Fréttablaðið - 21.06.2008, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 21.06.2008, Blaðsíða 27
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Einn þeirra bíla sem athygli vöktu þar sem þeir stóðu á Tjarnarbrúnni í Reykjavík á þjóðhátíðar- daginn var Oldsmobile af árgerð 1958. Sá er allur upprunalegur, meira að segja lakkið. Eigandi hans er Pétur Karl Pétursson. „Ég keypti þennan bíl 19. maí í vor þannig að ég er bara búinn að eiga hann í rúman mánuð,“ segir Pétur ánægður þar sem hann stendur við að pússa og bóna dýrgrip af Oldsmobile-gerð. „Bíllinn er fyrst skráður 1. júlí 1958, þá í Ohio í Bandaríkjun- um, en kom hingað til lands 1999, þá fluttur inn af Sigursteini Þórssyni á Akureyri,“ heldur hann áfram söguna og kveðst hafa keypt kaggann af Agli Matthíassyni. Oldsmobile vegur tvö tonn og er með 305 hest- afla, 8 strokka vél. Bíllinn hans Péturs er af árgerð 1958, hann er einkar vel með farinn og allur upp- runalegur. Einungis ekinn 45 þúsund mílur frá upp- hafi, eða rúma sjötíu þúsund kílómetra. „Notkunar- leysi er það sem helst háir honum og lýsir sér í ýmsum stirðleika,“ segir eigandinn, sem ætlar að gera sitt besta til að liðka hann eitthvað til. „Þetta er samt ekki bíll sem maður keyrir nema þegar veður er gott enda er hann ekki minn aðalbrúkunar- bíll, heldur bara til að nota á sunnudögum. Ég er einu sinni búinn að skreppa á honum á Selfoss, það er lengsta ferðin hingað til,“ segir hann og kveðst ekki vilja vita hversu miklu bensíni hann eyði á hundraði. Pétur, sem var starfsmannastjóri hjá borgar- verkfræðingi í tuttugu ár, er nú kominn á eftirlaun. Því kveðst hann hafa nægan tíma til að dunda við það sem hann langi til eins og að snúast kringum sína veglegu bifreið. Skyldi hann hafa átt fleiri svona kagga um ævina? „Ekki seinni árin og engan svona verklegan. En mig hefur lengi langað í svona bíl og alltaf gefið þeim auga þegar þeir hafa orðið á vegi mínum.“ gun@frettabladid.is Þetta er bara bifreið til að nota á sunnudögum „Mig hefur lengi langað í svona bíl og gefið þeim auga þegar ég hef getað,“ segir Pétur og keppist við að pússa sinn gamla Olds- mobile. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 100% fjár mögnun Opið í dag frá kl. 12 - 16 Tómstundahúsið • Nethyl 2 • sími 587-0600 • www.tomstundahusid.is Nýkominn HPI Savage XL fjarstýrður bensín torfærutrukkur, sá stærsti og öfl ugasti til þessa. SYNGJANDI ENGLAR Drengjakór Reykjavíkur er nýkominn heim úr kórferð til Barcelona. FERÐIR 3 LÍFLEGT SUMAR Túrkísblár og aðrir sterkir litir verða áberandi í sumar. TÍSKA 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.