Fréttablaðið - 22.07.2008, Síða 45
ÞRIÐJUDAGUR 22. júlí 2008 21
Nýr formaður hefur verið
skipaður fyrir samstarfs-
sjóð Íslands og Danmerkur
– Fondet for Dansk-Islandsk
Samarbejde – Jörn Lind í
stað Bent A. Koch fyrrver-
andi ritstjóra sem hefur
gegnt formennsku í sjóðn-
um um áratuga skeið.
Jörn er formaður í Det danske
Sprog- og Literaturselskab og
sinnti formennsku í hinni umtöl-
uðu nefnd sem valdi útvalsverk
danskrar menningar – svokallaða
kanónu.
Bent A. Koch hefur um árabil
reynst Íslendingum haukur í horni í
flestum málum sem varðað hafa
samskipti þjóðanna. Hann hefur
gegnt formennsku í sjóðnum í 44 ár
og á marga vini hér á landi. hann lét
af formennskunni á stjórnarfundi
sjóðsins hér á landi snemma í þess-
um mánuði og sótti á þessum tíma-
mótum heim ýmsa forystumenn í
menningarlífi hér og stjórnsýslu.
Sjóðurinn var stofnaður eftir
stríð og hafði það beinlínis á stefnu-
skránni að styrkja samstarf land-
anna eftir stofnun lýðveldisins sem
mæltist misjafnlega fyrir í Dan-
mörku. Hann hefur hin síðari ár
einkum styrkt heimsóknir barna á
vegum skólastofnana milli land-
anna, en styrkir einnig heimsóknir
danskra og íslenskra lista og vís-
indamanna, forystumenn úr ung-
mennastarfi.
Það eru vaxtatekjur af sjóðseign-
inni sem úthlutað er og hafa sjóðn-
um af og til borist tillegg sem bæt-
ast við höfuðstólinn, síðast frá
Baugi. Hann er ásamt fleiri nor-
rænum sjóðum mikill styrkur fyrir
samskipti milli þjóðanna og hefur
undir forystu Kochs staðið fyrir
mörgum góðum fundum milli þess-
ara fornu þegnþjóða Danakonungs.
pbb@frettabladid.is
Fornvinur víkur um set
MENNING Bent A. Koch ritstjóri lætur af
formennsku í samstarfsþjóði dana og
Íslendinga eftir hátt í hálfrar aldar starf
menning@frettabladid.is
Diskur með sönglögum Benny Anderson og
Björn Ulveaus úr kvikmyndinni Mamma
mia! þaut upp Billboard-listann í vikunni sem
leið og kom inn á listann í sjöunda sæti en
myndin var frumsýnd vestanhafs hinn 11.
júlí. Hefur þessum herrum ekki tekist eins
vel í sölu áður. Abba Gold er líka stokkin upp
listann en hún var á sínum tíma í tvö ár á
listanum.
Velgengni laganna sem Benny Anderson
stýrði nýjum upptökum á eykur verulega
líkurnar á að þeim félögum takist að koma
söngleik sínum eftir sögum Vilhelm Moberg,
Kristínu frá Duvemala, á svið vestanhafs
sem þeir hafa stefnt leynt og ljóst að um
margra ára skeið.
Sölukippurinn og velgengni Mamma mia!
vestanhafs glæða vonir um að Abba slái
loksins í gegn í Ameríku sem þeim gekk
aldrei þrátt fyrir sterka stöðu á flestum
öðrum mörkuðum.
Mamma mia! situr nú í efsta sæti vin-
sældalistans í kvikmyndahúsum hér á landi
en myndina höfðu ríflega 30 þúsund gestir
séð eftir helgina. Athygli vekur að konur eru
víða í miklum meirihluta gesta og fara í
hópum, jafnvel fleiri en ein kynslóð. Þá er
þegar tekið að gæta þess að ungir áhorfendur
sjái myndina oftar en einu sinni. - pbb
Abba selst og selst
TÓNLIST Sænsku poppararnir ásamt söngkonum
sínum og um tíma eiginkonum á þeim tíma þegar
frægð þeirra stóð sem hæst.
Ysti hringurinn eftir
Alexander Solsenit-
syn, sem hann lauk
við 1964 og kom út
skömmu síðar í Sovét-
ríkjunum í styttri
útgáfu og var þá bann-
aður, er nú loks vænt-
anlegur í enskri þýð-
ingu óstyttur og má
vænta þess að þýðing-
ar á fleiri tungur fylgi
í kjölfarið. Sagan sem
af mörgum er talin
eitt höfuðverk hins
aldna skálds var þrátt
fyrir styttingar hans
til að þóknast sov-
éskum yfirvöldum
bönnuð þar í landi en
handritinu með styttingum var
smyglað út og kom sagan víða út
á Vesturlöndum í kjölfarið. Var
útgáfan umdeild, sökum þess að
hún setti höfundinn í
hættu. Sjálfur lagðist
hann opinberlega
gegn útgáfunni, taldi
menn vilja græða á
sér.
Sagan gerist í fanga-
búðum Síberíu, rétt
eins og Dagur í lífi
Ivans Denisovitz og
Gúlag-eyjarnar sem
báðar voru þýddar á
íslensku. Þýðingin af
öllu verkinu var tilbú-
in 2005 en útgáfa
hefur dregist sökum
fráfalls þýðandans.
Sagnaskáldið er nú
komið hátt á níræðis-
aldur en vinnur lát-
laust að frágangi á verkum
sínum sem koma nú út í loka-
gerðum hans í Moskvu.
- pbb
Ysti hringurinn heill
BÓKMENNTIR Alexander
Solsenitsyn. Ritsafn hans
er þessi misserin að
koma loks út í heild sinni
í Rússlandi.
Metropolitan-óperan í New York
sendi í fyrravetur út í háskerpu-
útsendingu sex óperusýningar sem
varpað var á stór tjöld valinna kvik-
myndahúsa víðs vegar um Banda-
ríkin og Kanada. Þær koma allar út
á diskum í haust, en á komandi vetri
verður haldið áfram sýningum af
þessu tagi og verða þá ellefu sýn-
ingar sendar á valda sýningarstaði.
Með þessari dreifingartilhögun
hefur Metropolitan stækkað áhorf-
endahóp sinn en óperuunnendur
eru víða um lönd soltnir af verkum
þeirra höfunda sem sinnt hafa
þessu kröfuharða formi. Fetar óper-
an slóð rokksveita, en Bon Jovi var
fyrst hljómsveita til að nýta sér
þessa tækni og hafa ýmsir sótt í
sama farið, eins og Sigur Rós.
Ekki er vitað til að íslenskir kvik-
myndahúsaeigendur hafi sýnt
þessu efni áhuga, en Norræna
húsið hafði lýst áhuga á að taka
upp slíka þjónustu. Telja má víst að
sá tugur þúsunda óperuáhuga-
manna sem halda uppi aðsókn að
óperusýningum Íslensku óperunn-
ar hefði áhuga á slíkum sýningum.
Meðal verkanna sem sýnd voru í
fyrra og koma út í haust eru Hansel
og Gretel eftir Humperdinck, Mak-
beð Verdis, Fyrsti keisarinn eftir
Tan Dun sem Placido Domingo
söng, Manon eftir Pucchini með
finnsku sópransöngkonunni Karitu
Mattila, Peter Grimes eftir Britta-
in og La Boheme með Angelu
Gheorghiu og Ramon Vargas.
Það er vefurinn sem gerir þessar
útsendingar mögulegar en minna
má á að ein röksemd fyrir síman-
um á sínum tíma var sú að hann
gæfi mönnum tækifæri til að hlusta
á beinar útsendingar á óperum.
- pbb
Óperur í bíó
TÓNLIST Óperusýningar um net færast
í vöxt og hver vill ekki heyra og sjá
Placido í beinni útsendingu í góðum
græjum og á stóru tjaldi?
ATH
Nú stendur sem hæst sýningin
STRAUMAR í Listasafni ASÍ í Ásmund-
arsal við Freyjugötu. Á sýningunni eru
verk sem spanna hundrað ára skeið í
íslenskri listasögu; elstu verkin á
sýningunni eru rómantísk landslagsverk
Þórarins B. Þorlákssonar frá byrjun
síðustu aldar en það yngsta er lágmynd
Svövu Björnsdóttur. Ásmundarsalur er
helgaður Þingvöllum og hugmyndum
um íslenskt þjóðerni sem verið hafa
leiðarmótív í íslenskri myndlist frá 1930
og tekið á sig ólíkar birtingarmyndir.
Safnið er opið alla daga nema mánu-
daga frá 14-18 og er aðgangur ókeypis.
> Ekki missa af …
danskri þáttaröð um rang-
hverfuna á nítjándu öldinni,
þeim tíma sem skóp íslenska
sjálfstæðishreyfingu. Fyrsti
þátturinn er á dagskrá á Ríkis-
sjónvarpinu í kvöld kl. 21.15
og fjallar um þann tíma þegar
Danir misstu tök á nýlendu
sinni í norðri vegna ófriðar í
Evrópu. Ráðist var á Kaup-
mannahöfn og Englendingar
gerðu danska flotann upp-
tækan, ríkið varð gjaldþrota
og sumir söknuðu Noregs. En
í þessu litla landi kraumuðu
tilfinningar og trúin á listina
og vísindin. Ein af aðalpers-
ónum þessa skeiðs var Adam
Oehlenschläger sem átti sér
marga aðdáendur hér á landi
er líða tók á öldina.
Daniel Day Lewis, hinn kunni skap-
gerðarleikari, hefur tekið að sér
hlutverk í söngvamyndinni Nine
sem Rob Marshall er nú með í und-
irbúningi. Verkið sem byggist ljóst
og óljóst á vandræðum Fellinis
eftir að hann lauk við 8½ og lenti í
rit teppu verður filmuð í haust.
Lewis hleypur inn í stað Javier
Bardem sem sagði sig frá rullunni
sem bæði Antonio Banderas og
Raul Julia hafa túlkað á sviði. Öll
önnur meginhlutverk söngleiksins
eru í höndum kvenna og fer þar
fríður flokkur: Penelope Cruz,
Sophia Loren (Guido’s Mother),
Nicole Kidman, Kate Hudson og
Judi Dench meðal annarra. Nine er
eftir þá Maury Yeston og Arthur
Kopit og var verðlaunaður bæði við
frumflutning 1982 og er hann var
tekinn upp með Banderas 2003.
Leikstjórinn Guido Contini er
umvafinn konum en er í stórum
vandræðum með líf sitt og feril.
Minningar og sálarkvalir kalla á
þar sem hann er kominn til Feneyja
til að ná sér á strik á heilsuhæli.
Hann er líka að verða fertugur.
Upphaflega ætlaði Antony Ming-
ella að kvikmynda verkið en nú
hefur Marshall tekið við en hann
reið feitu hrossi frá meðhöndlun
sinni á Chicago sem margir þekkja
af sviði Borgarleikhússins og síðar
af kvikmynd hans. - pbb
Day Lewis í söngleik
TJALDÚTSALA
HAWK 5
CORDOBA 6
CORDOBA 5
10.000 kr.
10.000 kr.
kr.
5.000 kr.
FESTI
VAL
2. ma
nna t
jöld
frá kr
. 3.99
5