Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.06.2008, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 21.06.2008, Qupperneq 56
28 21. júní 2008 LAUGARDAGUR 10. BRÚNAVÍK „Einhver litskrúðugasta og fallegasta vík á Íslandi. Ekið áleiðis að höfninni við Borgarfjörð eystri og gengið þaðan yfir lágan ás yfir í Brúnavík.“ Ásta Þorleifsdóttir 11. GALTASTAÐIR FRAM Í HRÓARSTUNGU Á HÉRAÐI „Alþýðutorfbær sem nú er unnið að endurbótum á. Íslendingar mega vera duglegri við að staldra við og skoða þessa gömlu bæi sem við eigum og eru einstakir á heimsvísu. Ég er orðin þreytt á þessum misskilningi um að skríða út úr torfbæjunum, torfbæir eru mögnuð híbýli sem falla ein- staklega vel að náttúrunni og það er óskaplega gaman að skoða þá.“ Margrét Hallgrímsdóttir 12. HENGIFOSS Í FLJÓTSDAL „Einn hæsti foss landsins (118 metrar) í fallegri umgjörð. Skammt frá Skriðu- klaustri.“ Ari Trausti Guðmundsson 13. SÖNGHOFSDALUR „Ekin Kverkfjallaleið frá Möðrudal suður á brúna yfir Kreppu. Gengið þaðan norður Krepputungu átta kílómetra leið að ármótum Kreppu og Jökulsár, gegnt Herðubreiðarlindum. Þar er stórkostleg gróðurvin í litlum dal með stuðlabergi og læk, en nafnið Sönghofsdalur er til komið vegna bergmáls í dalnum.“ Ómar Ragnarsson 14. FJAÐRÁRGLÚFUR „Einn af mínum uppáhaldsstöðum og eitt fallegasta náttúruundur á Íslandi. Beygt út af Þjóðvegi eitt skammt vestan Kirkjubæjarklausturs þar sem farið er að Lakagígum. Það er ofsalega gaman að ganga inn gilið rétt við Þjóðveg eitt. Fjaðrárgljúfur er meðal stórbrotnustu náttúruundra landsins.“ Ásta Þorleifsdóttir 15. HRÍFUNES „Var í þjóðleið til 1992 er þjóðvegur- inn var færður sex kílómetrum sunnar. Þetta er tilvalinn útúrdúr og álíka langur og að þeysa þjóðveginn fram- hjá. Þessi hringur er gott dæmi um 1. ÖNDVERÐARNES OG SVÖRTULOFT „Aðgengilegur og vel merktur staður sem alltaf er gaman að koma á. Veg- slóðinn liggur meðfram bjargbrúninni að gamla vitanum og oft má sjá hvali rétt fyrir utan. Þarna er líka brunnur- inn Fálki sem gaman er að skoða og ekki langt frá er Írskra brunnur.“ Ásta Þorleifsdóttir 2. LJÓSMYNDASAFNIÐ BÆRINGSSTOFA Í GRUNDARFIRÐI „Frábært safn þar sem meðal annars er fullyrt að James Bond sé úr Hnappadalssýslu. Sá sem þarna stjórnar heitir Ingi Hans og er snill- ingur. Stórskemmtilegt og öðruvísi safn sem er nær okkur í tíma en mörg önnur söfn.“ Haukur Snorrason 3. GRAFARLAUG Í REYKJADAL „Heit laug sem dásamlegt er að koma í á síðkvöldum. Dalurinn er skógi vaxinn og þarna eru engin önnur mannvirki en laugin og pínulítill bún- ingsklefi. Beygt út af veginum rétt hjá Fellsenda og hægt er að keyra alveg að lauginni.“ Sigrún Vilbergsdóttir Leynistaðir í alfaraleið Fjölförnustu ferðamannastaðirnir verða leiðigjarnir til lengdar. Þegar þeyst er eftir þjóðveginum er gaman að nema staðar við fáfarnari perlur og hver veit nema þannig rambi maður á sannkallaða leynistaði. Þórgunnur Oddsdóttir heyrði í nokkrum víðför- ulum Íslendingum og fékk að vita hvar þeir mæltu með að íslenskir ferðalangar stöldruðu við á ferðum sínum um landið. ÁLITSGJAFAR 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 1819 4. VAÐALFJÖLL SKAMMT FRÁ BJARKAR LUNDI Á BARÐASTRÖND „Fallegir útsýnistindar með stuðla- bergi, fáeinna klukkustunda ganga.“ Ari Trausti Guðmundsson 5. LITLIBÆR Í SKÖTU- FIRÐI „Hlaðinn lítill bær alveg niðri við ströndina sem Þjóðminjasafnið hefur nýlega lokið við að endurbyggja. Þetta er einn af þessum stöðum þar sem maður verður alveg bergnuminn.“ Margrét Hallgrímsdóttir 6. REYKJAFJÖRÐUR NYRÐRI Á STRÖNDUM „Kannski ekki alveg í alfaraleið en nú orðið er boðið upp á farþegaflutninga þangað með báti frá Norðurfirði allt sumarið, þökk sé Reimari Vilmundar- syni. Ég held þetta sé eitt best geymda leyndarmál Íslands. Þarna er gott tjaldsvæði, sundlaug, gistiaðstaða í gömlum bæ og aðeins tíu kílómetra ganga upp að einum af skriðjöklum Drangajökuls.“ Sigrún Valbergsdóttir 7. GRETTISLAUG Í SKAGAFIRÐI „Forn og fræg setlaug í flottu lands- lagi.“ Ari Trausti Guðmundsson 8. SKEIÐSVATN Í SVARFAÐARDAL „Fallegt stöðuvatn sem gaman er að ganga að. Hægt er að keyra alveg fram að Koti, fremsta bæ í Svarfaðar- dal, og þaðan er eins og hálfs tíma ganga upp að vatninu og til baka með nestispásu.“ Ásta Þorleifsdóttir 9. LEIRHNJÚKUR OG GJÁSTYKKI „Ég skilgreini þetta sem leynistaði því ég hef enn ekki hitt Íslending sem hefur komið á þá. Íslendingar skoða Kröfluvirkjun og Víti, útlendingar hin enn ósnortnu Leirhnjúk og Gjástykki. Ekið frá Námaskarði við Mývatn malbikaðan veg að Kröfluvirkjun og upp á brekkuna fyrir norðan hana. Þaðan er kortersgangur að Leirhnjúki þar sem skoða má ummerki eftir fjórtán eldgos 1975-84. Hægt að aka jeppaslóða norður undir Gjástykki en þar er svæði sem alþjóðasamtök um ferðir til Mars hafa áhuga á sem æfingasvæði fyrir Marsfara framtíðar- innar líkt og Askja varð æfingasvæði fyrir tunglfarana 1967.“ Ómar Ragnarsson 1 2 5 hvernig þjóðvegurinn var fyrir aðeins nokkrum árum. Einnig fær maður sveitastemninguna beint í æð.“ Haukur Snorrason 16. HJÖRLEIFSHÖFÐI „Hjörleifshöfði finnst mér alltaf afskiptur, það þarf ekki merkilegan jeppa til að keyra niður fyrir hann og labba upp undir bjargið og fá sér nesti. Þarna er allt önnur veröld en uppi við þjóðveg; fuglalíf og sérstakt útsýni yfir svartan sandinn sem Katla gamla færði þarna niðreftir. Fram á 15. öld var þarna bara sjór og fjörður sem náði upp að Höfðabrekku en þetta er nú syðsti oddi Íslands. Maður er yfirleitt einn þarna og stemningin er sérstök undir um 200 metra háu bjarginu.“ Haukur Snorrason 17. GJÁIN Í ÞJÓRSÁRDAL „Yndislegur staður. Íslensk náttúra og rómantík eins og hún gerist best á íslenskum sumarkvöldum. Aðeins um tíu mínútna ganga frá Stöng. Fallegur foss og dásamlegar lindir.“ Ásta Þorleifsdóttir 18. REYKJADALUR „Reykjadalur ofan við Hveragerði er bara snilld, þarna eru heitir lækir ekkert ósvipaðir þeim í Landmanna- laugum. Um klukkustundarlabb frá Hveragerði. Sundstaður sem færi létti- lega inn í alla „hipp og kúl“ bæklinga. Þetta er á hinum svokallaða Bitruhálsi sem til stóð fyrir stuttu að virkja og þar með eyðileggja en sem betur fer eru menn og konur á Íslandi að átta sig á að það verður að hlífa náttúr- unni líka, ekki bara vinda hana eins og hverja aðra gólftusku.“ Haukur Snorrason 19. SOGIN „Um tuttugu mínútna akstur frá Hafnar firði og hálftíma ganga. Farin Krýsuvíkuleið í tíu kílómetra að Vatnsskarði en þar beygt til hægri eftir leið sem er merkt „Vigdísarvellir“. Eknir um tíu kílómetrar en farið út af upp að norðurenda Djúpavatns. Þaðan gengið upp á hálsinn og horft yfir Sogin, sem er litfegursta gilið á Reykjanesskaga og þarf að fara í Kerlingarfjöll eða Landmannalaugar til að sjá annað eins.“ Ómar Ragnarsson 7 9 Haukur Snorra- son ljósmyndari Ásta Þorleifsdótt- ir jarðfræðingur Ómar Ragnars- son fréttamaður Sigrún Valbergs- dóttir, varaforseti Ferðafélags Íslands Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur Margrét Hall- grímsdóttir þjóð- minjavörður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.