Fréttablaðið - 25.06.2008, Page 40
20 25. júní 2008 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Alþjóðadagur flóttamanna var haldinn
hátíðlegur síðastliðinn föstudag, 20. júní, á
Akranesi. Á þeim degi er vakin sérstök at-
hygli á aðstæðum flóttafólks um heim allan.
Rauði krossinn stóð fyrir dagskrá í Skrúð-
garðinum þar sem gestum gafst færi á
að kynna sér ferlið sem flóttafólk þarf að
ganga í gegnum áður en það fær hæli í öðru
landi.
„Ákveðið var að þessi dagur yrði hald-
inn hátíðlegur á Akranesi þar sem Akra-
nes tekur á móti hópi flóttafólks frá Palest-
ínu í haust. Rauði krossinn stóð fyrir þessu
og fyrst var komið saman í höfuðstöðv-
um Rauða krossins á Akranesi og heiðurs-
gestir voru Thomas Straub sem er fulltrúi
Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna
og kólumbískir flóttamenn sem komu til
Reykjavíkur í fyrra,“ útskýrir Gísli S. Ein-
arsson, bæjarstjóri á Akranesi.
Sett var upp tjald við veitingahúsið
Skrúðgarðinn í miðjum bænum og var það
eftirlíking af dæmigerðu flóttamannatjaldi.
„Reynt var að vera með sýnishorn af mat
og þeim kosti sem flóttafólk býr við í flótta-
mannabúðum og gátu gestir og gangandi
komið og kynnt sér aðstæður. Straub flutti
ræðu ásamt undirrituðum þar sem við fjöll-
uðum um þá flóttamenn sem hingað eru að
koma,“ segir Gísli áhugasamur.
Straub gat þess í ræðu sinni að þeir flótta-
menn sem von er á til Akraness komi frá
svæði þar sem aðstæður eru hvað erfiðast-
ar og í raun þær verstu sem Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna þekkir. „Hann
var afar þakklátur Akurnesingum og ís-
lenskum stjórnvöldum fyrir hvernig tekið
er á málum. Nauðsynlegt er að reyna að
setja sig í spor þessa fólks til að geta tekið
á móti þeim á réttan máta. Eftir að hafa
kynnt mér þetta þykir mér nánast ólýsan-
legt og óskiljanlegt að fólk skuli vera látið
búa við þær aðstæður sem þarna eru,“ segir
Gísli alvörugefinn og bætir við: „Þarna er
alla veðra von og fólk býr við mjög frum-
stæðar og í raun ómannúðlegar aðstæður
þar sem hreinlæti og vatn er af mjög skorn-
um skammti.“ Gísli leggur áherslu á að mik-
ilvægt sé að skilja hvað aðstæður flótta-
manna eru ólíkar því sem við búum við í
dag. „Gefa þarf fólkinu tíma til að aðlagast
okkar samfélagi smám saman. Nú erum við
að gera ráðstafanir til að fá íbúðir og stuðn-
ingsfjölskyldur og gengur það vel en við
erum enn að fá upplýsingar um samsetn-
ingu þeirra fjölskyldna sem koma og vitum
í raun ekki nákvæmlega hvenær von er á
þeim.“
Á næstu dögum verður ráðinn verkefna-
stjóri til að undirbúa og sinna móttöku
flóttamannanna. Þó langt sé síðan flótta-
menn komu síðast til Akraness þá er þetta
ekki í fyrsta skiptið. „Árið 1956 komu hing-
að flóttamenn frá Ungverjalandi sem eru
margir enn íbúar hér eins og hverjir aðrir
Íslendingar og við höfum ekkert nema gott
af þeim að segja. Þeir hafa spjarað sig af-
skaplega vel í íslensku samfélagi. Ann-
ars eru um fjögur hundruð útlendingar á
Akranesi af átján þjóðernum og við höfum
átt mjög góð samskipti við það fólk,“ segir
Gísli ákveðinn. hrefna@frettabladid.is
GÍSLI S. EINARSSON: ALÞJÓÐADAGUR FLÓTTAMANNA
Að setja sig í spor
flóttafólks í einn dag
FLÓTTAMENN VELKOMNIR Gísli segir að þótt menn geri sér grein fyrir að það sé mikill vandi að taka á móti
flóttamönnum þá ætli íbúar Akraness sér að gera það eins vel og hægt er. MYND/SKESSUHORN MM
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Bergsson
Laugalæk 46, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju fimmtudaginn
26. júní kl. 15.00. Blóm afþökkuð en vinsamlegast látið
Heimahlynningu KÍ (Sími 5401990) njóta þess.
Þóra Stefánsdóttir
Þóra Andrea Ólafsdóttir Haraldur Haraldsson
Stefán Ólafsson Ingunn Magnúsdóttir
Kolbrún Ólafsdóttir Magnús Sigurðsson
Sigrún Ólafsdóttir Fjalar Kristjánsson
Sólrún Ólafsdóttir Gunnar Sigmundsson
afabörn og langafabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför stjúpmóður, móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu okkar,
Kristveigar Jónsdóttur
Hólmgarði 15, áður Bakka á Kópaskeri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar Landakots
L-5 og Gunnar Guðmundsson lungnalæknir.
Árni Hrafn Árnasaon Hlín P. Wium
Gunnar Árnason Sólveig Jóhannesdóttir
Ástfríður Árnadóttir Þorsteinn Helgason
Einar Árnason Ragnheiður Friðgeirsdóttir
Jón Árnason Metta Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi, bróðir og mágur,
Tómas Vilhelm Óskarsson
áður til heimilis að Ránargötu 45,
Reykjavík,
sem lést að hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi,
sunnudaginn 22. júní, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 27. júní. kl 13.00. Þeim
sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á hjúkrun-
arheimilið Sunnuhlíð.
Ísleifur Tómasson Guðrún Ásta Kristjánsdóttir
Karitas Jóna Tómasdóttir
Tómas Haukur Tómasson Hrafnhildur Karlsdóttir
Vilhelmína Svava Guðnadóttir Stefán Hólm Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sýningin Útilegumenn í
Ódáðahrauni − goðsögn eða
veruleiki, opnaði á þjóð-
hátíðardaginn að Kiðagili
í Bárðardal. Sýningin er
liður í samstarfsverkefni
Bárðdælinga, Reykjavík-
urAkademíunnar og fleiri
fræðistofnana um stofnun
fræðaseturs í Svartárkoti í
Bárðardal.
Svartárkot stendur við
Ódáðahraun en þar segir
sagan að útilegumenn hafi
hafst við fyrr á öldum. Einn
frægasti íslenski útilegu-
maðurinn var Fjalla-Ey-
vindur en hann og kona hans
Halla eru talin hafa átt skjól
við Hvannalindir í Ódáða-
hrauni í kringum árið 1767.
Hönnun sýningarinnar
var í höndum Sögumiðlunar
ehf. og á henni má sjá yfir-
lit yfir líf íslenskra útilegu-
manna.
Opið er í Kiðagili til 31.
ágúst en þar er hægt að fá
veitingar og gistingu.
Útilegumenn í
Ódáðahrauni
CARLY SIMON, SÖNGKONA OG
LAGAHÖFUNDUR, ER 63 ÁRA
„Sterk kona sættir sig við
stríðið sem hún hefur háð og
er göfguð af örum sínum.“
Carly Simon hefur unnið til
Golden Globe og Grammy
verðlaunanna fyrir starf sitt og
var vígð í Songwriters Hall of
Fame, eða Frægðarhöll laga-
höfunda, árið 1994.
MERKISATBURÐIR
1930 Dönsku konungshjón-
in koma til Reykjavík-
ur vegna Alþingishátíð-
arinnar.
1950 Heiðmörk er lýst friðland
Reykvíkinga.
1955 Stórhlaup kemur í Múla-
kvísl og Skálm úr Kötlugjá
og tekur brýr af báðum
ánum.
1985 Reynir Pétur Ingvarsson,
vistmaður á Sólheimum
í Grímsnesi, lýkur göngu
sinni hringinn í kringum
landið.
1990 Elísabet Englandsdrottn-
ing og Filippus maður
hennar koma í þriggja
daga opinbera heimsókn
til Íslands.
Þennan dag fyrir tuttugu
árum var Vigdís Finnboga-
dóttir endurkosin forseti Ís-
lands. Hún hlaut níutíu og
fimm prósent atkvæða en
Sigrún Þorsteinsdóttir, mót-
frambjóðandi hennar, hlaut
fimm prósent atkvæða.
Vigdís var fyrsta kona
heims sem var kosin þjóð-
höfðingi í lýðræðislegum
kosningum en hún var fyrst
kosin 29. júní árið 1980 og
var þá fimmtug að aldri og
gegndi stöðu leikhússtjóra
Leikfélags Reykjavíkur. Þá
hlaut hún þrjátíu og fjögur
prósent atkvæða. Hún var endurkjörin án atkvæða-
greiðslu árið 1984, endurkjörin í kosningum 1988
og aftur endurkjörin án at-
kvæðagreiðslu árið 1992. Hún
lét af embætti árið 1996. Vig-
dís var fjórði forseti íslenska
lýðveldisins.
Vigdís er heiðursdoktor og
heiðursprófessor við háskóla
og stofnanir víða um heim og
er velgjörðarsendiherra Sam-
einuðu þjóðanna í tungumál-
um. Hún hefur löngum verið
fyrirmynd ungra stúlkna á
öllum aldri og skilaboð henn-
ar eru að menntun skipti
máli, að konur séu jafningjar
karla og að draumar geti ræst.
Síðan Vigdís lét af embætti
forseta hefur hún ekki setið auðum höndum og
hefur veitt ýmsum málefnum lið.
ÞETTA GERÐIST: 25. JÚNÍ 1988
Vigdís Finnbogadóttir endurkjörin
Fjalla-Eyvindur hefur oft orðið
mönnum að yrkisefni og var
leikrit Jóhanns Sigurjónssonar
eitt fyrsta íslenska leikritið sem
sló í gegn erlendis.