Fréttablaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er sunnudagurinn 22. júní,
175. dagur ársins.
2.56 13.30 0.03
1.29 13.43 0.58
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur.
með ánægju
Iceland Express býður flug til 14 áfangastaða í sumar, vítt og breitt
um Evrópu. Bókaðu núna á www.icelandexpress.is
Bókaðu
núna!
í sumar
14 áfangastaðir
Frankfurt Hahn Berlín
Billund
Basel
Friedrichshafen
Gautaborg
Barcelona
Alicante
Eindhoven
Varsjá
Stokkhólmur París
Kaupmannahöfn London
Lýðræði er rugl. Það er dýrt í rekstri, seinvirkt og skilar
sjaldnast gáfulegri niðurstöðu en
þeirri sem hvort sem er hefði
verið komist að með öðrum aðferð-
um. Það gengur yfirleitt út á að
láta hóp fólks, sem annars gæti
orðið að gagni, fjasa og þusa
klukkustundum saman til að
ákveða það sem allan tímann var
augljóst að væri það eina sem
kæmi til greina og einn maður
með vit í kollinum hefði getað
afgreitt á hálfri mínútu og notað
restina af tímanum í eitthvað
skynsamlegra.
ALÞINGI Íslendinga er eitt skýr-
asta dæmið um þá tíma- og mann-
auðssóun sem í lýðræði felst. Þar
eyða tugir hæfileikaríkra og dug-
andi Íslendinga ævinni í eitthvað
sem einn kontóristi með stimpil
gæti annast í hlutastarfi; að sam-
þykkja lög frá ríkisstjórn. Að vísu
kæmist hann ekki upp með að
ákveða sjálfur kjör sín, en það er
líka eini munurinn. Þarna eru lista-
menn, fræðimenn, viðskiptamenn
og aflaskipstjórar, sem gætu verið
að auðga menningar-, lista- og
atvinnulíf þjóðarinnar og draga
björg í þjóðarbúið, að vinna þjóð-
inni minna gagn með kjaftæði og
vaðli en þeir myndu gera þegjandi
með skóflu úti í skurði. Þeir eru
hins vegar á miklu hærra kaupi,
sem þeir eiga grunsamlega auðvelt
með að koma sér saman um að sé
eðlilegt, einkum miðað við hvernig
samkomulagið er að öðru leyti.
SATT að segja skilar lýðræðið
oftast lökustu hugsanlegu niður-
stöðunni. Miðjumoð og málamiðl-
anir eru megineinkenni þess.
Þegar annar segir A og hinn B
verður málamiðlunin eitthvert
afskræmi mitt á milli A og B, sem
er hvorugt og því aðeins eitthvert
merkingarlaust og ónothæft pár.
Enda er þannig komið fyrir lýð-
ræðinu hér á landi að fulltrúar
okkar verja starfsævinni í að
þrátta sín á milli um það nákvæm-
lega hvar á miðakrein hins gullna
meðalvegar sé best að halda sig og
láta það líta út eins og himinn og
haf skilji að heimsmynd þeirra,
lífssýn og hugsjónir.
ÞESS vegna er þessi gagnrýnis-
lausa lotning fyrir lýðræðinu, sem
okkur er innrætt frá blautu barns-
beini, gjörsamlega ofvaxin skiln-
ingi mínum. Orðið „lýðræðislegt“
er oftast notað sem samheiti fyrir
„gott og heiðarlegt“, jafnvel þótt
sagan sýni að leikreglur lýðræðis-
ins séu síður en svo neins konar
endanleg trygging alþýðunnar
gegn óhæfum leiðtogum.
Niður með
lýðræðið