Fréttablaðið - 25.06.2008, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 25.06.2008, Qupperneq 24
 25. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR Undanúrslit EM hefjast í kvöld þar sem allt er lagt undir. Spánverjar mæta Rússum og Þjóðverjar taka á Tyrkjum. Sæti í sjálfum úrslitaleiknum í Vín er í húfi. Meiðslum hrjáðir Tyrkir eiga vart í lið fyrir leikinn gegn Þjóðverjum í kvöld. Tyrkirnir hafa sýnt hreint fáránlega baráttu og hvað sem bönnum og meiðslum líður er ljóst að Þjóðverjar labba ekki til Vínar í úrslitaleikinn. Tyrkinn Hamit Altintop spil- ar með Bayern München og er fæddur í Þýskalandi. „Auðvit- að eru Þjóðverjar sigurstrang- legri en það er ekki til ein ein- asta ástæða fyrir því að við getum ekki unnið þá. Ég hef ná- kvæmlega engar áhyggjur, okkar styrkur felst í liðsandanum. Ég er viss um að við getum komist áfram,“ sagði Altintop. Að minnsta kosti sex leikmenn verða ekki með Tyrkjum og fleiri gætu bæst í þann hóp. „Auðvit- að er erfitt að vera með marga menn meidda, nú er það þeirra sem koma í staðinn að sýna hvað í þeim býr,“ sagði framherj- inn Semih Senturk, sem jafnaði fyrir Tyrki gegn Króötum á ögur- stundu í 8 liða úrslitunum. Fjórir leikmenn verða í banni, markmaðurinn Volkan Demirel, varnarmaðurinn Emre Asik og miðjumennirnir Tuncay Sanli og Arda Turan. Nihat Kahveci og Emre Gungor eru farnir heim vegna meiðsla og þrír leikmenn til viðbótar eru mjög tæpir. Það eru Servet Catin, Tumer Metin og fyrirliðinn Emre Belozoglu. Torsten Frings er leikfær hjá Þjóðverjum sem eru með sitt sterkasta lið. Lykilatriði hjá Þjóðverjum er að vanmeta ekki Tyrkina. „Hugs- unarháttur þeirra er líkur okkar. Þeir munu ekki hafa neinu að tapa þar sem það er þegar frá- bær árangur hjá þeim að komast í undanúrslitin. Þeir hafa sýnt mikla trú á sjálfum sér,“ sagði Michael Ballack. RÚSSNESKI BJÖRNINN ER ERFIÐUR Luis Aragones og lærisveinar hans í spænska landsliðinu eru ekki í öfundsverðu hlutverki á morgun. Þá mæta þeir rússneska birnin- um sem hefur svo sannarlega sýnt klærnar á mótinu. Aragones hrífst af fljótandi leik þar sem hæfileikar og hugsunar- háttur leikmanna skína í gegn í staðinn fyrir leik- kerfi og útfærslur á hugmyndum. Undir stjórn Aragones hefur spænska liðið unnið 37 leiki og aðeins tapað fjórum í 52 leikjum. Tveir í viðbót og Aragones verð- ur þjóðhetja. Hann ætlar sér að hætta með liðið eftir mótið. Spánverjar leika í gulum búningum á morgun en það er tal- inn vera óhappalitur í landinu. „Ég hef engar áhyggjur af því, ég er vanur því að spila í gulu,“ sagði Marcos Senna sem leikur með Villar- real. Xavi tók í sama streng og biður menn að gleyma 4-1 sigrinum á Rússum í riðlakeppninni. „4-1 tapið var áfall fyrir þá, en þeim hefur vaxið ásmeg- in síðan og spil- að betur og betur. Þeir hafa mikið sjálfstraust og eru nánast orðnir líklegastir til að vinna mótið,“ sagði Xavi, lúmskur að reyna að koma pressunni yfir á litla liðið. Guus Hiddink, þjálfari Rússa, segir sínum mönnum bara að hafa gaman af mótinu á þessu stigi. Hann viðurkennir að liðið sitt hafi komið honum sjálfum á óvart „Það er stórkostlegt að hafa kom- ist hing- að. Það eru þessi sjaldgæfu augnablik í íþróttum sem maður verður bara að njóta. Þegar maður getur notið þess leikur maður yfirleitt best. Við viljum ekki setja pressu á okkur, við viljum bara spila fót- bolta,“ sagði Hidd- ink. Hverjir stíga Vínarvals? Kóngurinn á miðjunni. Þjóðverjar treysta á Michael Ballack til að stjórna miðjuspili sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP David Villa - lykilmaður í sóknarleik Spánverja sem er markahæstur á mótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.