Fréttablaðið - 22.07.2008, Síða 22
● lh hestar 22. JÚLÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR2
Á
tjánda Landsmóti hestamanna lauk með magnþrunginni keppni
í A-flokki gæðinga sjötta júlí síðastliðinn. Það var gleðilegt að
líta yfir mótssvæðið á Gaddstaðaflötum þar sem litskrúðugt mann-
hafið breiddi úr sér í brekkunni og hyllti hrossin og knapa þeirra ákaft
í lokin.
Það er mikil sæmd hverjum hestamanni að koma gæðingi sínum
á Landsmót. Að baki liggur margra ára þrotlaus vinna, seigla og ein-
beitni. Á Landsmótum skipa knapar og hross fyrsta sess í gríðarlega
umfangsmikilli sýningu og keppni sem í dag er stærsti íþróttaviðburð-
ur landsins. Draumur margra ræktenda rættist á Landsmótinu á Hellu
og óska ég þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Ein-
hverjir urðu að vonum vonsviknir en mæta vonandi til leiks á ný með
áræðnina í farteskinu á Vindheimamela í Skagafjörð árið 2010.
Þrátt fyrir að íslenski gæðingurinn skipi ávallt höfuðsess á Lands-
mótum hefur þetta fjölsótta mót margar aðrar hliðar. Hestamennskan
er í senn atvinnugrein og kaupmennska, en er að sama skapi fjölskyldu-
væn íþrótt þar sem ungir jafnt sem aldnir taka þátt. Landsmótin bera
keim af þessu og hafa yfir sér skemmtilegan blæ íþróttarinnar í bland
við sölu- og markaðsmál, útihátíðarstemningu og fjölþjóðleika.
Metaðsókn var á Landsmót hestamanna í þetta skiptið og það er
sannfæring mín að þessi viðburður eigi mikla möguleika á að vaxa og
dafna enn frekar hestamennskunni í landinu til framdráttar.
Landsmótið í ár er hið fjórða í röðinni sem rekið er undir merkjum
einkahlutafélags. Mikil og dýrmæt reynsla hefur safnast á þessum
árum og tel ég nauðsynlegt að staldrað verði við, litið yfir farinn veg
og sýn mótuð inn í framtíðina. Þannig
vinnum við enn betur að ævintýrum
íslenska hestsins á Vindheimamelum
árið 2010. Ég þakka hestamönnum og
öllum hlutaðeigandi frábært samstarf
á Gaddstaðaflötum 2008.
Jóna Fanney Friðriksdóttir,
framkvæmdastjóri Landsmóts 2008.
Að loknu landsmóti
Svo virðist sem hliðgæsla og
almenn gæsla á LM2008 hafi
ekki verið sem skyldi. Aðal-
hlið voru ekki mönnuð allan
sólarhringinn eins og venja er
á Landsmótum. Hópar ung-
linga sem ekki keyptu sig inn
á mótið komust óáreittir inn á
tjaldstæðin og ollu þar nokkr-
um usla.
STJÓRNUNIN BRÁST
„Það var skýr stefna mótsstjórn-
ar að tjaldstæðin áttu aðeins að
vera fyrir gesti Landsmóts,“ segir
Jóna Fanney Friðriksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Landsmóts. „Sú
breyting var gerð á skipulagi svæð-
isins að keppnis- og sýningarsvæð-
ið var girt af, en tjaldstæðin höfð
áfram á sínum stað fyrir utan. Það
er skýrt kveðið á um það í samningi
við Flugbjörgunarsveitina á Hellu
að aðeins gestir með armband
LM2008 hefðu aðgang að tjaldstæð-
unum. Ég vil taka það fram að við
berum mikla virðingu fyrir óeigin-
gjörnu starfi björgunarsveitanna
í landinu. En í þessu tilviki erum
við að greiða háar fjárhæðir fyrir
þessa þjónustu. Því miður virð-
ist eitthvað hafa farið úrskeiðis í
stjórnun gæslunnar að þessu sinni
og það olli mér og öðrum veruleg-
um vonbrigðum. Þegar bæði fram-
kvæmdastjóri og mótsstjóri finna
sig knúna til að taka sér stöðu í
hliðgæslu þá er eitthvað að.“
FJÁRHAGSLEGT TJÓN HUGSANLEGT
LH Hestar hafa öruggar heimild-
ir fyrir því að aðalhliðið var ekki
mannað allan sólarhringinn og fólk
fór um hliðið í einhverjum mæli
óáreitt. Er ekki ljóst að einhverjir
hafa komist inn á svæðið án þess
að borga og að LM hafi orðið fyrir
fjárhagslegu tjóni?
„Það er of snemmt að fullyrða
nokkuð í þessu sambandi. Við
erum með þetta mál til skoðunar
og erum að safna saman upplýs-
ingum. Auðvitað er það fjárhags-
legt tjón ef margir komast inn án
þess að kaupa miða. En það er ekki
síður tjón fyrir ímynd Landsmóts-
ins að unglingar skuli geta hreiðr-
að um sig á tjaldstæðunum og verið
þar með óspektir og drykkjulæti.
Okkur þykir mjög leitt að þetta
skyldi henda og ég vil biðja þá sem
í hlut eiga velvirðingar fyrir hönd
Landsmóts,“ segir Jóna Fanney að
lokum.
Brestir í gæslu á
Landsmóti 2008
Séð yfir hluta tjaldstæðanna á Gaddstaðaflötum. Það eru hins vegar tjaldbúðir víkinganna í Rimmugýgi sem eru í forgrunni.
MYND/JENS EINARSSON
„Landsmótið tókst í megin-
atriðum vel,“ segir Haraldur
Þórarinsson, formaður LH.
„Dagskráin hélst í skorðum,
keppni og sýningar fóru vel
fram og fólk skemmti sér vel.
En eins og gengur voru nokkur
atriði sem hefðu mátt betur
fara.“
NOKKUR GRUNDVALLARATRIÐI
„Það eru nokkur grundvallar atriði
sem verða að vera í lagi á svona
stórum útisamkomum svo allir
verði ánægðir. Fólk verður að
hafa greiðan aðgang að veitingum
á viðunandi verði. Ég held að flest-
ir hafi verið sáttir við þann þátt.
Í öðru lagi þarf fólk að geta verið
öruggt með að fá næði til að hvíl-
ast, geta verið öruggt á sínu tjald-
stæði. Í þriðja lagi eru það salernis-
málin og í fjórða lagi veðrið.“
ÓFYRIRSÉÐAR UPPÁKOMUR
„Við urðum fyrir ófyrirséðum
óþægindum á þessu móti. Í fyrsta
lagi var veðrið ekki alveg upp á
það besta fyrri part vikunnar og
tvisvar gerði hreinlega storm í
nokkra klukkutíma þannig að allt
ætlaði um koll að keyra. Í öðru
lagi fengum við óboðna gesti inn
á tjaldstæðin, sem komu í þeim
eina tilgangi að vera með ófrið
og drykkjulæti. Þetta raskaði
ró okkar fólks. Sumir urðu fyrir
verulegri truflun og óþægindum.
Í þriðja lagi sköpuðust biðraðir
við salerni á mestu álagstímum;
vandamál sem ætti að heyra for-
tíðinni til. Þessi mál verða tekin
til rækilegrar skoðunar og verða
örugglega rædd á ársþingi LH í
haust. Að sjálfsögðu getum við
ekki ráðið við veðrið, en skipulag-
ið getum við bætt,“ segir Harald-
ur Þórarinsson.
Í meginatriðum gott
Haraldur Þórarinsson ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra
við setningu Landsmóts 2008. MYND/JENS EINARSSON
Málgagn Landssambands hestamannafélaga
Útgefandi: Landssamband hestamannafélaga
Heimilisfang: Íþróttamiðstöðin, Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Netfang: lh@isisport.is Sími: 514-4030
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jens Einarsson
Netfang: jenseinars@simnet.is Sími: 862-7898
Auglýsingar: Fréttablaðið/Bjarni Þór Sigurðsson
sími: 512-5435, GSM 822-5062
HELSTU SAMSTARFSAÐILAR LH ERU:
lh hestar
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL
„Nánast hver einasti einstakling-
ur á tjaldstæðunum var með arm-
band LM2008. Þeir sem komu í
sjúkraskýli og þeir sem lögregla
þurfti að hafa afskipti af voru
með armband,“ segir Svanur
Sævar Lárusson, formaður Flug-
björgunarsveitarinnar á Hellu,
sem sá um gæslu á Gaddstaða-
flötum.
„Að okkar mati og lögreglunn-
ar fór þessi fjölmenna samkoma
mjög vel fram. Sögur um skríls-
læti utanaðkomandi hópa sem
borguðu sig ekki inn eiga ekki
við rök að styðjast nema að mjög
litlu leyti. Engin alvarleg slys
urðu á fólki og engar kærur bár-
ust vegna meintra brota.
Tjaldstæðin voru hins vegar
ekki vel skipulögð. Ólíkir hópar
voru of nálægt hverjir öðrum.
Það eru alltaf nokkrir sem fara
offari í að skemmta sér. En ég
kalla það ekki skrílslæti að syngja
og spila á gítar. Það heldur vissu-
lega vöku fyrir fólki sem ætlar
að fara snemma að sofa í næsta
tjaldi. En við getum ekki geng-
ið tjald úr tjaldi og sagt fólki að
fara í háttinn klukkan eitt.
Það voru líka mistök að vera
ekki með aðalhliðið út við veg
eins og verið hefur. Að lokum þá
tel ég rétt að geta þess að fulltrú-
ar Landsmóts ehf. lögðu mikla
áherslu á að halda starfsfólki
okkar í lágmarki. Okkur tókst að
hífa þá tölu aðeins upp. En tveir
til fjórir menn í gæslu á tjald-
stæði sem er nokkrir hektarar að
stærð dugar engan veginn. Það
sjá allir,“ segir Svanur Sævar
Lárusson.
Skipulagsleysi fremur
heldur en skrílslæti