Fréttablaðið - 22.07.2008, Síða 48
24 22. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Það er heill heimur inni
í honum sem heldur
honum gangandi!
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
L
L
7
12
L
HELLBOY 2 kl. 6 - 8 - 10.10
MAMMA MIA kl. 6 - 8 - 10.10
12
L
HELLBOY 2 kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MAMMA MIA kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MAMMA MIA LÚXUS kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MEET DAVE kl. 3.45 - 8 - 10.10
HANCOCK kl. 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA ÍSL. TAL kl. 3.45 - 5.50
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
L
12
L
14
HELLBOY 2 kl. 6 - 8.30 - 11
MAMMA MIA kl. 6 - 8.30 - 10.50
HANCOCK kl. 10
KUNG FU PANDA ENSKT TAL kl. 6 - 8
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9
5%
5%
SÍMI 551 9000
12
7
12
12
HANCOCK kl. 6 - 8 - 10
MEET DAVE kl. 6.10 - 8.30 - 10.40
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8 - 10.20
SÍMI 530 1919
FÍNASTA
SUMARSKEMMTUN
- V.J.V., TOPP5.IS/FBL
Þau komu langt utan úr geimnum
í fullkomnu dulargervi!
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI!
* * * * Ó.H.T, RÁS 2
* * * T.V, Kvikmyndir.is
* * * L.I.B, Topp5.is/FBL
STÓRLEIKARARNIR HUGH JACKMAN OG
EWAN MCGREGOR FARA HAMFÖRUM Í
BESTA BESTA ÞRILLER SUMARSINS
Forsýnd í kvöld
tryggðu þér miða í tíma
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
DARK KNIGHT forsýnd kl. 10:20 12
DARK KNIGHT forsýnd kl. 10:20 VIP
MAMMA MÍA kl. 3:40 - 5:40D - 8D - 10:20 L
MAMMA MÍA kl. 5:40 - 8 VIP
DECEPTION kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 14
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 3:40D - 6 L
KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
HANCOCK kl. 8 12
WANTED kl. 8 - 10:20 16
NARNIA 2 kl. 5 7
DARK KNIGHT forsýnd kl. 10:20 12
DECEPTION kl. 8 - 10:30 14
MEET DAVE kl. 6 L
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6D L
WANTED kl. 8D 16
NARNIA 2 kl. 5:15 7
INDIANA JONES 4 kl. 8 12
DIGITAL
DARK KNIGHT forsýnd kl. 10:20 12
HELLBOY 2 kl. 8 - 10:20 12
MAMMA MÍA kl. 8 L
DARK KNIGHT forsýnd kl. 10:20 12
NARNIA 2 kl. 5:40 7
DECEPTION kl. 8 - 10:20 14
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6 L
WANTED kl. 8 12
DARK KNIGHT forsýnd kl. 10:20 12
MAMMA MÍA kl. 8 L
HANCOCK kl. 8 12
THE BANK JOB kl. 10:20 16
FORSÝND Í KVÖLD
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HELLBOY 2 kl. 5.40, 8 og 10.15 12
MAMMA MIA kl. 3.30, 5.50, 8 og 10.15 L
HANCOCK kl. 8 og 10 12
KUNG FU PANDA -DIGITAL kl. 4-D - Íslenskt tal L
NARNIA: PRINCE CASPIAN kl. 5 7
- T.V, Kvikmyndir.is
- Ó.H.T, Rás 2
- L.I.B, Topp5.is/FBL
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
V.J.V. - Topp5.is/FBL
Tommi - kvikmyndir.is
Vegfarendur um Bankastrætið hafa
eflaust orðið varir við djasstónlist-
ina sem þar hefur ómað reglulega í
sumar. Að baki henni er óeiginlegt
húsband skemmtistaðarins Priks-
ins. „Við erum hópur stráka sem
erum eiginlega allir útskriftarnem-
ar úr FÍH tónlistarskólanum. Við
höfum spilað á Prikinu alla þriðju-
daga og laugardaga í sumar, en
erum ekki alltaf fastur hópur. Það
fer bara eftir fíling og hverjir eru
uppteknir og lausir hverju sinni. Ég
og gítarleikarinn erum eiginlega
alltaf, en annars er þetta mjög fljót-
andi,“ útskýrir Ari Bragi Kárason,
trompetleikari sveitarinnar
ónefndu. Á heimasíðu staðarins
gengur hún undir ýmsum nöfnum,
þar á meðal „Hit me baby one more
time“ og „Aron Pálmi“. „Já, þetta er
eiginlega bara í lausu lofti,“ segir
Ari og hlær við.
Hann heldur til New York í ágúst
þar sem hann hefur nám í The News
School of Jazz and Contemporary
Music. Ari fór einnig í inntökupróf
við hinn virta tónlistarskóla
Juilliard og komst ansi langt. „Við
vorum tíu strákar úr svona 230
manna hópi sem komumst í inn-
tökupróf í djassdeildina, sem er
mjög lítil. Við vorum að keppa um
eitt pláss og spiluðum þarna fyrir
tíu manna dómnefnd. Þremur
tímum eftir fyrsta áheyrnarprófið
var ég einn af fimm sem voru kall-
aðir til baka, og svo voru þrír skorn-
ir út. Þá var bara ég og einn annar
strákur eftir. Hann var sautján ára
svartur strákur úr Queens, svo
þetta var dauðadæmt. Ég held að
það hafi haft eitthvað að segja. Ég
segi sjálfum mér það að minnsta
kosti til hughreystingar,“ segir Ari
og hlær við. -sun
Húsband spilar eftir fíling
Sigrún Harpa Jósepsdóttir, stund-
um þekkt sem Núrgis, sýnir
myndir sínar á Café Rót, en þær
voru teknar um borð í Ásbirni RE
50. Sýningin nefnist Sjóriða II og
er styrkt af HB Granda og Vífil-
felli. Hvernig er sjómennskan?
„Mér finnst hún fín. Þetta er
beggja blands, bæði mjög erfitt
og líka mikil upplifun. Ég fór út í
fyrsta skipti í fyrra og fyrir mér
var allt svo framandi. Meira að
segja ryðblettur fannst mér
áhugaverður. Þess vegna hélt ég
sýningu í fyrra sem hét Sjóriða.
Ég varð sem sagt ekki sjóveik
heldur var ég með sjóriðu í viku
eftir að ég kom í land. Það var
sama sagan núna, ég var með sjór-
iðu helmingi lengur en ég var úti á
sjó.“ Hvað heillaði hana nú, ver-
andi vanari sjónum? „Ég er nú
ekki orðin það sjóuð. Sjóriða II er
stærri og veglegri. Ég gat lagt
meira í þetta.“
Sigrún hefur ýmsa menntun, í
margmiðlun, klassískum söng,
húsgagnasmíði, hársnyrtingu og
almennri hönnun. „Já, ég hef farið
víða. Sumt af þessu hef ég tekið
saman, eins og sönginn og hönn-
unina. Ástæðan fyrir því að ég fór
út í margmiðlun var að mig lang-
aði að vinna við myndræna þátt-
inn í tónlist, tónlistarmyndbönd
og þess háttar. Síðan komst ég að
því að ég hef ekki eirð í mér að
sitja við tölvu allan daginn.“ Næst
ætlar Sigrún í tónsmíðar. „Maður
verður bara að gera það sem
hjartað segir manni að gera. Mig
hefur langað að semja tónlist
síðan ég var lítil.“ Varðandi hús-
gagnasmíðina segir hún: „Það var
mjög gagnlegt. Í raun ættu allir
að gera þetta. Þetta sparar manni
fullt af tíma inni á heimilinu.“
„Ég er alveg að gera fleira líka.
Ég er að læra á gítar hjá gítar-
smið og er einstæð móðir. Ég geri
bara það sem mér sýnist. Mér
dettur eitthvað í hug og svo fram-
kvæmi ég það. Með misjöfnum
árangri náttúrulega.“ Hefur eitt-
hvað gengið illa? „Alveg fullt af
hlutum. En þá gerir maður bara
eitthvað annað eða reynir aftur.
Ég reyndi að flytja til Danmerkur,
það gekk alls ekki. Ég kom aftur,
fékk mér húðflúr af Íslandi og er
að fara að ganga í Ásatrúarfélag-
ið. Ég vil ekkert fara af þessum
klaka aftur.“
Sýningin var opnuð seinasta
laugardag en opnun tvö, „af því að
þetta er Sjóriða tvö,“ verður á
föstudagskvöldið klukkan níu.
Plasmabell og fleiri spila fyrir
gesti og léttar veitingar verða í
boði.
- kbs
Með sjóriðu í viku
GERIR ÞAÐ SEM HENNI SÝNIST Sigrún,
sjóari með meiru, sýnir verk sín á Café
Rót. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í NÁM TIL NEW YORK Trompetleikarinn
Ari Bragi Kárason fer í tónlistarnám til
New York í haust. Hann var hársbreidd
frá því að fá inni í Juilliard.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlist-
ar, IMX, stendur fyrir ráðstefnu 15.-16.
október næstkomandi. Ber hún yfirskrift-
ina You are in control, eða Þú ert við
stjórnvölinn og verður haldin á Hótel sögu.
„Þetta er framhald af ráðstefnu sem við vorum með
í fyrra og hét Who is in control? Hún tókst gríðar-
lega vel, um 130 manns mættu, þar af 30 að utan,“
segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmda-
stjóri IMX, um ráðstefnu sem Útflutningsskrifstofa
íslenskrar tónlistar stendur fyrir í október í
tengslum við Airwaves-hátíðina.
Að sögn Önnu Hildar vöktu kynningar á milli pall-
borðsumræðna á ráðstefnuninni í fyrra mikla lukku,
en þar var sýnt hvernig má markaðssetja tónlist
stafrænt á ódýran hátt. „Þetta er tilraun til að
viðhalda vitrænum samræðum um þá þróun sem er í
gangi og skoða í leiðinni þá möguleika sem eru að
opnast í því að gefa út sjálfur. Er mögulegt að vera
algjörlega sjálfstæður listamaður og hvaða teymi
þarftu í kringum þig til að það heppnist vel? Núna er
þetta ekki bara spurning um að fá plötusamning hjá
stórfyrirtækjunum heldur skapast alls konar ný
viðskiptasambönd við stór vörumerki sem vilja
fjárfesta í tónlist. Svo erum við að skoða mjög
gaumgæfulega hvernig netið virkar í þessum nýja
veruleika sem við sem störfum í tónlist búum við.“
Anna segir stafrænan þátt tónlistarútgáfu hafa
aukist gríðarlega og dæmi séu um að allt að 80
prósent viðskipta plötufyrirtækja séu stafræn.
IMX flytja inn milli 20 og 30 manns, sérfræðinga
á sínu sviði, til að tala á ráðstefnunni, sem fylgjast
svo með Iceland Airwaves-hátíðinni. En hverjir
sækja svona ráðstefnur? „Ég á von á því að það
verði bæði tónlistarmenn og fólk frá plötufyrirtækj-
um og vörumerkjum sem hafa áhuga á að fjárfesta í
tónlist. Svo erum við líka með aðila frá síma- og
leikjafyrirtækjum. Símafyrirtæki eru að verða
mikilvægir samstarfsaðilar varðandi dreifileiðir og
svo framvegis.“ Einn fyrirlesara ráðstefnunnar er
einmitt Steve Schnur, yfirmaður Electronic Arts,
eins stærsta leikjafyrirtækis Bandaríkjanna.
Ráðstefnan stendur frá klukkan 10-17 báða
dagana. Innifaldir verða tveir hádegisverðir „þar
sem fólki gefst tækifæri á að efla tenglanet sitt,
bæði við þá sem koma fram og þá sem sækja
ráðstefnuna“. Búist er við um 50 erlendum gestum.
Hægt verður að skrá sig í gegnum heimasíðuna
icelandmusic.is eftir 1. ágúst. Þá mun félag tónlist-
armanna fá sérkjör á ráðstefnuna. kolbruns@frettabladid.is
Ræða þróun tónlistarheimsins
RÁÐSTEFNA TIL EFLINGAR TÓNLISTARMANNA Anna Hildur er
framkvæmdarstjóri IMX.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR