Fréttablaðið - 08.06.2008, Blaðsíða 34
ATVINNA
8. júní 2008 SUNNUDAGUR180
Laus störf við Grunnskóla
Húnaþings vestra
Staða þroskaþjálfa
(þjálfun og umönnun einhverfs nemanda, auk þjálfunar og stuðnings við
aðra nemendur skólans)
2 stöður skólaliða
(gæsla nemenda, ræsting húsnæðis, mötuneytisstörf o.fl .)
Leitað er að röskum, áhugasömum og jákvæðum starfsmönnum sem hafa
gott lag á að umgangast börn og unglinga og geta unnið bæði sjálfstætt
og með öðrum. Umsóknum með upplýsingum um menntun, fyrri störf og
umsagnaraðila skal skila til skólastjóra sem einnig veitir nánari upplýsingar.
Ágúst Jakobsson skólastjóri s: 847-8812, netfang: agustj@ismennt.is
Laus störf við Leikskólann Ásgarð
í Húnaþingi vestra
100% staða þroskaþjálfa
(þjálfun og umönnun einhverfs nemanda).
3 stöður leikskólakennara í 100% starfshlutfall.
Leitað er að áhugasömum, skapandi, jákvæðum og tillitssömum einstak-
lingum. Umsóknum með upplýsingum um menntun, fyrri störf og umsag-
naraðila skal skila til skólastjóra sem einnig veitir nánari upplýsingar.
Möguleikar á að samnýta stöðu þroskaþjálfa í leikskóla og félagsþjónustu.
Guðrún Lára Magnúsdóttir skólastjóri s:451-2955 eða 891-8284, netfang:
leikskoli@hunathing.is
Laust starf við Félagsþjónustu
Húnaþings vestra
50% staða ráðgjafa
í málefnum fatlaðra. Óskað er eftir starfsmanni með menntun sem
þroska- , iðjuþjálfi eða tilsvarandi.
Möguleikar á að samnýta stöðu í félagsþjónustu og leikskóla.
Umsóknum með upplýsingum um menntun, fyrri störf og umsagnaraðila
skal skila til félagsmálastjóra, sem einnig veitir nánari upplýsingar.
Oddur Gíslason félagsmálastjóri s. 455-2400, netfang: felagsmalastjori@
hunathing.is
Hvammstangi í Húnaþingi vestra er í alfaraleið aðeins 6 km. frá þjóðvegi
1 og í u.þ.b. tveggja klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík og Akureyri. Íbúar
í Húnaþingi vestra eru tæplega 1,200 og í sveitarfélaginu er til staðar öll
almenn opinber þjónusta auk annarrar fjölbreyttrar þjónustu. Möguleikar
til íþróttaiðkunar, útivistar, afþreyingar og félagsstarfa eru fjölmargir og því
er Húnaþing vestra góður búsetukostur fyrir fjölskyldufólk. Húnaþing vestra
veitir aðstoð við leit á húsnæði.
Umsóknarfrestur er til 23. júní 2008, og skal umsóknum
skilað til: Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.
Merkt viðkomandi stofnun.
Sveitastjóri Húnaþings vestra
Samfélags- og mannréttindadeild Akureyrarbæjar
óskar eftir forvarnafulltrúa
Samfélags- og mannréttindadeild Akureyrarbæjar
óskar eftir að ráða forvarnafulltrúa í 100% starf.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf.
Æskilegt er viðkomandi geti hafi ð störf 15. ágúst nk.
Markmið starfsins er að stuðla að heilbrigðum
lífsvenjum barna og ungs fólks í samræmi við
stefnumörkun Akureyrarbæjar í forvörnum.
Starfssvið:
• Umsjón og eftirfylgni með verkefnum forvarna
stefnu Akureyrarbæjar.
• Skipulag og framkvæmd forvarnastarfs með
börnum og unglingum m.a. í félagsmiðstöðvum
og ungmennahúsi.
• Umsjón með forvarnaverkefnum sem samfélags-
og mannréttindadeild býður upp á í grunnskólum
bæjarins.
• Ráðgjöf og samstarf við aðila sem vinna með
börnum og unglingum, foreldra, börn og ung
menni.
• Víðtækt samstarf um vímuvarnir barna og
ungmenna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi .
• Reynsla af starfi með börnum og unglingum
skilyrði.
• Reynsla af forvarnastörfum æskileg.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akur-
eyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfi ð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og viðkomandi fagstéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmanna-
þjónusta Akureyrarbæjar í síma 460-1060.
Nánari upplýsingar um starfi ð veita Alfa Aradóttir,
forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála, og
Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri, í síma
460-1230 eða á netföngin alfaa@akureyri.is og
katrinb@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á
heimasíðu Akureyrarbæjar: www. akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu
umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í
þjónustuanddyri Ráðhússins.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2008.
STÝRIMAÐUR
Oddi hf. á Patreksfi rði auglýsir eftir stýrimanni á
línuskipið Núp BA 69. Viðkomandi þarf að hafa reynslu
af línuveiðum auk stýrimannsréttinda. Um er að ræða
framtíðarstarf.
Núpur er 238 brl., sérhæft línuskip og vel útbúið.
Veiðiferðir eru jafnan 3 – 4 dagar. Gert er út frá
Patreksfi rði. Kvótastaða skipsins er góð sem og
tekjumöguleikar.
Upplýsingar veita skipstjóri í síma 862 5767 eða
útgerðarstjóri í síma 869 8681. Einnig má senda
umsóknir eða fyrirspurnir á sverrir@oddihf.is .
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
ÍAV er eitt stærsta og
öflugasta verktakafyrirtæki
landsins og býr yfir ára-
tugareynslu í mannvirkja-
gerð. Verkefni ÍAV eru á
öllum sviðum byggingar-
iðnaðar, hvort sem um er að
ræða íbúðarhúsnæði, atvinnu-
húsnæði, mannvirkjagerð
eða opinberar byggingar. Hjá
fyrirtækinu starfa nú um 600
manns.
ÍAV óska eftir að ráða tækjastjóra í efnisnámu ÍAV
í Lambafelli við Þrengslaveg
Viðkomandi þarf að hafa réttindi til að stjórna jarðýtum og/eða
hjólaskóflum.
Reynsla æskileg en ekki skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Jón Kristjánsson verkstjóri í síma 660-8170.
Umsóknir berist um heimasíðu www.iav.is fyrir 18. júní 2008.
Við leggjum mikla áherslu á
að ráða til okkar kraftmikla
og framsækna einstaklinga.
Við bjóðum góða starfs-
aðstöðu og erum stolt af
starfsandanum og þeim
metnaði sem hjá okkur ríkir.
Við hvetjum konur og karla
til að sækja um starfið.
Bílstjórar - Tækjastjórar
Bílstjórar – tækjastjórar
ÍAV óska eftir að ráða bílstjóra og tækjastjóra til starfa á
höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.
Upplýsingar veitir Elís Björn Klemensson, verkstjóri á mannvirkjasviði í
síma 530-4200, velar@iav.is.
Umsóknir berist um heimasíðu www.iav.is fyrir 18. júní 2008.
Prima donna hársnyrtistofa
óskar eftir hressum og duglegum hársnyrtinema í fullt
starf. Upplýsingar veittar í síma 588 5566, 863 7794
eða á staðnum, Grensásvegi 50
Dómhúsinu við Lækjartorg
101 Reykjavík
Sími 560 4900 · Fax 562 2166
heradsdomur.reykjavikur@domstolar.is
www.domstolar.is