það tekst ekki alltaf. LITLI HJÁLPARI G: Jakob F. Magnússon. Reynir að hjálpa Ólafi, en það tekst ekki alltaf. D: Birgir Ármannsson. Alltaf sendur í reddingar þegar Sjallarnir eru í ruglinu. K: Ísland á marga litla hjálpara. Einn kemur upp í hug- ann, Jón Kristinn Snæhólm. HEXÍA DE TRIX D: Ragnhildur Gísladóttir. Er svona á pörtum að sporta alveg sama útliti og Hexia. K: Hexía de Trix er ódrepandi fúlmenni sem er jafnframt laust við að vera klaufalegt og bjálfalegt líkt og hinir miklu óvinir smáborgaraheimsins í Andabæ, Bjarnarbófarnir. Bjarnarbófarnir eru dæmigerðir „góðkunningjar lögreglunnar“ en Hexía de Trix er hinn ógurlegi „land developer“ sem kaupir tvö herbergi í gömlu sætu timurbúsi og lætur geðveika eiturlyfjasjúklinga með rottweiler- hunda ríða þar húsum uns allur kofinn er hennar. G: Jónína Benedikts- dóttir. Eins og Hexía er hún í stríði við auðvaldið. MIKKI MÚS K: Elsta Andabæjardýrið, frummyndin sjálf, er hin vinalega og sæta mús sem, öfugt við spegilmynd sína Andrés, er ekki jafn skelfilega viðskotaill. Mikki er blíðlyndur piparsveinn sem er lífsglaður og kátur. Einhvern veginn væru þeir Mikki og Hemmi Gunn ekki óáþekkir. D: Páll Óskar, framkvæmdaglöð tísku- drós, sem hikar ekki við að fara í hvíta hanska og doppótt náttföt. G: Gísli Marteinn Baldursson. Góð- hjartaður náungi en hlutirnir fara ekki alltaf eins og hann ætlaði. MÍNA MÚS G: Hanna Birna Kristjánsdóttir. Sýnir samstöðu með Mikka mús opinberlega, en hver veit hvað hún ætlar sér? K: Ef Andrés önd er í hverju húsi þá er Mína mús konan hans. Hún tekur aldrei ábyrgð á neinu sem gerist en vísar stöðugt hverju smáviðviki til Mikka sem er í stöðugri leit að viðurkenningu og lætur því tilætlunarsemi og brigsl um sviksemi möglunar- laust yfir sig ganga. Mína mús er meira fyrir að stýra öðrum en framkvæma sjálf og leggur stundum á sig miklu meira erfiði við að fá aðra til að koma því um kring sem hún hefði auðveldlega getað sjálf gert. D: Kolfinna Baldvins. Hún er bara svo mikil mús. Hlédræg, lágvær og til baka.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.