Fréttablaðið - 03.06.2008, Side 10

Fréttablaðið - 03.06.2008, Side 10
 3. júní 2008 ÞRIÐJUDAGUR RÓM, AP Ráðamenn frá ríkjum heims streymdu til Rómar í gær til að taka þátt í ráðstefnu Matvæla- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, um þann vanda sem hækkan- ir á matvælaverði valda. Meðal þessara ráðamanna var Robert Mugabe, forseti Simbabve. Þetta er í annað sinn sem hann sniðgengur bann Evrópusambands- ins við því að hann og aðrir úr stjórn hans stigi fæti á foldu ESB- ríkjanna 27, en það getur hann þar sem sambandið getur ekki bannað honum að sækja sem þjóðhöfðingi fundi á vegum Sameinuðu þjóð- anna. Bann ESB var upprunalega sett árið 2002 sem þvingunar- aðgerð vegna mannréttindabrota stjórnar Mugabes. Þetta ferða- bann, sem gildir fyrir Mugabe sjálfan og um 100 aðra háttsetta menn úr stjórnkerfi Simbabve, var endurnýjað í fyrra. Þetta er fyrsta ferðalag Mugabes út fyrir landsteina Simbabve síðan hann hlaut næstflest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninga í lok mars. Meðal helstu viðfangsefna FAO- ráðstefnunnar er að leita leiða til að tryggja nægt framboð á mat- vælum þar sem skorturinn er mestur, en það á ekki síst við um Afríku sunnan Sahara, þar á meðal Simbabve. - aa Ráðstefna Matvælastofnunar SÞ í Róm um hækkandi matvælaverð í heiminum: Simbabveforseti fær að mæta MÓTMÆLI Í RÓM Mótmælendur létu til sín taka þar sem ráðstefna Matvæla- stofnunar SÞ fer fram. Skattskrár vegna álagningar 2007 og virðisaukaskattsskrár vegna tekjuársins 2006 Framlagning skattskrár er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003 og 46. gr. laga nr. 50/1988. Skrárnar liggja frammi hjá skattstjórum í hverju umdæmi, hjá umboðsmönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju skattumdæmi dagana 3. til 16. júní 2008 að báðum dögum meðtöldum. 3. júní 2008. Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Hanna Björnsdóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Steinþór Haraldsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi Tómas Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson. JARÐSKJÁLFTI Um fimmtíu manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á skjálftasvæðinu á Suðurlandi. Vel á þriðja tug húsa á svæðinu hafa verið úrskurðuð óíbúðarhæf, þar af átján íbúðarhús. Bæjar- stjórar segja langflesta þjónustu vera komna í gagnið að nýju. „Við erum að vinna í þessum húsnæðismálum,“ segir Ragn- heiður Hergeirsdóttir, bæjar- stjóri í Árborg. Þar hefur þurft að rýma sjö hús vegna þess hversu löskuð þau eru eftir skjálftann, fimm á Selfossi og tvö á Eyrar- bakka. Íbúum þeirra hefur verið komið fyrir í öðrum húsum í bæj- unum, sem bæjaryfirvöld leigja. Í Hveragerði hefur íbúum tveggja húsa verið komið fyrir í heilum húsum í bænum og í sveit- arfélaginu Ölfusi hafa íbúar níu húsa þurft að koma sér fyrir í sumarbústöðum og hjá ættingj- um. Húsin sem úrskurðuð hafa verið óíbúðarhæf eru öll mjög skemmd og flest talin ónýt. Fjöldi fólks hefur leitað sér aðstoðar í þjónustumiðstöðvun- um í Árborg og Hveragerði síð- ustu daga. „Það er mikil traffík,“ segir Helga Kristjánsdóttir, stað- gengill bæjarstjóra í Hveragerði. „Fólk leitar eftir stuðningi þar,“ segir Ragnheiður. „Það kemur í viðtöl hjá Rauða krossinum, áfallahjálp og ráðgjöf.“ Björgunar- sveitir hafa verið í viðbragðs- stöðu og aðstoðað fólk, einkum eldri borgara, við tiltekt og við- gerðir. Að öðru leyti er lífið að komast í eðlilegt horf. Flest öll þjónusta er komin í gagnið að nýju, að sögn þeirra Ragnheiðar og Helgu. Sundlaugar eru þó lokaðar í báðum bæjum vegna bilana og í Hveragerði er bókasafnið enn lokað þar sem það hefur reynst ærið verk að raða öllum bókunum rétt í hillurnar á ný. Þá er kranavatnið orðið drykkjar hæft á Selfossi en í Hveragerði er enn mælst til þess að fólk sjóði vatn eða sæki sér flöskuvatn á þjónustumiðstöðvar. Fólk er einnig varað við því að ganga á og við fjöll í nágrenni Hveragerðis vegna hættu á grjót- hruni. Íbúafundir eru fyrirhugaðir í Hveragerði klukkan 20 á fimmtu- daginn á Hótel Örk og í Ölfusi í húsnæði hótels Eldhesta klukkan 20.30 í kvöld. stigur@frettabladid.is Um fimmtíu gert að yfirgefa heimili sín Átján íbúðarhús á skjálftasvæðinu á Suðurlandi hafa verið úrskurðuð óíbúðar- hæf og um fimmtíu manns hefur verið komið í annað húsnæði. Þjónusta er að mestu komin í gagnið. Margir hafa leitað sér áfallahjálpar og aðstoðar. ALLT Á GÓLFINU Mörg húsin á skjálftasvæðinu voru afar illa farin. Skemmdir á húsum reyndust mun meiri en talið var í fyrstu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.