Fréttablaðið - 22.07.2008, Síða 44

Fréttablaðið - 22.07.2008, Síða 44
20 22. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR Ég fer mikið í bíó og bíð spennt, eins og margir, eftir Dark Knight, nýju Batman- myndinni. Það er þó ekki alveg laust við það að mér sé farið að finnast nóg um hetju- myndaflóðið. Á þessu ári höfum við þegar fengið að líta Hulk, Iron Man, Hancock og Hell- boy og ekki sér fyrir endann á þessu æði. Þá eru ekki meðtaldar þær hetjur sem ekki birtast í formi fígúru, Indiana Jones, bræðralag leigumorðingja í Wanted og fleiri. Hvert sem maður lítur er einhver að bjarga heiminum. Ekki mis- skilja mig, þetta eru afbragðs myndir upp til hópa og skemmt- anagildi þeirra er óumdeilanlegt. Það sem truflar mig er ástæðan fyrir æðinu, orsökin frekar en afleiðingin. Er heimurinn svo illa staddur að honum þarf sífellt að vera að bjarga? Og hver bjargar þá hinum raunverulega heimi? Ein af mögulegum ástæðum gæti verið þörf fólks til að sjá líf með tilgang, ólíkt þeirra eigin. Hvað er tilgangsfyllra en það að hafa örlög heimsins í höndum sér? Sumir segja að eftir 11. september sam- sami almúginn sér með fólki í hættu og þrái lausn, hetju sem kemur þeim til bjargar. En er barátta meðalmannsins, í Bandaríkjunum sem og hér, ekki mun persónulegri, ógnin lúmskari? Baráttan við að halda vinnunni, geta borgað af lánum og rekið bíl- inn. Þá væri nær að finna upp nýjar hetjur, Bensín-manninn, Hagkerf- ishetjuna og Atvinnuaflarann. Ég veit ekki um aðra, en glæpagengi plaga mig ekki í mínu daglega lífi. Nema þá í formi ríkisstjórna og ráðamanna. Ég bý ekki í Gotham. Þessar hetjur eru reyndar meingallaðar. Hellboy og Hancock kunna ekkert á samskipti, eru ein- mana og utanveltu. Hulk ræður ekki við eðli sitt og gereyðingar- mátt. Iron Man er rotinn vopnasali og egóisti. Minnir þetta nokkuð á stjórnmálamenn heimsins? Það er þá kannski ekki furða að almenn- ing dreymi um menn sem breytast í hetjur. STUÐ MILLI STRÍÐA Allir eru að bjarga heiminum KOLBRÚN BJÖRT SIGFÚSDÓTTIR ER Á HÖTTUNUM EFTIR HETJU ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Beituverslun Villa Opið Við erum með orma! Við líka, en við auglýsum það ekki! Óglatt aftur? Svolítið, já! Ef ég gæti tekið þetta að mér myndi ég gera það! In a flash! Ógleði, mjaðmagliðnun og hríðir! Bring it on! Lygari! Ég veit! Glaður að vera maður! En þú missir samt af dálitlu! Tilfinningunni að bera líf innra með þér! Eins og fólk- ið í Alien! Allt í einu ... skvíííííík! Óglatt aftur? Viltu rétta mér saltið? Gjörðu svo vel Hvar eru salt- og piparkvarnirnar? Seldi þær á netinu Hvað sagðirðu!? Og fullt af öðru dóti sem við þurfum ekki á að halda. Sniðugt, ekki satt? Það er ótrúlegt hvað fólk kaupir. Gefðu mér þetta!! Ó, Sfinx, tveir skunkar eru skotnir í mér. Jón og Hermann. Segðu mér hvor þeirra verður sá heppni? Jón vill giftast þér! Hermann vill vera heppinn. Hún á afmæli í daag! Ptuuuuhhhhh! Ó! Alveg eins og í fyrra Kannski ættum við að láta eitt kerti duga á næsta ári TILBOÐ TIL HLUTHAFA 365 HF. 365 – Skaftahlíð 24 – 105 Reykjavík – Sími 512 5000 – www.365.is Tilboð opnað að nýju til miðvikudagsins 23. júlí 2008 kl. 16.00 Vegna fyrirhugaðrar afskráningar 365 hf. af skipu- legum verðbréfamarkaði er hluthöfum 365 hf. gert tilboð um að selja hlutabréf sín í félaginu á gengi 1,20 kr. á hvern hlut. Tilboðið gilti til 11. júlí síðastliðinn en ákveðið hefur verið að opna það að nýju og mun tilboðið vera opið til kl. 16.00 þann 23. júlí næstkomandi. Þeir hluthafar sem hafa ekki hug á að taka tilboðinu halda ósjálfrátt áfram sem hluthafar í óskráðu félagi 365. Tilboðið er lagt fram á grundvelli nánari skilmála sem koma fram í bréfi sem sent var til hluthafa 3. júlí síðastliðinn. Í bréfinu eru einnig leiðbeiningar um tilboðið ásamt notandanafni og lykilorði, sem hluthafi verður að nota til að taka þátt í tilboðinu. Ef bréfið hefur ekki borist hluthafa skal hafa samband við 365 í síma 512 5000, þar sem eru veittar allar upplýsingar. Stjórn 365 hf. GANGA.IS Ungmennafélag Íslands Auglýsingasími – Mest lesið með ánægju Vodafonehöllinni 24. júlí Miðasala á midi.is Sumartónleikar ársins í boði Iceland Express Buena vista social club

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.