Fréttablaðið - 29.05.2008, Qupperneq 38
SUMAR UNGA FÓLKSINS
29. MAÍ 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● börn
SUMAR UNGA FÓLKSINS
Embla Diljá Challender er sex ára gömul og í 1. bekk.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ég ætla að fara til Akureyrar, í útilegur og til Ameríku, ég hef aldrei farið
til Ameríku áður. Ég fer líka á fótboltanámskeið.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á sumrin?
Mér finnst skemmtilegast að leika mér úti.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á veturna?
Mér skemmtilegast að fara á sleða.
Ætlar til Ameríku
Emblu Diljá finnst fátt skemmtilegra en að vera úti að leika. FRETTABLAÐIÐ/ANTON
Óli Gunnar Gestsson er fimm ára og byrjar í skóla næsta haust.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ég ætla að fara í útilegu upp í sveit, í sund og í bíó. Ég ætla líka að fara í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Ég fer svo til Kína, en mamma veit það
ekki ennþá.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á sumrin?
Það er að fara til útlanda og í útilegu.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á veturna?
Að búa til snjókarl.
Fer alla leið til Kína
Óli Gunnar hefur hugsað sér að ferðast á milli heimsálfa í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Verslunin Spilavinir á Lang-
holtsvegi 126 er engin
venjuleg búð. Þar getur fólk
spreytt sig í hinum ýmsu
spilum og fimmtudagskvöld
eru sérstök spilakvöld.
Svanhildur Eva Stefánsdóttir,
verslunarstjóri í Spilavinum,
kveðst mikil áhugamanneskja
um spil og það leynir sér held-
ur ekki þegar litið er í kringum
hana. Spilin virðast óteljandi en
hún upplýsir að þau séu á þriðja
hundrað svo allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi. „Hér eru
spil og púsl fyrir allan aldur, frá
tveggja ára og upp úr. Spil til
að læra á klukku, þekkja litina,
þjálfa fínhreyfingar og auðvit-
að skemmta sér,“ segir hún og
sýnir líka svokölluð kænskuspil
sem hún segir henta vel fyrir
átta ára og eldri. „Í þeim þarf að
hugsa leiki fram í tímann.“
Svo eru það stokkarnir með spil-
unum 52. „Ef ég mætti taka eitt
spil með mér mundi ég velja
spilastokkinn. Honum fylgja
endalausir möguleikar. Hvort
sem menn eru einir, tveir, þrír,
fjórir eða fleiri.“ Svanhildur
telur spila- og kapla-
reglur hafa
verið í
kafi
síðustu
ár. „Það hefur
orðið rof í kunnátt-
unni milli kynslóða. Tölvan kom
og í dag kunna fáir krakkar að
leggja kapal með spilum. Þessu
vil ég breyta. Það fylgir því
ákveðin ró að leggja kapal. Spila-
bækur hafa ekki verið fáanlegar
í verslunum en bókasafnið á svo-
lítið af
þeim.“
Sjálf
kennir
hún
ýmis
einföld
spil á
staðnum og
á heimasíð-
unni www.spila-
vinir.is er nokkrum
spilum lýst.
Svanhildur kveðst hafa gaman
af að fá fólk inn til sín að spila en
hún vill líka koma spila áhuganum
inn á heimilin. „Það er svo þægi-
legt að taka í spil og það treystir
fjölskyldu- og vinaböndin.“
- gun
Gaman að taka í spil
Svanhildur Eva kveðst taka spilastokk-
inn fram yfir allt annað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Margrét Stefánsdóttir er einbeitt á svip.
Hér er stefnt á sigur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nammispilið er vinsælt. Það er
úr dúk og tré og hægt er að leika
með það úti þegar veður er gott.