Fréttablaðið - 18.05.2008, Blaðsíða 94
34 18. maí 2008 SUNNUDAGUR
Starfsári Kvikmyndaskóla Íslands er að ljúka um
þessar mundir, með tilheyrandi útskrift. Á meðal
útskriftarverkefna nemenda í ár er myndin Yfirborð,
eftir Stefán Friðrik Friðriksson, þar sem Ellert A.
Ingimundarson leikur leigubísstjóra sem fer í örlaga-
ríka ferð með fjárfesti vestur á land. Það er í annað
skiptið á stuttum tíma sem Ellert bregður sér í gervi
leigubílstjóra, en hann var í sama hlutverki í mynd-
inni Konfektkassanum eftir Guðrúnu Ragnarsdóttur,
sem frumsýnd var í Háskólabíói sumardaginn fyrsta.
„Það sem kemur til með að standa á legsteininum
verður væntanlega „Hann var góður í leigubílstjórun-
um“,“ segir Ellert og hlær, inntur eftir því
hvort bílstjórarnir séu að verða að sér-
grein hans. „Þeir eru samt gjörólík-
ir karakterar þótt þeir lendi
báðir í dálitlum hremming-
um í aksturstúrum,“
bætir Ellert við.
„Leigubílstjóri
númer tvö á í dálít-
ið mikilli sálar-
kreppu, en sá í Kon-
fektkassanum
lendir frekar í óþægileg-
um aðstæðum, og við
vitum minna um hann,“ útskýrir hann. Ellert er ekki
frá því að honum lítist vel á starfið. „Það er þá sér-
staklega ef bílarnir eru góðir, eins og sá í Konfekt-
kassanum. Það er númer eitt að hafa góðan bíl, og þá
á ég ekki við sömu merkingu og í gamla daga, þegar
það þýddi að hafa svolítið sprútt að bjóða upp á líka,“
segir hann kíminn. „Það er kannski fínt að geta gripið
í þetta núna þegar það fer að sverfa að í leiklistinni.
Maður er kominn með góða reynslu í að spjalla við
kúnna. Það er gott að vera leikari, maður er alltaf að
læra eitthvað,“ segir Ellert, sem kveðst þessa dagana
vera sjálfskiptur, sé bílalíkingum haldið til
streitu. „Ég er svona að bíða eftir því
að leikhúsin plani haustin hjá
sér, annars er ég bara að detta í
sumarfrí. Eða sumargírinn, að
minnsta kosti,“ segir hann.
HVAÐ SEGIR MAMMA?
Í asísku versluninni Global Store í
Brautarholti kennir ýmissa grasa.
Auk hinna ýmsu framandi sósa,
maríneringa og matvara sem þar
er að finna geta viðskiptavinir
einnig keypt lifandi filippeyska
krabba þar af og til.
„Við tökum inn vörur frá Fil-
ipps eyjum, Taílandi, Malasíu og
Indónesíu, svo eitthvað sé nefnt.
Það er allt frá frosnum fiski yfir í
asískan kókosís, sem er hvorki
með mjólk né rjóma,“ útskýrir Jón
Þór Karlsson, sem á búðina ásamt
konu sinni, Imeldu Sta Ana. Versl-
unin hefur verið starfrækt í um
hálft ár, en var áður til húsa í Skip-
holti. „Búðin er ekki stór, en það er
ýmislegt til í henni. Við erum með
vörur eins og kókosedik, sem fæst
ekki hvar sem er, sérstakar marín-
eringar fyrir kjöt og fisk og allt
þar á milli,“ útskýrir Jón Þór, sem
segir stóran hluta viðskiptavina
sinna eiga ættir sínar að rekja til
Asíu eða Suður-Ameríku, þó að
íslenskir sælkerar leggi leið sína
líka í verslunina. „Við erum með
ýmiss konar öðruvísi snakk sem
fólki finnst gaman að prófa, og
kemur þá gjarnan aftur til að prófa
eitthvað annað nýtt,“ segir hann.
Einu sinni til tvisvar í mánuði fær
Global Store svo sendingu af lif-
andi kröbbum, sem fluttir eru með
flugi frá Filippseyjum. „Það er
dálítið púsluspil að flytja þá inn,“
segir Jón Þór. „Þeir eru fluttir í
sjávarvatni, og það þarf að passa
að þeir hafi alltaf nægilegt vatn,
en þó ekki of mikið. Það má heldur
alls ekki verða of heitt, þá deyja
þeir,“ útskýrir hann.
Verslunin fær um fjögur, fimm
hundruð krabba í hverri sendingu,
en þeir rjúka allir út á tveimur
dögum, að sögn Jóns Þórs. „Það
eru aðallega Asíubúar og Suður-
Ameríkubúar sem kaupa krabbana.
Ég held að Íslendingar kunni bara
ekki mikið að fara með þá, þó að
einn og einn hafi tínt krabba um
ævina,“ segir Jón Þór. Hann lumar
hins vegar á uppskriftum fyrir þá
Íslendinga sem vilja prófa að elda
sér krabba, en kjötið úr þeim þykir
afar gómsætt. „Ég er til dæmis
með eina þar sem maður notar
sprite, hvítlauk, lauk og salt til að
sjóða krabbann. Í fyrsta skipti sem
ég sá hana hélt ég að manneskjan
sem gerði hana væri klikkuð, en
svo er þetta rosalega gott,“ segir
hann og hlær við. Það getur þó
verið dálítið fyrirtæki að elda
krabba, þar sem lítið kjöt er að
finna á hverjum og einum, og það
er ekki fyrirhafnarlaust að komast
að því. Jón Þór mælir samt sem
áður með því að íslenskir sælkerar
láti vaða, þó að þeir þurfi þá að
fylgjast vel með sendingum.
Global Store er til húsa að Braut-
arholti 16. sunna@frettabladid.is
JÓN ÞÓR KARLSSON: REKUR ASÍSKU VERSLUNINA GLOBAL STORE
Selur lifandi krabba í soðið
Hvað er að frétta? Allt gott. Ég er að
vinna sem aðstoðarleikstjóri í Borgar-
leikhúsinu á verki sem heitir Dauða-
syndirnar - gleðilegur guðdómleikur
og er byggt á Dante. Við frumsýndum
einmitt í síðustu viku.
Augnlitur: Blár.
Starf: Leikkona og aðstoðarleikstjóri.
Fjölskylduhagir: Í sambúð.
Hvaðan ertu? Af Seltjarnarnesinu.
Ertu hjátrúarfull? Nei, ég trúi að hver
sé sinnar gæfu smiður.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Núna
er það danski þátturinn Anna Phil.
Uppáhaldsmatur: Heimatilbúið ind-
verskt kjúklingakarrí.
Fallegasti staðurinn: Útsýnið heima
hjá mér yfir tjörnina og Fríkirkjuna í
Reykjavík. Ég hef oft ætlað að selja
íbúðina en tími því aldrei.
iPod eða geislaspilari: Það er ennþá
geislaspilari, ég er svo sein.
Hvað er skemmtilegast? Að vinna
með skemmtilegu fólki.
Hvað er leiðinlegast? Að skræla
kartöflur.
Helsti veikleiki: Á erfitt með að segja
nei.
Helsti kostur: Mjög jákvæð.
Helsta afrek: Að kaupa nýja dýnu í
rúmið mitt í síðustu viku, eitthvað sem
ég hef ætlað að gera í fjögur ár!
Mestu vonbrigðin: Að hafa ekki keypt
dýnuna fyrr.
Hver er draumurinn? Að halda áfram
að læra og fara í gott frí á einhverja
æðislega strönd.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Það
eru trúðarnir fjórir í Dauðasyndun-
um; Barbara, Úlfar, Gjóla og Za-ra.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Óréttlæti í fólki út af engu og
afskiptasemi.
Hvað er mikilvægast? Ástin.
ÁGÆTIS STARFSREYNSLA Ellert
A. Ingimundarson segir það ekki
slæmt að vera reyndur í hlutverki
leigubílstjóra, nú þegar sverfur að
í leiklistinni eins og í öðrum öngum
samfélagsins.
Sérhæfir sig í leigubílstjórum
„Við erum að leggja drög að mat-
reiðsluþáttum með þeim. Þættirn-
ir yrðu á dagskrá Stöðvar 2 ein-
hvern tímann með haustinu eða á
næsta ári. Þangað til verða þeir
með fasta innkomu hjá Íslandi í
dag í allt sumar og kenna þar þjóð-
inni að grilla, velja réttu vínin og
bara almenna kurteisi,“ segir
Pálmi Guðmundsson, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, sem hefur tryggt
sér þjónustu þeirra Begga og
Pacas, sigurvegara Hæðarinnar.
Óvissutímabilinu í kringum
parið hefur því loksins verið eytt
en dagblöð og vefmiðlar hafa und-
anfarna daga keppst við að flytja
fréttir af hugsanlegri endurkomu
þeirra í sjónvarpið. Pálmi stað-
festir að aðrir fjölmiðlar hafi sýnt
þeim áhuga en þeir hafi hvergi
annars staðar viljað vera. „Og við
vildum hafa þá,“ lýsir Pálmi
yfir.
Beggi og Pacas unnu hug og
hjörtu landsmanna í hönn-
unarþættinum Hæðin. Leið þeirra
var bæði grýtt og erfið því eins og
Fréttablaðið greindi frá voru þeir
reknir af veitingastaðnum Glóin
skömmu áður en þættirnir fóru í
loftið. Sambýlismennirnir standa
hins vegar eftir með pálmann í
höndunum því þeir fengu tvær
milljónir íslenskra króna í sinn
hlut fyrir sigurinn í þáttunum.
Vangaveltur hafa verið á kreiki
um hvort innkoma þessara vin-
sælu kokka marki endalokin hjá
sjónvarpskokki landsins, Jóa Fel.
Pálmi segir það víðs fjarri, Jói Fel
sé í fínum málum og lifi góðu lífi
hjá Stöð 2. Aðspurður hvort þessir
þrír heiðursmenn myndu
þá ekki rugla saman
reytum þegar fram
líða stundir segist
Pálmi ekki geta úti-
lokað það. „Sú þrenn-
ing yrði auðvitað ein-
hver sú
skemmtilegasta í
manna minn-
um.”
-fgg
Ævintýri Begga og
Pacas halda áfram
VINSÆLIR Beggi og Pacas eru sennilega vinsælustu kokkar landsins. Þeir eru ekki
lengur atvinnulausir því félagarnir verða með innslög í Ísland í dag í allt sumar.
„Hann hefur alltaf verið hreinn
og beinn og reynir af fremsta
megni að vera sanngjarn,
heiðarlegur og kurteis við alla.
Ef einhver maður er fyrir reglur
þá er það hann. Ég bið honum
alls hins besta í öllum hans
málum.“
Bryndís Svavarsdóttir, móðir Svavars
Lútherssonar sem starfrækir hina
umdeildu Torrent-heimasíðu.
HIN HLIÐIN SÓLVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR LEIKKONA
Spreytir sig sem aðstoðarleikstjóri í Borgarleikhúsinu
19.05.1977
ÖRUGGUR Dagar Jóa
Fel hjá Stöð 2 eru
síður en svo liðnir og
þessir frægu kokkar
gætu jafnvel ruglað
saman reytum
þegar fram líða
stundir.
FJÖLBREYTT VÖRUFRAMBOÐ Þó að Global Store sé lítil er þar ýmislegt að finna, að
sögn Jóns Þórs Karlssonar, sem á búðina ásamt konu sinni, Imeldu Sta Ana. Verslun-
inni berast meðal annars mánaðarlega sendingar af lifandi kröbbum, sem sælkerar
geta keypt sér í soðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VELJUM LÍFIÐ
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 8
1 Matthew McConaughey.
2 Akranesi, Ísafirði og Hafnarfirði.
3 Hermann Hreiðarsson.