Fréttablaðið - 18.05.2008, Page 90
30 18. maí 2008 SUNNUDAGUR
FÓTBOLTI Leikur Portsmouth og Cardiff í gær
fer ekki í sögubækurnar fyrir skemmtanagildi.
Hermanni Hreiðarssyni gæti ekki verið meira
sama um það. Hann náði hápunkti ferils síns í
gær þegar hann kyssti silfraða bikarinn, verð-
launagrip fyrir sigur í elstu bikarkeppni
heims.
Sigurinn tryggði einnig sæti Portsmouth í
UEFA-bikarkeppninni á næsta tímabili sem
verður fyrsta Evrópuævintýri félagsins.
Í þrettán ár höfðu fjögur stórliðin á Eng-
landi, Arsenal, Chelsea, Liverpool og Manchest-
er United, unnið bikarinn. En með marki frá
Kanu í fyrri hálfleik, þar sem hann skóflaði
boltanum inn eftir að Peter Enkelman sló fyrir-
gjöf frá, batt enda á það. Portsmouth varð bik-
armeistari árið 1939 og er þetta fyrsti titill
félagsins síðan.
Hermann varð atvinnumaður á Englandi árið
1997 þegar hann gekk í raðir Crystal Palace.
Það hefur því tekið hann ellefu ár að ná í bikar
og honum var svo sannarlega létt. „Þetta er
búið að taka sinn tíma,“ sagði Hermann. Hann
hefur leikið í öllum atvinnumannadeildum
Englands og raunar oftar tekið þátt í botnbar-
áttu í stað þess að berjast um titla.
„Þetta er gríðarlegur léttir, við höfum beðið
lengi eftir þessu,“ sagði Hermann sem lítur á
sigurinn í bikarkeppninni sem hápunkt ferils
síns. „Þetta er langbesti árangur sem ég hef
náð. Þetta er stórkostlegt,“ sagði Hermann.
Leikurinn sjálfur var eins og áður sagði
bragðdaufur. Cardiff byrjaði betur og átti
raunar nokkkrar álitlegar sóknir. David James
var vel á verði allan tímann og stóð vaktina í
markinu vel. Kanu skoraði svo og staðan í hálf-
leik var 1-0.
Cardiff náði reyndar að skora í síðari hálf-
leiknum en markið var dæmt af vegna hendi.
Réttur dómur þar á ferð. Leikurinn fjaraði svo
í raun út og leikmenn Portsmouth böðuðu sig í
kampavíni, trölluðu og fögnuðu með þúsund-
um stuðningsmanna sinna langt eftir leik.
Þjóðhátíðardagur þeirra bláklæddu. Á
meðan sat 1. deildarliðið eftir með sárt
ennið en það getur svo sannarlega
borið höfuðið hátt eftir frábæran
árangur.
„Þetta er frábært,“ sagði Harry
Redknapp, stjóri Portsmouth,
um sinn fyrsta titil sem leik-
maður og stjóri. „Draumur
minn er að rætast og þetta
hefur verið frábær dagur
fyrir alla, leikmenn og stuðn-
ingsmenn. Cardiff setti mikla
pressu á okkur og við þurftum
að verjast erfiðum sóknarlot-
um þeirra. Vörnin var frábær,“
sagði Redknapp en Hermann
fær fína dóma fyrir leik sinn í
gær.
„Þetta er besta augnablik
lífs míns,“ sagði Kanu,
sem skoraði sigurmarkið.
„Mér líður vel, ég er
ánægður. Ég klúðraði
góðu færi en ég er einn
af reyndari leikmönnum
liðsins og maður verður
bara að halda áfram.
Þegar stuðningsmenn
okkar standa svona vel
við bakið á okkur er ekki
annað hægt en að berjast
fyrir þá,“ sagði Kanu.
- hþh
Hápunktur Hermanns á ferlinum
Hermann Hreiðarsson varð í gær enskur bikarmeistari með Portsmouth. Hermann segir þetta vera
hápunktinn á sínum ferli. Hann er fyrsti Íslendingurinn sem vinnur þessa elstu bikarkeppni heims.
ÁNÆGÐIR Glen Johnson, Hermann og Sulley Muntari hlaupa um með bikarinn á Wembley í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Það er heldur betur farið að hitna í kolunum í NBA-körfuboltanum þar sem úrslitin nálgast:
Kobe Bryant leiddi Lakers í úrslitin
NBA Los Angeles Lakers mætir New Orleans Hornets eða
San Antonio Spurs í úrslitum Vesturstrandar í NBA körfu-
boltanum eftir sigur á Utah Jazz í fyrrinótt, 108-105. Þetta er
í fyrsta sinn í fjögur ár sem Lakers kemst í úrslit sinnar
deildar en Lakers vann einvígið við Utah 4-2.
Úrslitin réðust á lokasekúndunum en bæði Paul Millsap
og Deron Williams skutu þá þriggja stiga skotum fyrir Jazz
sem geiguðu. Lakers fór því með sanngjarnan sigur af hólmi
en Kobe Bryant fór fyrir sínum mönnum, eins og svo oft
áður, hann skoraði 34 stig, tók átta fráköst og gaf sex stoð-
sendingar.
„Þetta er stórt skref hjá okkur. Við sýndum mikinn kar-
akter með því að koma hingað og vinna. Þetta hefur verið
frábær för og við viljum halda sigurgöngunni gangandi. Það
er mikið afrek að komast í úrslit deildarinnar en við trúum
því að við getum afrekað stærri og meiri hluti,“ sagði vígreif-
ur Bryant eftir leikinn.
Pau Gasol skoraði sautján stig fyrir Lakers og Derek Fis-
her sextán en Williams var stigahæstur hjá Utah með 21
stig. Leikmenn Jazz gerðu vel í að gera leikinn spennandi en
þeir voru nítján stigum undir í hálfleik.
Oddaleikur í Austrinu
Dramatíkin heldur áfram hjá Cleveland Cavaliers og
Boston Celtics sem þurfa oddaleik til að skera úr um
hvort liðið mætir Detroit Pistons í úrslitum Austur-
strandarinnar. Cleveland vann leik liðanna í fyrrinótt
74-69.
Varnarleikur Cleveland var framúrskarandi og með
því að fara með gott forskot inn í hálfleikinn lagði liðið
grunninn að góðum sigri. Samt sem áður var Boston
aldrei langt undan en LeBron James átti frábæran leik
fyrir Cleveland og skoraði tæplega helming stiga síns
liðs, 32 talsins.
Þetta var sjötti tapleikur Boston á útivelli í röð í
úrslitakeppninni en heimavöllur liðsins er afar sterk-
ur. Þar hafa þeir unnið sjö leiki í röð og alls fimmtán af
átján oddaleikjum liðsins á heimavelli í gegnum tíð-
ina. Oddaleikurinn fer einmitt fram í Boston á mánu-
dag.
„Ég er ekki tilbúinn til að fara í sumarfrí,“ sagði
James. „Við getum unnið þá, við vitum það vel. Við
þurfum bara að sýna það.“ - hþh
KOBE Matt Harpring gerir hér
örvæntingafulla en árang-
urslausa tilraun til að stöðva
kappann. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
STUÐNINGSMAÐUR NÚMER EITT John Anthony er líklega harðasti stuðningsmaður Portsmouth.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SÁTTUR Eyjamaðurinn
gat skiljanlega ekki
leynt gleði sinni
með sigurinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Úrslit síðustu umferðar í gær:
Nordhorn - Lemgo 41-39
Logi Geirsson lék ekki með Lemgo.
Lübbecke - Füsche Berlin 30-26
Hvorki Þórir Ólafsson né Birkir Ívar Guðmunds-
son léku með Lübbecke.
Flensburg - Minden 28-29
Alexander Petersson skoraði þrjú mörk fyrir
Flensburg en Einar Hólmgeirsson ekkert. Einar
Örn Jónsson skoraði sex mörk fyrir Minden.
Wilhelmshavener Rhein-Neckar-Löwen 30-37
Gylfi Gylfason skoraði sex mörk fyrir Wilhelmsh.
Gummersbach - Magdeburg 33-35
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir
Gummersbach og Róbert Gunnarsson sjö.
Hamburg - Göppingen 29-24
Jaliesky Garcia skoraði eitt mark fyrir Göppingen.
HBW Balingen - Großwallstadt 35-30
Essen - Melsungen 35-35
Kiel - Wetzlar 35-26
Lokastaða efstu og neðstu liða:
1. Kiel 61 stig
2. Flensburg 54 stig
3. Hamburg 54 stig
4. Rhein-Neckar-Löwen 52 stig
5. Nordhorn 50 stig
6. Gummersbach 41 stig
7. Lemgo 39 stig
8. Magdeburg 37 stig
-------------------------------------
15. Minden 18 stig
16. Essen (fer í umspil um laust sæti) 18 stig
17. Lübbecke 18 stig
18. Wilhelmshavener 14 stig
ÞÝSKI HANDBOLTINN
HANDBOLTI Sigur hjá Einari Erni
Jónssyni og félögum hans í
Minden þýddi að félagið bjargaði
sér frá falli úr þýsku úrvalsdeild-
inni en sendi um leið Lübbecke
niður í 2. deild. Með því liði leika
Birkir Ívar Guðmundsson og
Þórir Ólafsson.
Minden vann stórlið Flensborg-
ar 29-28 á útivelli og skoraði
Einar sex mörk. Lübbecke vann
reyndar sinn leik en þar sem
önnur úrslit voru því ekki í hag
fellur það niður um deild. Birkir
og Þórir fylgja því Gylfa Gylfa-
syni sem fellur með liði sínu
Wilhelmshavener. - hþh
Þýski handboltinn:
Einar Örn felldi
Birki og Þóri
BIRKIR Féll með Lübbecke í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Breiðablik setti met í
fyrra með því að gera jafntefli í
níu af átján leikjum sínum og það
lítur út fyrir að Blikar ætli að
reyna að bæta metið í ár.
Breiðablik hefur gert jafntefli í
fyrstu tveimur leikjum sínum og
um leið eru jafnteflin orðin
fjögur í röð því Blikar gerðu
jafntefli í tveimur síðustu
umferðum sínum í fyrra.
Blikar geta jafnað met geri þeir
jafntefli við KR í næsta leik því
aðeins eitt lið hefur gert fimm
jafntefli í röð síðan þriggja stiga
reglan var tekin upp 1984.
Víkingar gerðu fimm jafntefli í
röð sumarið 1990. - óój
Landsbankadeild karla:
Fjögur jafntefli
Blika í röð
EKKERT NEMA JAFNTEFLI Arnór Sveinn
Aðalsteinsson á fleygiferð gegn Þrótti.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN