Fréttablaðið - 22.07.2008, Síða 8
8 22. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1 Hver er einkaþjálfari Lárusar
Welding, forstjóra Glitnis?
2 Hvaða fornfrægu stofnun
vilja þingmenn Samfylkingar-
innar endurreisa?
3 Hvernig fór leikur Skaga-
manna og Blika í knattspyrnu
karla um helgina?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
ÍRAK Bandarískir hermenn drápu
frænda og sautján ára son
héraðsstjóra í Salaheddin-héraði í
Norður-Írak á sunnudag, að því er
vefmiðill al-Jazeera greinir frá.
Segir að hermennirnir hafi
ráðist inn í hús sem fjölskyldan
átti. Þeir hafi komið að drengjun-
um með byssur í höndunum, talið
þá hættulega og skotið þá.
Bandaríkjaher segist hafa
handtekið liðsmann Al-Kaída í
árásinni.
Fjölskylda drengjanna hefur
fordæmt atvikið og krafist
rannsóknar. - gh
Bandarískir hermenn:
Drápu son hér-
aðsstjóra í Írak
BANDARÍSKIR HERMENN
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVISS, AP Evrópusambandið (ESB)
bauðst í gær til að skera niður tolla
á innfluttum landbúnaðarafurðum
um sextíu prósent á Doha-ráðstefnu
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
(WTO).
WTO er alþjóðastofnun sem
ætlað er að greiða fyrir alþjóðleg-
um viðskiptum. Flest ríki heims
eiga aðild að stofnuninni, þar á
meðal ríki Evrópusambandsins,
Bandaríkin, Kína, Indland og Bras-
ilía.
Doha-ráðstefnan hefur staðið í
sjö ár án niðurstöðu. Tilgangur
hennar var að komast að samkomu-
lagi um lækkun tolla og alþjóðlegt
viðskiptaumhverfi sem efldi hag
fátækari ríkja.
Í gær hófst maraþonvika í Doha-
ráðstefnunni og er líklegt að dipl-
ómatar muni sitja fundi daga og
nætur næstu sólarhringa. Stjórn-
málaskýrendur segja að ef niður-
staða náist ekki í vikunni sé líklega
úti um samkomulag.
Samkomulag hefur hingað til
einkum strandað á deilu þróunar-
landa og ríkari landa Evrópu og
Norður-Ameríku. Þróunarlönd vilja
að ríku löndin lækki landbúnaðar-
tolla og dragi úr niðurgreiðslum í
landbúnaði. Ríku löndin vilja að
þróunarlöndin dragi úr höftum á
innflutningi iðnaðarvarnings og
þjónustu, einkum bankastarfsemi.
ESB vonast til þess að nýjasta
útspilið, besta tilboð sambandsins
hingað til, muni auðvelda samkomu-
lag. Líklega eykur það þrýsting á
Bandaríkin um svipaðar tilslakanir.
Óvíst er hins vegar að þróunar-
ríki verði fús til að koma til móts
við kröfur ríkari landanna. Stór
hluti tekna fátækari landa kemur
frá innflutningstollum og þau telja
þá mikilvæga til að vernda nýsköp-
un í iðnaði og þjónustu. Nýleg rann-
sókn Alþjóðabankans benti til þess
að fátæk ríki myndu lítið hagnast á
samningnum sem ríku löndin hafa
boðið.
Náist ekki samkomulag á Doha-
ráðstefnunni er líklegt að athygli
ríkja beinist frá alþjóðlegum við-
skiptum og að svæðisbundnum við-
skiptablokkum á borð við Evrópu-
sambandið og Fríverslunarsamtök
Norður-Ameríku. Slíkt fyrirkomu-
lag kæmi helst niður á veikari ríkj-
um með slaka samningsstöðu.
gunnlaugurh@frettabladid.is
Evrópusambandið vill lækka
tolla um sextíu af hundraði
ESB bauðst í gær til að lækka tolla á innfluttum landbúnaðarafurðum um sextíu prósent. Vonast samband-
ið til að tilboðið hleypi lífi í viðskipaviðræður sem staðið hafa í sjö ár á vegum WTO án niðurstöðu.
FRANSKIR BÆNDUR Franskir og írskir bændur eru andvígir lækkun landbúnaðartolla í ESB. NORDICPHOTOS/AFP
Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) er alþjóðleg stofn-
un 153 ríkja sem ætlað er að stuðla að verslunar-
frelsi í heiminum og skera úr ágreiningsmálum ríkja
um viðskipti. Ákvarðanir stofnunarinnar eru bind-
andi og hún getur heimilað viðskiptaþvinganir gegn
aðildarríkjum sem brjóta reglur stofnunarinnar.
Stofnunin, sem á aðsetur í Genf í Sviss, varð til
1995. Hún tók við af GATT, viðskiptasáttmála sem
23 ríki samþykktu 1948.
Æðsta vald WTO er ráðherraráðið. Ráðið hittist á
tveggja ára fresti og kýs meðal annars framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar.
ALÞJÓÐAVIÐSKIPTASTOFNUNIN
FÓLK Georg Eiður Arnarson frá Vestmannaeyjum
hefur veitt lunda í næstum því þrjátíu ár.
„Mér finnst það vera mikil forréttindi að fá að veiða
lundann, þetta hefur veitt mér mikla ánægju í öll
þessi ár,“ segir hann. Georg sinnir einnig trillu-
útgerð en segist njóta sín best með lundanum.
„Ég fór vestur að Dalsfjalli í norðankalda um
daginn og náði í tæplega 160 lunda á þremur
tímum,“ segir hann en tekur það fram að lundaveið-
ar séu ekki fyrir alla.
„Þetta er mikið puð. Það þarf að bera lundann
fram og til baka frá veiðistaðnum,“ segir Georg.
Hann segir unga fólkið ekki hafa mikinn áhuga á
lundanum. „Fuglinn er lúsugur og manni verður
mjög heitt við þetta og svitnar mikið.“
Georg segir að það sé margt að læra ef stunda á
lundaveiðar. „Það tók mig nokkur ár að læra þetta,
það þarf að læra á fuglinn og mikið um vindáttir.“
Lundinn flýgur á móti vindi og því skiptir vindáttin
öllu þegar háfurinn er mundaður.
„Það þarf líka að hugsa mikið um hvaða fugl er
verið að veiða, það veiðir til dæmis enginn vanur
maður sílafugla, þeir þurfa að sjálfsögðu að koma
með æti. Það væri eins að kippa fótunum undan
stofninum.“ - hþj
Georg Eiður Arnarsson náði 160 lundum á þremur tímum í Vestmannaeyjum:
Forréttindi að veiða lundann
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti sjómann sem fallið hafði
niður stiga um borð í íslenskum
togara norður af Horni síðdegis í
gær.
Stefndi togarinn í átt að Ísafirði
og var kominn að Fljótavík þegar
þyrlan kom á staðinn.
Slasaði sjómaðurinn var hífður
upp í þyrluna sem lenti við
Landspítala í Fossvogi á sjöunda
tímanum í gærkvöldi. Hann
kvartaði um eymsli í baki og
hafði einnig hlotið höfuðáverka.
- ht
Þyrla Landhelgisgæslunnar:
Sótti sjómann
að Fljótavík
GEORG MEÐ LUNDANN Á HEIMLEIÐ Hann segir veiðarnar
mikið puð og alls ekki fyrir alla að hafa gaman af.
STJÓRNMÁL Áður en þingfrestun
var í vor sagðist Geir H. Haarde
forsætisráðherra ætla að halda
fund í sumar með formönnum
stjórnarandstöðuflokkanna til að
ræða eftirlaunafrumvarpið.
„Það hefur ekki verið boðað til
þessa fundar enn og ég hef engar
upplýsingar um hvenær hann
verður boðaður,“ segir Steingrím-
ur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna.
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, segist hafa
hitt Geir H. Haarde á förnum
vegi um daginn og hann sagt að
fundur yrði haldinn í ágúst.
- vsp
Eftirlaunafrumvarpið:
Fundarboð hef-
ur ekki borist
PASCAL LAMY Núver-
andi framkvæmda-
stjóri WTO.
NORDICPHOTOS7AFP
VEISTU SVARIÐ?
SKIPULAGSMÁL Mýrargata og Geirs-
gata verða lagðar í samfelldan lok-
aðan stokk frá Ánanaustum að
Sæbraut til móts við Faxagötu ef
farið verður að tillögum umhverfis-
og samgönguráðs Reykjavíkurborg-
ar.
Í bókun ráðsins frá 15. júlí er
þetta lagt til. Að auki verði gert ráð
fyrir almenningssamgöngum fyrir
strætó, léttlestakerfi og hjólarein-
um á yfirborði stokkanna.
Þörf er sögð á fjórum akreinum í
stokknum svo hann anni vel umferð
og er vísað í umferðarspá sem bygg-
ist á áætlunum sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu því til stuðnings.
Fulltrúi Vinstri grænna í
nefndinni var einn um að greiða
atkvæði gegn bókuninni. „Við telj-
um komið að því að hætta að greiða
svona mikið fyrir bílaumferð í mið-
borginni,“ segir Þorleifur Gunn-
laugsson, borgarfulltrúi Vinstri
grænna. „Við viljum hugsa hlutina
upp á nýtt í stað þess að miða við
áframhaldandi einkabílisma í anda
amerískrar bílaborgar.“
Vegna áætlaðrar byggðar í Örfir-
is ey telur Þorleifur einfaldara að
gera göng en stokka. „Þær áætlanir
eru jafnvel fjórum milljörðum ódýr-
ari en þann kost þarf að rannsaka
frekar.“ Hann segir að vegna bygg-
ingar tónlistar- og ráðstefnuhúss
geti menn hins vegar ekki beðið
eftir niðurstöðum rannsókna. „Það
er raunverulega verið að gera þenn-
an stokk fyrir Portus, eigendur tón-
listar- og ráðstefnuhússins.“ - ovd
Fulltrúi Vinstri grænna í borgarstjórn segir umferðarstokk gerðan fyrir Portus:
Mýrargata og Geirsgata í stokk
UMFERÐARSTOKKUR Á MÝRARGÖTU
Gert er ráð fyrir að árið 2017 fari 31
þúsund bílar um Geirsgötu við Tollhúsið
á hverjum sólarhring.
Af sérstökum ástæðum er til sölu veitinga-
staður í Miðborginni með mikla aðsókn
og góða afkomu. Húsnæði getur fylgt.
Ragnar Tómasson 896 2222
Veitingahús
– fullt alla daga!