Fréttablaðið - 29.06.2008, Side 64
24 29. júní 2008 SUNNUDAGUR
sport@frettabla-
FH vann Íslandsmeistara Vals 0-1 í dramatískum
risaslag umferðarinnar þar sem sigurmarkið kom
úr vítaspyrnu í uppbótartíma.FH endurheimti þar
með toppsætið en ekkert virðist ætla ganga upp
hjá Hlíðarendaliðinu sem var betri aðilinn lengst
af í leiknum.
Keflvíkingar féllu niður í annað sætið með
1-2 tapi gegn nýliðum Fjölnis sem unnu þar
með sinn fimmta leik og eru farnir að setja smá
pressu á toppliðin.
Það gerði Fram einnig með 2-1 sigri
sínum á Breiðabliki en Safamýrarliðið
hefur enn fremur fengið fæst mörk á
sig í deildinni.
KR-ingar fóru á kostum og
hreinlega slátruðu lánlausum
HK-ingum sem eru eftir
sem áður á botni deild-
arinnar í virkilega
vondum málum.
Grindvíkingar náðu í þrjú mikilvæg stig þegar
þeir unnu Fylki 0-1 og hífðu sig upp um tvö sæti
í botnbaráttunni og skildu Skagamenn, sem
urðu að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Þrótti,
eftir í fallsæti.
8. UMFERÐ LANDSBANKADEILDAR KARLA: KEFLVÍKINGAR MISSTIGU SIG:
FH-ingar endurheimtu toppsætið
TÖLURNAR TALA
Flest skot: 27, KR
Flest skot á mark: 17, KR
Fæst skot: 3, HK
Hæsta meðaleink.: 6,9 Fjölnir
Lægsta meðaleink.: 4,3 HK
Grófasta liðið: 18 brot, HK
Prúðasta liðið: 9 brot, Grindav.
Flestir áhorf.: Valur-FH, 1.774
Fæstir áhorf.: Fylkir-Grindv., 742
Áhorfendur alls: 6.436
> Besti dómarinn: Kristinn
Jakobsson hlaut hæstu einkunn
fyrir áttundu umferð hjá Frét-
tablaðinu. Hann fékk 9 í einkunn
fyrir að dæma viðureign Vals og
FH á Vodafonevellinum.
Hannes Þór Halldórsson
Tommy Nielsen (4) Árni Thor Guðmundsson (2)
Auðun Helgason (2)
Gunnar Már
Guðmundsson (2)
Scott Ramsay (4)
Kristján Hauksson (3)
Ingvar Þór
Ólason
Rafn Andri Haraldsson
Ólafur Páll SnorrasonGuðjón Baldvinsson (3)
FÓTBOLTI Nýliðar Fjölnis hafa
komið skemmtilega á óvart í
Landsbankadeild karla í sumar og
eru sem stendur í fjórða sæti
deildarinnar. Gunnar Már Guð-
mundsson eða „herra Fjölnir“ er
vitanlega sáttur með stöðu mála
en hann er uppalinn Fjölnismaður
og hefur fylgt liðinu upp úr neðstu
deild og alla leið í úrvalsdeildina.
„Það er náttúrulega ólýsanlegt
að vera að spila með Fjölni í efstu
deild, þar sem ég er búinn að vera
hjá félaginu frá því ég byrjaði að
skríða. Það er líka gaman að sjá
hvernig öll umgjörð í kringum
félagið hefur breyst með góðu
gengi. Meiri áhugi hjá yngri flokk-
unum og stuðningsmannafélagið
stórkostlegt,“ sagði Gunnar Már
sem kvað markmið sumarsins
vera skýr í Grafarvoginum.
„Við ætlum að sjá til þess að
Fjölnir festi sig í sessi í efstu
deild. Við vissum alveg hvað við
myndum geta gert í sumar og
þetta gengur ljómandi vel enn sem
komið er. Deildin er reyndar mun
jafnari en ég bjóst við og
allir virðast geta unnið
alla og menn verða því
að mæta klárir í hvern
einasta leik ef ekki á
illa að fara,“ sagði
Gunnar Már sem telur
að lykillinn að góðu gengi
liðsins sé öflugur liðs-
styrkur sem Fjölnir
fékk fyrir tímabilið
sem bættist í raun og
veru ofan á sterkan
grunn.
„Við fengum nátt-
úrulega nýtt miðvarð-
arpar fyrir sumarið,
Kristján Hauksson og
Óla Stefán Flóventsson,
auk þess sem Ágúst
Gylfason kom inn á
miðjuna hjá okkur
og það munar um
minna. Það var
sterkur kjarni
fyrir í liðinu
en það voru
ekki marg-
ir leik-
menn
með
reynslu
af því að
leika í efstu
deild og Óli Stef-
án og Gústi eru hvor um sig með
næga reynslu fyrir heilt lið, þannig
að það hefur reynst okkur vel.
Annars finnst mér liðið vera að
bæta sig með hverjum leik sem
við spilum og menn eru alltaf
minna stressaðir í hvert sinn sem
þeir fara út á völlinn,“ sagði Gunn-
ar Már sem telur enn fremur að
góður liðsandi hafi skilað liðinu
þangað sem það er nú í dag.
„Við þekkjumst allir mjög vel
og þjálfarinn sér til þess að það sé
mjög gaman á æfingum hjá okkur.
Eru menn ekki annars í þessu til
að hafa gaman? Ég held að það sé
fyrst og fremst ástæðan fyrir því
að menn eru með hérna í Grafar-
voginum að minnsta kosti. Það eru
alla vega ekki miklir peningar í
spilinu,“ sagði Gunnar Már í létt-
um dúr. omar@frettabladid.is
Fjölnir bætir sig með hverjum leik
Fjölnismaðurinn Gunnar Már Guðmundsson er leikmaður 8. umferðar Landsbankadeildar karla í fótbolta
hjá Fréttablaðinu en hann átti góðan leik fyrir nýliðana þegar þeir skelltu þáverandi toppliði Keflavíkur.
ÖFLUGUR Gunnar Már Guðmundsson hefur stimplað sig hressilega inn í Landsbankadeildinni í sumar og hefur
skorað fjögur mörk í níu leikjum með Grafarvogsliðinu. VÍKURFRÉTTIR/ÞORGILS
> Atvik umferðarinnar
Dramatískur 0-1 sigur FH á Íslandsmeisturum Vals á
Vodafonevellinum. Markið skoraði Arnar Gunnlaugsson
úr vítaspyrnu í uppbótartíma eftir að Barry Smith hafði
handleikið knöttinn á klaufalegan hátt inni í vítateignum.
> Ummæli umferðarinnar
Willum Þór Þórsson er ekki hrifinn af
frammistöðu dómara í sumar ef marka
má ummæli hans við Fréttablaðið eftir
tap Vals gegn FH. „Ég kalla eftir því að
þið fjölmiðlar sinnið ykkar hlutverki
og farið faglega yfir það hvernig
dómarar eru að standa sig.“
FÓTBOLTI Einn allra reynslumesti
dómari landsins, Hvergerðingur-
inn Ólafur Ragnarsson, mun ekki
dæma leiki á næstunni eftir að
hafa kvartað undan verkjum í
brjósti eftir að hann dæmdi leik
Fylkis og Grindavíkur í Lands-
bankadeild karla á miðvikudag-
inn.
Ólafur hefur gengið í gegnum
ýmislegt á þessu tímabili og nú
er mikil óvissa um hvort hann
geti dæmt meira í sumar. Frétta-
blaðið bar málið undir Birki
Sveinsson starfsmann dómara-
nefndar.
„Ég veit að hann kvartaði
undan miklum brjóstsviða í lok
leiksins og svo fór hann á sjúkra-
hús á eftir. Við vitum meira um
málið eftir helgi en ég held að
þetta sé nú eitthvað meira en
brjóstsviði,” sagði Birkir
raunsær.
„Við erum búnir að taka
hann úr nokkrum leikjum.
Hann átti að dæma í deild-
inni um þessa helgi og í
bikarnum í næstu
viku. Við byrjuð-
um á því og svo
ætlum við Óli að
tala saman eftir
helgi um fram-
haldið,” sagði
Birkir.
Ólafur
sjálfur vildi
ekkert ræða
við Frétta-
blaðið þegar
blaðamaður leit-
aði eftir viðtali við
hann í gær.
Þetta er enn eitt áfallið fyrir
dómarastéttina sem hefur
þurft að horfa á eftir mörgum
af sínum allra bestu dómurum
á síðustu árum. Ólafur Ragn-
arsson er á sínu nítjándi ári
sem dómari í efstu deild og
dæmdi sinn 125. leik á Fylk-
isvellinum á miðvikudags-
kvöldið. Það er enginn dóm-
ari í deildinni búinn að
dæma lengur í efstu deild
og aðeins Kristinn Jakobs-
son hefur dæmt fleiri leiki.
- óój
Dómaranefnd KSÍ hefur tekið Ólaf Ragnarsson dómara úr leikjum á næstunni:
Kvartaði undan verk í brjósti
125 LEIKIR Ólafur Ragnarsson
er annar leikjahæsti dómarinn
sem er enn að dæma í efstu
deild.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Fréttablaðið fékk
þjálfarana tólf til þess að spá
fyrir um hvernig Evrópukeppni
landsliða myndi spilast.
Aðeins einn þeirra spáði rétt
um hvaða lið spila til úrslita en
það var Ólafur H. Kristjánsson,
þjálfari Breiðabliks. Ólafur spáði
síðan Spánverjum sigri í úrslita-
leiknum.
Sex þjálfarar eiga enn mögu-
leika á að spá rétt fyrir um
Evrópumeistarana því Guðjón
Þórðarson (íA), Kristján Guð-
mundsson (Keflavík), Gunnar
Guðmundsson (HK) og Gunnar
Oddsson (Þróttur) spáðu allir
Þjóðverjum sigri en Ólafur og
Heimir Guðjónsson (FH) spáðu
aftur á móti Spáni titlinum. - óój
Spá fyrir Fréttablaðið um EM:
Ólafur með rétt
lið í úrslitum
GETSPAKUR Ólafur Helgi Kristjánsson,
þjálfari Breiðabliks. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Það má búast við
mörkum á Kaplakrikavelli í dag
þegar topplið FH fær Fram í
heimsókn en leikurinn er í 9.
umferð Landsbankadeildar karla
og sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Leikir þessara liða hafa verið
miklir markaleikir í gegnum
tíðina en alls hafa verið skoruð 45
mörk í síðustu 10 leikjum þeirra í
Landsbankadeildinni eða 4,5
mörk í leik. 24 af þessum
mörkum hafa komið í síðustu
fimm leikjum liðanna á heima-
velli FH í Kaplakrikanum.
Af þessum 24 mörkum, sem
gera rétt tæplega fimm mörk í
leik, hafa FH-ingar skorað 15 en
Framarar 9. Í fyrra skildu liðin
jöfn, 3-3, þar sem Jónas Grani
Garðarsson tryggði Fram stig
með tveimur síðustu mörkum
liðsins en hann er nú hjá FH. -óój
FH fær Fram í heimsókn:
Alltaf miklir
markaleikir
FÓTBOLTI Þróttarar taka í dag
klukkan tvö á móti Valsmönnum á
Valbjarnarvelli í Landsbankadeild
karla en Íslandsmeistarar
Valsmanna sækjast eftir sínum
fyrsta útisigri á tímabilinu.
Þrótturum hefur gengið afar
illa með Valsmenn á heimavelli í
efstu deild en Valur hefur unnið
fimm útileiki í röð gegn Þrótti og
Þróttarar hafa ekki skorað hjá
þeim í 394 mínútur í Dalnum.
Valsmenn hafa unnið fjóra
síðustu leiki liðanna í Laugardaln-
um með markatölunni 9-0 en þeir
hafa allir farið fram á aðalleik-
vanginum.
Þróttarar skoruðu síðast hjá
Val á heimavelli í 1-2 tapi 20.
ágúst 1984 en sá leikur fór
einmitt fram á Valbjarnarvellin-
um en Þróttur vann síðast
heimaleik gegn Val 1983 á gömlu
Hallarflötinni 10. júní 1983.
Þróttur hefur hins vegar unnið
tvo síðustu leiki liðanna á
Hlíðarenda og hefur ekki tapað
þar síðan 1985. - óój
Þróttarar í efstu deild:
Gengur illa
með Val heima
FIMM TÖP Í RÖÐ Þróttur hefur ekki
unnið heimaleik gegn Val í 25 ár
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.