Fréttablaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 70
50 3. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
Það kom mér á óvart þegar ég
mætti í Laugardalshöllina um átta-
leitið á þriðjudagskvöldið að hún
var stútfull af fólki. Miðasalan á
tónleika Paul Simon fór hægt af
stað og um tíma var útlit fyrir að
hætta yrði við þá, en þjóðin hefur
greinilega tekið við sér og fjöl-
mennti tímanlega í Höllina. Nokkr-
ar mínútur yfir átta gengu Paul og
meðspilararnir hans sjö inn á svið-
ið og hófu leikinn með tveimur
lögum af Graceland-plötunni,
Gumboots og Boy in the Bubble.
Stemningin í salnum var strax góð
og greinilegt að tónleikagestir
voru komnir til að skemmta sér.
Næst kom lagið Outrageous af
nýjustu plötunni, Surprise og svo
kom sérlega ryþmísk og skemmti-
leg útgáfa af Simon & Garfunkel-
slagaranum Mrs. Robinson.
Það eru greinilega frábærir
hljóðfæraleikarar sem skipa
hljómsveit Paul Simon – auk
tveggja gítarleikara, bassaleikara,
trommuleikara og ásláttarhljóð-
færaleikara spiluðu meðlimir
hennar á harmonikku, saxófóna,
trompet, flautu og hljómborð.
Útsetningarnar báru nokkurn
keim af hljómsveitinni, ryþminn
var í aðalhlutverki í flestum lag-
anna, en undantekningarnar voru
eftirminnilegar, til dæmis The
Sound of Silence sem Paul söng
einn með kassagítarinn. Umgjörð-
in var einkar stílhrein og klassísk;
– hvítt ljós á sviðinu og einlitt tjald
fyrir aftan það.
Paul spilaði góða blöndu af
gömlu og nýrra efni á tónleikun-
um, en hæst reis stemningin þegar
smellir eins og Duncan og Me and
Julio... og Graceland fengu að
hljóma. Tónleikarnir í Höllinni
voru þeir fyrstu á yfirstandandi
tónleikaferðalagi og það heyrðist
að bandið var ekki alveg búið að
spila sig saman. Á köflum var
þetta næstum því eins og að vera á
opinni æfingu, Paul gaf merki og
stjórnaði sveitinni með handapati
og augngotum.
Eftir átján laga dagskrá sem
endaði með smellinum Diamonds
on the Soles of Her Shoes fór sveit-
in af sviðinu, en tók þrjú til viðbót-
ar eftir mikið uppklapp og kom svo
á svið þriðja sinni og bætti tveimur
lögum við. Stemningin náði
hámarki í fyrra uppklappinu þegar
Still Crazy After All These Years
og You Can Call Me Al hljómuðu og
salurinn söng og dansaði með.
Á heildina litið voru þetta fínir
tónleikar. Paul Simon kann greini-
lega þá list að búa til tónleika-
stemningu. Hann á glás af flottum
lögum og setur metnað í flutning
og útsetningar. Trausti Júlíusson
Opin æfing fyrir stóran túr
TÓNLEIKAR
Paul Simon
Laugardalshöll 1. júlí
★★★★
Þrátt fyrir að tónleikar Paul Simon
í Höllinni hafi borið þess merki að
þetta voru fyrstu tónleikarnir á tón-
leikaferðalaginu voru þeir skemmti-
legir og karlinum tókst að magna upp
einstaka stemningu meðal tónleika-
gesta.
PAUL SIMON Í LAUGARDALSHÖLL Frábært band spilaði sig saman á skemmtilegum tónleikum á þriðjudagskvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Frú Norma frumsýndi barnaleik-
ritið Soffía mús á tímaflakki eftir
Sigríði Láru Sigurjónsdóttur við
tónlist Báru Sigurjónsdóttur í
byrjun júní. Sýnt er í Sláturhús-
inu, menningarhúsi á Egilsstöð-
um. Músin mun þó ferðast um
Vestfirði í sumar. „Sýningin
fjallar um stúlku sem á sér mús
og vegna þess að það er aldrei
tími til neins leggja þær af stað í
leit að tímanum,“ sagði Guðjón
Sigvaldason, leikstjóri og leikari.
Auk hans leika Halldóra Malín
Pétursdóttir, Jón Vigfússon og
Pétur Ármannsson í sýningunni.
Auk mýslunnar Soffíu eru
þrjár íslenskar frumsýningar
fyrirhugaðar í sumar fyrir
austan. Í byrjun júlí á að sýna
Ventlasvín, tilraunakennda
„devised“ sýningu í anda leik-
húss fáránleikans. Um miðjan
júlí verður dansleikhússýningin
3GM sýnd, eftir texta Jónasar
Reynis Gunnarssonar, en hún er
unnin með unglingum á vinnu-
skólaaldri. Loks fer nýtt verk
eftir Guðjón, Ég froskur, á
fjalirnar, í leikstjórn Halldóru, í
ágúst. Óhætt er að segja að aldrei
hefur gróskan verið meiri í leik-
listarlífi Austurlands. Guðjón
segir fyrsta atvinnuleikhús
Austur lands ganga vel: „Við erum
smátt og smátt að stækka.“ Frú
Norma er á þriðja starfsári sínu.
- kbs
Fjögur ný íslensk leikverk
METNAÐUR FYRIR AUSTAN Barnaleikritið
Soffía mús á tímaflakki er meðal nýrra
frumsýninga. MYND/FRÚ NORMA
...alla daga
Allt sem þú þarft...
Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins
og það eina sem kemur út alla daga vikunnar.
Lesendur vita að hverju þeir ganga þegar þeir
opna Fréttablaðið.
FÖSTUDAGUR
8. FEBRÚAR 200
8
FYLGIRIT FRÉT
TABLAÐSINS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 8 L
HANCOCK kl. 8 - 10 12
INCREDIBLE HULK kl. 10 12
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 4D - 6D L
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 4 - 6 VIP
KUNG FU PANDA M/ENSKU kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
HANCOCK kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 12
HANCOCK kl. 8 - 10:10 VIP
WANTED kl. 5:30 - 8 - 10:20 - 10:40 16
NARNIA 2 kl. 5 - 8 7
INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:20 12
WANTED kl. 8:30D - 10:50D 16
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 6:30D L
NARNIA 2 kl. 6D 7
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9 14
THE BANK JOB kl. 9 - 11:10 16
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 6 L
WANTED kl. 8 - 10 12
NARNIA 2 kl. 6 7
THE BANK JOB kl. 9 16
HANCOCK kl. 8 - 10:10 12
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 8 L
WANTED kl. 10:10 16
DIGITAL
DIGITAL
DIGITAL
ÞAÐ ER KOMINN NÝR HROTTI Í
FANGELSIÐ...AF MINNI GERÐINNI!
HEIMSFRUMSÝNING NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
12
12
10
HANCOCK kl. 6 - 8 - 10
BIG STAN kl. 8
THE HAPPENING kl. 10 síðasta sýning
12
7
16
HANCOCK D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
HANCOCK LÚXUS D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 ÍSL. TAL
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8 - 10.30
ZOHAN kl. 8 - 10.30
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
12
14
HANCOCK kl. 6 - 8.30 - 10.30
KUNG FU PANDA kl. 6 - 8 -10 ENSKT TAL
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9
5%
5%
SÍMI 551 9000
12
16
7
14
10
12
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8 - 10.30
HAPPENING kl. 8 -10.10
MEET BILL kl. 5.50 - 8
SEX AND THE CITY kl. 7 - 10
ZOHAN kl. 5.30
INDIANA JONES 4 kl. 10.20
SÍMI 530 1919
Jack Black sannar
að hann er einn af
fyndnustu grínleikurunum
í heiminum í dag.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HANCOCK kl. 4, 6, 8 og 10.10(D) 12
KUNG FU PANDA kl. 4 og 6 (D) L
WANTED kl. 8 og 10.10 16
NARNIA: PRINCE CASPIAN kl. 5 7
SEX AND THE CITY kl. 10.10 14
M Y N D O G H L J Ó Ð M Y N D O G H L J Ó Ð