Fréttablaðið - 03.06.2008, Síða 48

Fréttablaðið - 03.06.2008, Síða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 3.17 13.25 23.36 2.25 13.10 00.00 Í dag er þriðjudagurinn 3. júní, 156. dagur ársins. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Nákvæmlega klukkan 06.50 hvern virkan dag pípir síminn minn undur blíðlegt lag. Ekki þarf nema eitt skilvirkt handtak til að þagga niður í kvikindinu en nákvæmlega tíu mínútum seinna upphefur hann annað og grimmdar- legra garg sem kostar undantekn- ingarlaust dálítið einvígi. Ég ham- ast við að reyna að sofa yfir mig en hann reynir staðfastlega að svipta heimilið næturkyrrðinni. Enn hefur mér því miður ekki tek- ist að kenna börnunum hversu unaðslegt það er að lúra lengur undir hlýrri sæng, heldur spretta þau upp eins og stálfjaðrir. Þar með er áreiti dagsins hafið fyrir alvöru. Með útvarpið í bakgrunni er vinnudagurinn ekki formlega hafinn fyrr en dagblöð og tölvu- póstur hafa verið lesin og farinn dálítill blogghringur. Í því ferli nem ég til dæmis þann dýrmæta fróðleik að tjáning er ekki alltaf árangursrík fyrir fólk í tilfinninga- kreppu. Sú vitneskja hefði reyndar getað sparað dágóðan skilding, man það næst. Tek nokkur símtöl um leið og ég hræri í tölvunni, gramsa í pappírum á skrifborðinu og forgangsraða verkefnum sem óvæntar uppá komur sjá reyndar um að endurraða jafnóðum. Skrepp í Bónus í hádeginu, það er svo upp- lagt að nota tímann. Úps, gleymdi tannlækninum! Hver ætlaði aftur að sækja á leikskólann, var það ég? Aftur? Skynsamleg ákvörðun um að slökkva á útvarpi, sjónvarpi og síma og eiga þess í stað gæðastund með börnunum í eldhúsinu á eftir að draga dilk á eftir sér. Of lítið áreiti getur augljóslega verið vara- samt. Einmitt á því andartaki sem ég rýni ofan í áhaldaskúffuna eftir verkfæri til að opna dós af niður- soðnum tómötum man ég alls ekki hvaða amboð væri heppilegt við þessar aðstæður. Sennilega osta- skeri, hvernig lítur hann aftur út? Skammhlaupið í höfðinu stóð stutt en var áhrifaríkt. Það rifj- aði upp óbrigðula heilastarfsemi hér áður fyrr þegar andlit urðu kunnugleg og fengu nöfn í minn- inu alveg sjálfkrafa. Til að ná sama árangri nú þarf ég að nota sérstaka tækni frá Dale Carnegie við að raða í spjaldskrána í höfð- inu, annars detta upplýsingarnar sem fara inn um annað eyrað við- stöðulaust út um hitt. Ef svo fer sem horfir mun mjólkin fara í bókahilluna og hamsturinn í ís skápinn, börnin út á nátt fötunum og ég sjálf í hundana. Ferðalag í hundana BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.