Fréttablaðið - 22.07.2008, Side 50
26 22. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Skagamenn vonast
örugglega eftir sömu umbreyt-
ingunni á ÍA-liðinu og varð síðast
þegar tvíburarnir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir tóku við.
Það er ekki langt síðan Skaga-
menn stóðu í sömu sporum, voru
þjálfaralausir, í fallsæti og fimm
stigum frá öruggu sæti. Þegar
Ólafur Þórðarson hætti með ÍA
30. júní 2006 var ÍA í 10. sæti með
aðeins 6 stig og markatöluna 10-
17.
Arnar og Bjarki voru þá báðir
leikmenn liðsins en gerðust jafn-
framt þjálfarar þess í seinni
umferðinni. Skagaliðið hóf að
leika bullandi sóknarleik og stig-
in fóru að streyma upp á Skaga.
ÍA fékk 16 stig í seinni umferð-
inni en aðeins Valur og KR fengu
fleiri. Ekkert lið skoraði fleiri
mörk í síðustu níu umferðunum
og liðið fékk fjórum mörkum
færra á sig en í fyrri hlutanum.
Skagaliðið tapaði aðeins einum
leik eftir að tvíburarnir tóku við
en það var 0-1 tap fyrir verðandi
Íslandsmeisturum FH þar sem
Hjörtur Hjartarson átti mögu-
leika á að jafna leikinn í seinni
hálfleik þegar hann lét verja frá
sér vítaspyrnu. Í tveimur af fjór-
um jafnteflum liðsins áttu Skaga-
menn einnig að flestra mati skilið
þrjú stig. Þeir misstu niður 1-3
forskot á Fylkisvellinum og óðu í
færum í 2-2 jafntefli við Blika í
Kópavogi.
Munurinn sást ekki síst í
frammistöðu leikmanna og þar
gefur einkunnagjöf Fréttablaðs-
ins ágæta mynd af umbreyting-
unni. Leikmenn Skagaliðsins
voru aðeins með 5,33 í meðalein-
kunn eftir fyrri umferðina en
spiluðu best allra liða í seinni
umferðinni þar sem leikmenn
liðsins voru með 6,44 í meðalein-
kunn. Báðir bræðurnir spiluðu
líka mun betur, Arnar hækkaði
sig úr 5,6 í 6,6 og Bjarki fór úr 6,5
upp í 7,0.
Nú er að sjá hvað gerist og
hvort bræðurnir bjarga Skagalið-
inu aftur frá falli. Þegar þeir tóku
við fyrir tveimur árum þá vann
ÍA tvo fyrstu leikina, fyrst 2-1
heimasigur á Grindavík og svo
ótrúlegan 3-2 sigur á KR-vellin-
um þar sem liðið lenti tvisvar
undir. Þeir verða ekki með á móti
FH um næstu helgi en verða
mættir við stjórnvölinn þegar
liðið sækir Framara heim á Laug-
ardalsvellinum 6. ágúst. - óój
BREYTINGARNAR Á
SKAGALIÐINU 2006:
(Fyrir og eftir að Arnar og Bjarki
tóku við þjálfun liðsins)
Árangur +7 sæti
Fyrir 10. sæti í fyrri umferð
Eftir 3. sæti í seinni umferð
Stig í húsi +10 stig
Fyrir 6 stig (22% stiga í boði)
Eftir 16 stig (59% stiga í boði)
Tapleikir -6 tapleikir
Fyrir 7 töp
Eftir 1 tap
Mörk skoruð +7 mörk
Fyrir 10 mörk (1,1 í leik)
Eftir 17 mörk (1,9 í leik)
Mörk fengin á sig -4 mörk
Fyrir 17 mörk (1,9 í leik)
Eftir 13 mörk (1,4 í leik)
Meðaleinkunn leikmanna +1,11
Fyrir 5,33
Eftir 6,44
Skagamenn breyttust í besta sóknarliðið þegar tvíburarnir tóku við 2006:
Bjarga bræðurnir ÍA aftur?
AÐ STÖRFUM Þjálfararnir Arnar og
Bjarki. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
FÓTBOLTI Þetta verður ekki í fyrsta
sinn sem Arnar og Bjarki snúa
aftur heim upp á Akranes því
þetta er í þriðja sinn sem þeir
koma saman til baka.
Það eru nítján ár síðan tvíbur-
arnir léku sinn fyrsta leik með
meistaraflokki ÍA í 3-1 sigri í
Keflavík. Arnar var í byrjunarlið-
inu og skoraði en Bjarki kom inn
á sem varamaður.
Eftir þrjú ár í atvinnumennsku
komu tvíburarnir aftur heim
haustið 1995 og Skaginn vann 8-2
sigur á Keflavík í fyrsta leik þar
sem Arnar skoraði þrennu en
hann átti eftir að skora 15 mörk í
7 leikjum um sumarið.
Báðir áttu síðan eftir að koma
einir til baka áður en þeir léku
saman á ný með ÍA. Arnar lék tvo
leiki með liðinu sumarið 1997 og
Bjarki skoraði 7 mörk í 7 leikjum
sumarið 2002. Þeir léku síðan
báðir með liðinu sumarið 2006
eftir að hafa komið til baka frá
KR og tóku síðan við þjálfun þess
um mitt sumar.
- óój
Tvíburarnir Arnar og Bjarki:
Komnir aftur
heim í 3. sinn
FÓTBOLTI Atburðarásin frá því að
Guðjón Þórðarson var rekinn í
gærmorgun og þar til tvíburarnir
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir
skrifuðu undir samning út tíma-
bilið seinni partinn í gær var
hröð.
Staða ÍA er slæm og stjórn
félagsins sá þann kostinn vænstan
að reka Guðjón sem er leikjahæsti
leikmaður ÍA í efstu deild með 213
leiki á bakinu. Hann stýrði liðinu í
102 leikjum og vann 59 þeirra.
Hann hefur alls unnið 99 leiki með
öllum félögum í efstu deild í 192
leikjum.
Arnar og Bjarki höfnuðu HK
þegar það falaðist eftir kröftum
þeirra nýverið. Arnar neitar því
ekki að þeir hafi verið farnir að
hugsa um þann möguleika að taka
við ÍA þegar hringt var í þá í gær-
morgun. „Okkur dauðlangaði til að
gera þetta og við hugsuðum okkur
ekki lengi um,“ sagði Arnar.
„ÍA er sérstakur klúbbur. Hann
hefur alltaf átt mikla samúð hjá
fólki sem hefur tengt það við fót-
boltahefð. Við vorum aldir upp
þarna og fundum strax fyrir því.
Það er mikilvægt fyrir okkur að
halda í hefðina,“ sagði Arnar en
þeir félagar ólust upp steinsnar
frá vellinum og æfðu með ÍA frá
því að þeir voru nógu stórir til að
sparka í bolta.
Hann segir þá félaga ekki ætla
að fá neina nýja leikmenn til ÍA
en báðir munu þeir draga fram
Skagabúninginn á nýjan leik.
„Það hefur ekki hvarflað að
okkur að leita að liðsstyrk. Hluti
af hefðinni er að tefla fram
ungum og efnilegum leikmönn-
um, við erum dæmi um það,“
sagði Arnar en tvíburarnir spil-
uðu sinn fyrsta leik fyrir ÍA 25.
júní 1989, aðeins sextán ára gaml-
ir. Arnar fiskaði víti, skoraði eitt
mark og lagði upp annað í 3-1
sigri. Bjarki kom inn á sem vara-
maður í leiknum.
Arnar viðurkennir að staða liðs-
ins sé ekki góð en segir getuna
vera til staðar. Þá sé aðeins eitt
raunhæft markmið. „Það er að
bjarga liðinu frá falli. Það er
númer eitt, tvö og upp í sex,“
sagði Arnar sem hrósar jafnframt
FH fyrir að sleppa þeim án nokk-
urra vandkvæða.
„FH-ingar komu fram eins og
sannir heiðursmenn í málinu og
slepptu okkur strax. Við erum
þeim þakklátir fyrir það,“ sagði
Arnar sem býr í Reykjavík en
Bjarki í Hafnarfirði. Það verður
því meira um akstur hjá þeim
bræðrum í sumar en til þessa.
Arnar segir þá bræður hafa
svipaða skoðun á þjálfaramálun-
um og hvorugur ráði, þeir geri
hlutina í sameiningu. „Við krefj-
umst ákveðins aga en höfum
ákveðið kerfi í huga þar sem leik-
menn njóta smá frjálsræðis, eins
og við viljum gera. Það er oft sem
leikmenn sem fara að þjálfa
gleyma hvað var skemmtilegast
að gera,“ sagði Arnar sem boðar
skynsaman sóknarbolta.
„Ef þetta lið á að falla, fellur
það með stæl. Það verður ekkert
spilaður varnarbolti,“ sagði
Arnar. Hann segir einnig að það
komi vel til greina að halda ísböð-
unum margfrægu gangandi en
segir best að þegja spurður hvort
þeir hyggist halda áfram að spila
eftir tímabilið. „Við höfum hætt
svo oft við að hætta,“ sagði Arnar
léttur. hjalti@frettabladid.is
Ef við föllum gerum við það með stæl
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir stýra ÍA út tímabilið. Arnar segir að þeir hafi nánast beðið eftir þessu
tækifæri og boðar skynsaman sóknarbolta hjá uppeldisfélaginu sem rak Guðjón Þórðarson í gær.
Gunnar Sigurðsson átti stórleik í mark FH í 4-0 sigrinum á móti HK
en hann tók stöðu Daða Lárussonar sem var meiddur.
„Þetta var mjög sætt og þetta gekk ágætlega í þetta skiptið,“
sagði Gunnar hógvær þegar Fréttablaðið heyrði í honum.
Gunnar sagðist ekki vera að missa sig yfir þessum
eina leik. „Það geta allir verið ánægðir með mann í
dag en síðan eru allir óánægðir með mann í næsta
leik. Þetta er upp og niður í þessu. Ég er ennþá að
fá að heyra „Gunni undir sig“ þannig að ég er alveg
rólegur yfir þessu,“ sagði Gunnar.
Daði Lárusson var búinn að standa í FH-markinu í
137 deildarleikjum í röð eða í öllum leikjum FH síðan
liðið komst aftur upp í efstu deild árið 2001.
„Daði er allur að koma til. Þetta er allt í bróðerni hjá
okkur Daða og það skiptir mig engu máli þótt ég verði
kominn á bekkinn í næsta leik. Ég er ekki að
stressa mig yfir því þar sem ég kom hingað
með því hugarfari að styðja við bakið á
honum,“ segir Gunnar sem var kominn
með leið á boltanum en áhuginn vaknaði aftur þegar hann fór á
kíkja á FH-æfingar í fyrra. „Ég þekkti Eirík markmannsþjálfara og fór á
nokkrar æfingar í fyrra. Mér fannst það gaman og ákvað því að
slá til í sumar bara til þess að vera með en pældi ekkert í því
hvort ég fengi eitthvað að spila. Daði hefði alveg getað verið
Peter Cech fyrir mér því það hefði ekki skipt neinu máli,“
segir Gunnar um af hverju hann sneri aftur í boltann eftir að
hafa lagt hanskana á hilluna.
Þetta var 116. leikur Gunnars í efstu deild en sá 115. í
röðinni var á móti FH í lokaumferðinni 2005. Gunnar spilaði
með Fram í 1. deildinni árið eftir þegar liðið komst upp aftur
en lagði síðan skóna á hilluna. Gunnar býst alveg eins við því
að setjast aftur á bekkinn þegar Daði verður orðinn heill.
„Heimir gaf mér tækifæri til þess að spila smávegis og það er
bara hans að ákveða hvað hann gerir í framhaldinu. Fyrst
að þetta fór svona þá var þetta ótrúlega gaman og
það gerði það ennþá sætara að við skyldum ná að
halda hreinu,“ sagði Gunnar að lokum.
GUNNAR SIGURÐSSON: TÓK STÖÐU DAÐA LÁRUSSONAR SEM HAFÐI LEIKIÐ 137 LEIKI Í RÖÐ Í MARKI FH
Hefði alveg getað verið Peter Cech fyrir mér
GANGA.IS
Ungmennafélag Íslands
> Tvíburarnir ekki með þjálfararéttindi
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir mega ekki stýra liði í efstu
deild þar sem þeir hafa ekki næg þjálfararéttindi. Þeir
eru með 2. stig réttinda en nauðsynlegt er að hafa KSÍ-A
gráðu. ÍA fær viðvörun vegna þessa nú en leyfiskerfi sam-
bandsins meinar þeim að byrja nýtt tímabil með liðið.
Dagur Sveinn Dagbjartsson hjá KSÍ sagði
Fréttablaðinu í gær að þeir gætu ekki sótt öll
námskeiðin í réttri röð og lokið gráðunni
fyrr en árið 2010. Þeir gætu þó mögulega
farið krókaleið til að klára fyrr. Arnar sagði
í gær að þeir bræður stefndu á að halda
menntun sinni áfram sem fyrst. Hann
bjóst jafnframt við því að þeir fengju
undanþágu sýndu þeir fram á að þeir
væru að sækja sér réttindin.
FYRSTA ÆFINGIN Arnar og Bjarki eru hér á fyrstu æfingu sinni með ÍA frá því árið
2006 í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR