Fréttablaðið - 03.06.2008, Qupperneq 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
3.17 13.25 23.36
2.25 13.10 00.00
Í dag er þriðjudagurinn 3. júní,
156. dagur ársins.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Nákvæmlega klukkan 06.50 hvern virkan dag pípir síminn
minn undur blíðlegt lag. Ekki þarf
nema eitt skilvirkt handtak til að
þagga niður í kvikindinu en
nákvæmlega tíu mínútum seinna
upphefur hann annað og grimmdar-
legra garg sem kostar undantekn-
ingarlaust dálítið einvígi. Ég ham-
ast við að reyna að sofa yfir mig
en hann reynir staðfastlega að
svipta heimilið næturkyrrðinni.
Enn hefur mér því miður ekki tek-
ist að kenna börnunum hversu
unaðslegt það er að lúra lengur
undir hlýrri sæng, heldur spretta
þau upp eins og stálfjaðrir. Þar
með er áreiti dagsins hafið fyrir
alvöru.
Með útvarpið í bakgrunni er vinnudagurinn ekki formlega
hafinn fyrr en dagblöð og tölvu-
póstur hafa verið lesin og farinn
dálítill blogghringur. Í því ferli
nem ég til dæmis þann dýrmæta
fróðleik að tjáning er ekki alltaf
árangursrík fyrir fólk í tilfinninga-
kreppu. Sú vitneskja hefði reyndar
getað sparað dágóðan skilding,
man það næst. Tek nokkur símtöl
um leið og ég hræri í tölvunni,
gramsa í pappírum á skrifborðinu
og forgangsraða verkefnum sem
óvæntar uppá komur sjá reyndar
um að endurraða jafnóðum. Skrepp
í Bónus í hádeginu, það er svo upp-
lagt að nota tímann. Úps, gleymdi
tannlækninum! Hver ætlaði aftur
að sækja á leikskólann, var það ég?
Aftur?
Skynsamleg ákvörðun um að slökkva á útvarpi, sjónvarpi og
síma og eiga þess í stað gæðastund
með börnunum í eldhúsinu á eftir
að draga dilk á eftir sér. Of lítið
áreiti getur augljóslega verið vara-
samt. Einmitt á því andartaki sem
ég rýni ofan í áhaldaskúffuna eftir
verkfæri til að opna dós af niður-
soðnum tómötum man ég alls ekki
hvaða amboð væri heppilegt við
þessar aðstæður. Sennilega osta-
skeri, hvernig lítur hann aftur út?
Skammhlaupið í höfðinu stóð stutt en var áhrifaríkt. Það rifj-
aði upp óbrigðula heilastarfsemi
hér áður fyrr þegar andlit urðu
kunnugleg og fengu nöfn í minn-
inu alveg sjálfkrafa. Til að ná
sama árangri nú þarf ég að nota
sérstaka tækni frá Dale Carnegie
við að raða í spjaldskrána í höfð-
inu, annars detta upplýsingarnar
sem fara inn um annað eyrað við-
stöðulaust út um hitt. Ef svo fer
sem horfir mun mjólkin fara í
bókahilluna og hamsturinn í
ís skápinn, börnin út á nátt fötunum
og ég sjálf í hundana.
Ferðalag
í hundana
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur