Fréttablaðið - 29.05.2008, Síða 6
6 29. maí 2008 FIMMTUDAGUR
Á Ísland að hætta þátttöku í
Eurovision?
Já 47,2%
Nei 52,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga stjórnvöld að biðjast
afsökunar á hlerunum á kalda
stríðsárunum?
Segðu þína skoðun á visir.is
Ferðaskrifstofa
29. maí – 9., 12., 19. og 26.
júní
Opið virka daga frá kl. 10 til 18
og á laugardögum frá kl. 12 til 16
Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík
575 1230 - luxusbilar@bilaland.is. 575 1230
INNFLUTTUR
OG ÞJÓNUSTAÐUR
AF UMBOÐI
BMW 530XI
Nýskr: 11/2007, 3000cc 258 hö. fjórhjóladr.,
4 dyra, sjálfskiptur, grár, ekinn 6.000.
Verð 8.900.000
Nánari upplýsingar á www.samfylking.is
Hlustendur geta hringt inn í síma 588 1994
Umsjónarmenn:
Skúli Helgason og Katrín Júlíusdóttir
ORKUMÁL Ekki er ljóst hvort
Guðmundur Þóroddsson mun
snúa aftur í stól forstjóra
Orkuveitu Reykjavíkur hinn 1.
júní eins og til hefur staðið.
Guðmundur fékk leyfi frá
starfi forstjóra til að stýra
Reykjavik Energy Invest. Því
leyfi lýkur um mánaðamótin.
Kjartan Magnússon, stjórnar-
formaður OR og REI, vildi í gær
ekkert tjá sig um málið, en sagði
að framtíð Guðmundar muni
skýrast fyrir mánaðamót.
Guðmundur vísaði á kjörna
fulltrúa. Spurður hvort óvissan sé
erfið sagðist hann „ýmsu vanur“ í
þeim efnum. - bj
Leyfi forstjóra OR að ljúka:
Framtíð Guð-
mundar óráðin
DÓMSMÁL Fjórir menn eru ákærðir
fyrir að hafa staðið að og skipu-
lagt smygl á rúmlega 4,6 kílóum af
amfetamíni og nærri 600 grömm-
um af kókaíni frá Þýskalandi í svo-
kölluðu hraðsendingarmáli.
Þeir eru Annþór Kristján Karls-
son, Tómas Kristjánsson og bræð-
urnir Jóhannes Páll og Ari Gunn-
arssynir.
Efnin voru flutt til landsins með
hraðsendingarfyrirtækinu UPS,
þar sem Tómas starfaði og fundu
lögregla og tollur þau 15. nóvem-
ber í bifreið fyrirtækisins fyrir
utan húsnæði þess á Keflavíkur-
flugvelli.
Annþór Kristján Karlsson er
ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin
um smyglið með Ara með því að
hafa látið senda fíkniefnin frá
Þýskalandi til Íslands.
Annþór hugðist taka á móti þeim
hér. Hann afhenti Ara 10 þúsund
evrur, jafnvirði um 1,2 milljóna
króna, og 500 þúsund krónur í
reiðufé sem þóknun vegna inn-
flutningsins.
Tómas Kristjánsson er sakaður
um að hafa lagt á ráðin um inn-
flutninginn ásamt Jóhannesi Páli.
Samkvæmt ákæru á Tómas að
hafa notað sér aðstöðu sína sem
starfsmaður hraðsendingarfyrir-
tækisins UPS á Keflavíkurflug-
velli til þess að miðla til Jóhannes-
ar upplýsingum um hvernig haga
skyldi innflutningnum. - jss
EINN HINNA ÁKÆRÐU Annþór Kristján
Karlsson leiddur fyrir dómara.
Fjórir ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl:
Greiddi tæpar tvær milljónir
í þóknun fyrir fíkniefnasmygl
UMFERÐARMÁL Alls hafa 916 ein-
staklingar látist í umferðinni á
Íslandi á þeim 40 árum sem liðin
eru frá því að skipt var yfir í hægri
umferð, 26. maí 1968.
Þeirra var minnst í gær utan við
Dómkirkjuna í Reykjavík þar sem
nemendur í Listaháskóla Íslands
röðuðu 916 skópörum framan við
og við hliðina á kirkjunni. Var
verk nemendanna hugsað sem
táknmynd þeirra fórna sem
íslenska þjóðin hefur fært á
vegum landsins en á meðan var
kyrrðarstund í Dómkirkjunni.
Í tilkynningu frá Umferðarráði
segir að koma hefði mátt í veg
fyrir flest slysanna með aðgát, til-
litssemi og ábyrgð ökumanna.
Ábyrgð sem krefst þess að menn
séu með fulla athygli, allsgáðir,
noti tilheyrandi öryggisbúnað og
aki samkvæmt aðstæðum. Til sam-
anburðar má líkja fjölda látinna í
umferðinni á tímabilinu við það að
rétt tæplega fjórar Boeing 757 300
flugvélar hefðu farist eða að allir
íbúar Bolungarvíkur eða Blöndu-
óss hefðu farist.
Af þessum 916 einstaklingum
hafa 150 látist vegna aksturs eftir
neyslu áfengis eða annarra vímu-
efna og um 180 látist af völdum
hraðaksturs. Þá létust um 120 ein-
staklingar vegna þess að ekki voru
notuð bílbelti og um 45 dauðsföll
eru rakin til þess að ökumaður
hafi sofnað undir stýri. Tæpur
þriðjungur látinna var innan við
tvítugt. - ovd
Fjöldi látinna í umferðinni á Íslandi á 40 árum jafngildir öllum íbúum Blönduóss:
Mikil er ábyrgð ökumanna
HUNDRUÐ SKÓPARA Skópörunum 916
var raðað upp utan við Dómkirkjuna í
Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALÞINGI Trúir stefnu sinni hikuðu
kommúnistar og sósíalistar hér á
landi ekki við að beita valdi í þágu
eigin málstaðar. Í því ljósi vildi lög-
regla hlera síma fólks á árum kalda
stríðsins og óskaði eftir milligöngu
dómsmálaráðuneytis um að fá
heimildir dómstóla til símhlerana.
Þetta sagði Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra í utandagskrár-
umræðu á Alþingi í gær um sím-
hleranir á árunum 1949 til 1968.
Helgi Hjörvar, Samfylkingu, ósk-
aði eftir að umræðan færi fram í
kjölfar greinar Kjartans Ólafsson-
ar í Morgunblaðinu í fyrradag.
Kjartan var á þessu árabili fram-
kvæmdastjóri Sósíalistaflokksins,
ritstjóri Þjóðviljans og þingmaður
Alþýðubandalagsins og var í hópi
fjölda fólks sem sætti hlerunum.
Helgi sagði það grundvallaratriði
í lýðræðissamfélagi að heiðarlegt
fólk þyrfti ekki að sæta
símhlerunum vegna stjórnmála-
skoðana. Ekki hafi verið færður
fram rökstuddur grunur um sak-
næmt athæfi þeirra sem hlerað var
hjá. Sagði hann mikilvægt að dóms-
málaráðherra viðurkenndi að við-
horf yfirvalda til símhlerana hefði
breyst og kallaði eftir afstöðu hans
til krafna um afsökunarbeiðni til
handa þeim sem máttu þola hleran-
ir á sínum tíma.
Björn Bjarnason sagði það tíðk-
ast að þeir sem teldu ríkisvaldið
gera eitthvað á sinn hlut sæktu rétt
sinn í samræmi við lög. Kvað hann
með öllu óþekkt að dómsmálayfir-
völd bæðust afsökunar vegna nið-
urstöðu dómara. Látið væri eins og
dómarar hafi verið valdalaus verk-
færi í höndum dómsmálaráðherra.
Í því fælist dæmalaus óvirðing við
þá dómara sem í hlut ættu. Benti
Björn á að sakadómarinn Þórður
Björnsson, framsóknarmaður og
eindreginn andstæðingur Sjálf-
stæðisflokksins, hefði veitt heimild
til símhlerunar 1968. Spurði hann
hvort trúverðugt væri að hann
hefði heimilað dómsmálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins að stunda pól-
itískar njósnir um andstæðinga
sína.
Björn sagði að ekki mætti gleyma
að Sósíalistaflokkurinn – flokkur
Kjartans Ólafssonar – hafi haft á
stefnuskrá sinni að ná völdum í
landinu með ofbeldi. Sagði hann
líka að formaður miðstjórnar
flokksins, Brynjólfur Bjarnason,
hefði hótað þingmönnum aftöku
áður en atkvæði voru greidd um
inngöngu Íslands í Nató. Í ljósi
þessa og fleiri þátta sé skýringu á
símhlerunum lögreglu að finna.
Þær hafi verið varnaðarráðstöfun.
Helgi Hjörvar sagði ræðu Björns
valda sér vonbrigðum og áhyggj-
um. Hann hafi talið kalda stríðinu
lokið. Sagði hann Björn hafa vegið
að látnu fólki.
Björn kvaðst að endingu ekki
skorast undan umræðu um þessi
mál, hann vissi nákvæmlega um
hvað hann væri að tala. Hræsnin
væri orðin of mikil ef ekki mætti
ræða liðna atburði.
bjorn@frettabladid.is
Eðlilegt að hlera
síma vinstrimanna
Dómsmálaráðherra segir símhleranir á kalda stríðsárunum hafa verið varnað-
arráðstafanir lögreglu. Kommúnistar og sósíalistar hafi ekki hikað við að beita
valdi í þágu málstaðar síns. Helgi Hjörvar segir ráðherrann vega að látnu fólki.
HLUSTAÐ Símar Kjartans Ólafssonar og Páls Bergþórssonar voru hleraðir á tímum
kalda stríðsins. Þeir fylgdust með umræðunum á Alþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KJÖRKASSINN