Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.06.2008, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 21.06.2008, Qupperneq 26
26 21. júní 2008 LAUGARDAGUR É g ólst upp við að það var rætt opinskátt um ættleiðinguna, svo það kom í rauninni aldrei sá dagur að mér var tilkynnt sérstak- lega að ég væri ættleidd. Heima var til mikið af myndum frá ferða- lagi foreldra minna til Srí Lanka og mikið rætt um það á heimilinu, svo fyrir mér var það fullkomlega eðlilegt, en ég er náttúrlega það dökk að það hefði aldrei verið hægt að leyna uppruna mínum,“ segir Brynja M. Dan Gunnars- dóttir, sem var aðeins tveggja mánaða þegar hún kom til Íslands. „Það skipti líka máli að það voru til hlutir sem komu í staðinn fyrir allt þetta hefðbundna eins og bumbumyndir. Ég var svo heppin að mamma stalst til þess að taka mynd af mér með blóðmóður minni á Srí Lanka sem ég á enn í dag,“ segir Brynja og bætir við að hún viti til þess að foreldrar séu mis- viljugir að ræða ættleiðinguna við börnin sín og reyni jafnvel frekar að draga það á langinn ef börnin eru ljós á hörund. „Mér finnst að allir eigi rétt á að vita hvaðan þeir koma og finnst sorglegt þegar for- eldrar ræða það lítið við börnin sín,“ bætir hún við. Þegar Brynja var þriggja ára gömul eignaðist hún systur þegar foreldrar hennar ættleiddu tíu mánaða stúlku frá Indlandi sem hlaut nafnið Líney. „Mér fannst æðislegt að eignast systur og fannst ég snemma bera mikla ábyrgð á henni. Hún var mikill grallari og ef hún var sett í skammar krókinn á leikskólanum okkar í Hafnarfirði heimtaði ég að fara með,“ segir Brynja og brosir. „Ég var alltaf tilbúin að svara þegar krakkarnir spurðu af hverju ég væri svona brún og fannst ég bara skera mig úr á jákvæðan hátt. Það var ekki fyrr en í grunnskóla sem það komu einstaka athuga- semdir eins og „fæddistu í klósett- inu?“. En þá átti ég alltaf mína vini sem svöruðu fullum hálsi. Ég hef alltaf verið stolt af uppruna mínum og þegar ég var tólf ára ákvað ég að bæta Mutidha við nafnið mitt, en það var nafnið sem blóðmóðir mín gaf mér og mömmu fannst það mjög fallegt,“ segir Brynja. Erfið lífsreynsla Fjölskylduaðstæður Brynju hafa breyst mikið í gegnum árin, en þegar hún var fjögurra ára skildu foreldrar hennar. „Þó svo að pabbi væri frá Svíþjóð bjó hann áfram á Íslandi. Það var gott samband milli foreldra minna þrátt fyrir skilnað- inn og þau fóru oft með okkur Lín- eyju í ferðalög saman,“ segir Brynja, en foreldrar hennar eru nú báðir látnir. Fyrst lést faðir hennar, Dan Hansson, og síðan móðir hennar Snjólaug Stefáns- dóttir, þegar Brynja var nítján ára. „Mamma barðist hetjulega við krabbamein í þrjú ár. Það var vissulega erfiður tími og ég veit ekki hvað ég hefði gert ef ég hefði ekki átt systur. Bræður mömmu voru okkur líka stoð og stytta og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að hjálpa okkur Líneyju. Við þurftum ungar að takast á við hluti sem flestir gera mun seinna á ævinni og það var gott að eiga hvor aðra að í því ferli, þó svo að við höfum tekist mismunandi á við sorgina. Auðvitað er auðvelt að detta í sjálfsvorkunn og þunglyndi yfir því sem hefur gengið á, en á vissum tímapunkti ákvað ég að láta reynsluna gagnast mér á lífs- leiðinni, vera ánægð og gera mömmu stolta því það er svo margt í lífinu sem ég er þakklát fyrir, ég er trúlofuð yndislegum manni og á bestu fjölskyldu og vini sem hægt er að hugsa sér,“ segir Brynja, en hún kynntist Axel fyrir fimm árum og í dag búa þau í bryggjuhverfinu í Garðabæ. „Við kynntumst í Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ og vorum lengi vel bestu vinir áður en við byrjuðum saman. Hann er ætt- leiddur frá Indónesíu svo við áttum svolítið sameiginlegan bakgrunn hvað það varðar. Okkur langar bæði að fara til upprunalanda okkar einn daginn og heimsækja þorpin sem við fæddumst í. Ég er í svolítið sérstakri aðstöðu þar sem móðurbróðir minn er sendiherra Íslands í Svíþjóð og hafði mikil samskipti við Srí Lanka í starfi sínu. Hann er því með sambönd við fólk úti, sem getur hjálpað mér að leita að skyldfólki mínu, og hefur boðist til að afhenda því pappírana mína þegar ég er tilbúin til þess,“ segir Brynja. Fjallkonan En hvernig upplifirðu viðhorfið í samfélaginu? Hafið þið fundið fyrir fordómum í kjölfarið á umræðunni um innflytjendur? „Ég get ekki sagt að ég hafi orðið fyrir neinum fordómum. Einstaka sinnum verð- um við Axel kannski fyrir því að fólk talar við okkur ensku þegar við erum tvö saman á veitingahúsi, en okkur finnst það bara fyndið og höfum húmor fyrir því. Eitt sinn þegar ég var að afgreiða í banka hrósaði eldri kona mér fyrir hvað ég talaði góða íslensku og sagðist varla heyra nokkurn hreim og Axel lenti einu sinni í því á bíla- verkstæði að maður talaði lengi við hann á taílensku,“ segir Brynja og hlær. „Svo er viðhorf fólks auðvitað einstaklingsbundið og ég fann það þegar ég var ég beðin um að vera fjallkonan í Hafnarfirði árið 2002. Bæjarstjórinn hafði samband við mig og langaði að brjóta ísinn og gera eitthvað öðruvísi. Mér fannst mjög gaman að vera fyrsta dökka fjallkonan og það virtist vekja athygli, því í kjölfarið voru umræð- ur í blöðum og útvarpi þar sem fólk lýsti ýmist yfir stolti eða óánægju sinni og það voru greini- lega skiptar skoðanir á því hvort fjallkonan mætti vera af erlendu bergi brotin eða dökk á hörund,“ segir Brynja. Fjölskyldan stækkar Fyrir tveimur mánuðum eignuðust Brynja og Axel sitt fyrsta barn, lítinn dreng sem heitir Máni Snær. „Við vorum búin að ákveða Mána- nafnið, en Snær er í höfuðið á mömmu. Ég vona bara að honum verði ekki strítt á að vera svona dökkur, en heita eftir hvítum snjó,“ segir Brynja brosandi. „Ég er ósjálfrátt svo hvít í hugsun að þegar mig dreymdi að ég eignaðist barn var það alltaf hvítt í draumnum. Fólk er líka ennþá frekar óvant því að sjá dökk börn á Íslandi og spyr oft hvort það megi skoða eða koma við Mána Snæ þegar við erum í Kringlunni og Smáralind. Við grínumst stund- um með það að við munum þurfa að útbúa bækling fyrir hann áður en hann byrjar á leikskóla til að svara spurningum barnanna um hvaðan hann kemur, því hann er náttúrlega íslenskur en samt svo blandaður,“ bætir hún við. En kom það einhvern tímann til greina hjá ykkur að ættleiða? „Já, mig langar ofboðslega að ættleiða og gefa til baka, því ég hefði ekki getað fengið betra líf. Okkur Axel langaði samt líka að eignast okkar eigið barn og það er voðalega gaman að eiga einhvern sem líkist okkur, því við höfum náttúrlega aldrei getað líkt okkur við neinn í fjölskyldum okkar hvað útlitið varðar,“ segir Brynja. „Það er skrýtið að hugsa til þess að núna er Máni Snær nákvæm- lega jafngamall og ég var þegar blóðmóðir mín gaf mig frá sér til ættleiðingar. Ég gæti ekki með nokkru móti hugsað mér að láta Mána Snæ frá mér og get ekki ímyndað mér hvernig það væri að þurfa þess. Þetta er án efa það óeigingjarnasta sem nokkur manneskja getur gert, að láta barnið sitt frá sér svo það megi öðlast betra líf,“ segir Brynja að lokum. Vil gera mömmu stolta Brynja Mutidha Dan Gunnarsdóttir var ættleidd frá Srí Lanka árið 1985 þegar hún var aðeins tveggja mánaða gömul. Í dag hefur hún eignast sitt fyrsta barn með unnusta sínum Axel Ásmundssyni sem er ættleiddur frá Indónesíu og stundar nám í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Alma Guðmundsdóttir hitti Brynju og ræddi við hana um lífið og tilveruna. „FÓLK TALAR STUNDUM ENSKU VIÐ OKKUR Á VEITINGASTÖÐUM“ Brynja Gunnarsdóttir með Mána í fanginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ➜ Í HNOTSKURN Stjörnumerki: Meyja Besti tími dagsins: Þegar Axel kemur úr vinnunni og við fjölskyld- an sameinumst í lok dags. Uppáhaldsmatur: Sniglar eins og mamma hafði alltaf í forrétt á jólunum. Uppáhaldsdrykkur: Pepsi Max. Diskurinn í spilaranum: B‘Day með Beyoncé Knowles. Draumafríið: Havaíeyjar þar sem við Axel trúlofuðum okkur árið 2006. Hverju myndirðu sleppa ef þú þyrftir að spara?: DVD, bíóferð- um og Stöð 2. STAÐREYNDIR UM ÆTTLEIÐINGU ■ Félagið Íslensk ættleiðing hefur löggildingu dómsmálaráðu neytis til að annast milligöngu um ættleiðingar barna frá eftirfarandi ríkjum: Indlandi, Kína, Kólumbíu, Tékklandi og Taílandi. ■ Félagið hefur starfað síðan 1978 og rekur skrifstofu í Reykjavík. ■ Undanfarin ár hafa að jafnaði verið ættleidd 20-35 börn af erlendum uppruna árlega. ■ Á Íslandi búa nú um 110 börn sem ættleidd hafa verið frá Kína. ■ Til Íslands hafa alls verið ættleidd um 500 börn fædd erlendis. ■ Erlend yfirvöld leggja áherslu á að börnin eignist bæði móður og föður þannig að takmarkaðir möguleikar eru fyrir einhleypa að ættleiða frá útlöndum. Má búast við að biðtími sé mun lengri en hjá hjónum. ■ Helstu kröfur íslenskra stjórnvalda eru eftirfarandi: 1. Umsækjendur séu 25-45 ára. 2. Andlega og líkamlega hraustir. 3. Hafi ekki sakaferil. 4. Geti framfleytt fjölskyldu með góðu móti. 5. Giftir umsækjendur hafi verið í sambúð í a.m.k. þrjú ár. 6. Fyrir umsækjendur í óvígðri sambúð er gerð krafa um minnst fimm ára sambúðartíma. ■ Einhleypir geta fengið forsam- þykki til ættleiðingar ef sérstak- lega stendur á og ættleiðing er ótvírætt talin barninu til hags- bóta. ■ Fjöldi barna var áður ættleiddur frá Kóreu, Indónesíu, Gvatemala og Srí Lanka; þau fyrstu eru nú að nálgast fertugt. Upplýsingarnar eru teknar af heimasíðu Íslenskrar ættleiðing- ar, www.isadopt.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.