Fréttablaðið - 22.07.2008, Page 54
30 22. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. skipalægi, 6. íþróttafélag, 8. tala,
9. eyða, 11. hæð, 12. góð lykt, 14. ná
ekki andanum, 16. klaka, 17. dreift,
18. gestrisni, 20. skóli, 21. sóða.
LÓÐRÉTT
1. fiskur, 3. mannþvaga, 4. lögtak,
5. á nefi, 7. verkfæri, 10. angra, 13.
þakbrún, 15. megin, 16. vætla, 19.
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. höfn, 6. fh, 8. sjö, 9. sóa,
11. ás, 12. ilmur, 14. kafna, 16. ís, 17.
sáð, 18. löð, 20. ma, 21. agða.
LÓÐRÉTT: 1. ufsi, 3. ös, 4. fjárnám, 5.
nös, 7. hólksög, 10. ama, 13. ufs, 15.
aðal, 16. íla, 19. ðð.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á blaðsíðu 8
1 Arnar Grant
2 Þjóðhagsstofnun
3 6-1 fyrir Blika
„Besti bitinn í bænum er Serr-
ano. Hollur og góður matur og
þeir eru með margt á matseðlin-
um sem ég get borðað og finnst
mjög gott. Ferskt hráefni.“
Bjarni Snæbjörnsson, leikari og leikstjóri.
Skemmtisamsteypan Baggalútur er nú lokuð
vegna sumarleyfa starfsmanna. Svo ber
við að upprunaleg ritstjórn vefsíðunnar
fer saman í kynningarferð til Vestur-
heims í byrjun ágúst og munu þá hittast
aftur þeir sex sem saman skópu
vefsíðuna árið 2001.
„Við ætlum að heimsækja hið
æsispennandi ríki Iowa og skella okkur
síðan til Kanada á Íslendingadaginn,“
segir Bragi Valdimar Skúlason, öðru
nafni Enter. Hann segir að Haraldur
Hallgrímsson – Kaktus – búi í Iowa
ásamt fjölskyldu og þannig standi á þessu
frumlega staðarvali. Það að Baggalútur
heimsæki Íslendingabyggðir í Gimli passar
eins og flís við rass ímyndar vefsíðunnar sem
hefur alltaf verið rammíslensk og forn. „Við
hlökkum sérstaklega til að sjá Fjallkonuna sem
er sérlega glæsileg í ár,“ segir Bragi. „Hún
heitir Alma Sigurdson og er á milli 60 og
70 ára. Svo ætlum við að reyna að gista
á eyjunni Heclu. Þeir skrifa það með c-
i. Málfræðin hefur eitthvað glutrast
þarna niður hjá þeim.“
Ýmislegt áhugavert fangar athygli
Baggalútsmanna í Iowa. „Þar er
hver bær með sitt. Einn er með
stærsta jarðarber Bandaríkjanna og
annar með stærstu kúna sem er búin
til úr smjöri. Við ætlum að reyna að
skoða sem mest.“
Fljótlega eftir hina tíu daga
kynningarferð má búast við að
vefsíðan verði opnuð á ný. „Mann hefur
óneitanlega klæjað í puttana í sumar, til
dæmis hefði verið gaman að fjalla um
ísbjarnarfárið. Við náðum reyndar fyrsta
ísbirninum áður en við fórum í frí.“
Útvarpsþáttur samsteypunnar er nú sendur
út hvern laugardag kl. 18.26 á Rás 1 og
hljómsveitararmurinn er með nýja partíplötu í
vinnslu. „Við erum að spila inn Roxy Music-
gítara og að leita að tækinu sem gerir dúúú
diskóhljóðin,“ segir Bragi. - glh
SKOÐA JARÐARBER OG GISTA Á HECLU Upprunaleg
ritstjórn Baggalúts – Spesi, Kaktuz, Enter, Myglar, Dr.
Herbert og Númi Fannsker – hlakkar óskaplega til að
sjá fjallkonuna Ölmu.
„Þetta var mjög sérstök upplifun. Einhvers konar
sambland af því að vera staddur í Babettes Geste-
bud eða í Fellini-mynd. Þegar upp var staðið
reyndist þetta einhver besta veisla sem ég hef
upplifað á ævi minni,“ segir Atli Bergmann – vinur
Mumma í Götusmiðjunni.
Guðmundur Týr Þórarinsson, sem betur er
þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni, varð fyrir því
að fá hjartáfall í fimmtugsafmælisveislu sinni sem
haldin var síðasta laugardagskvöldið. Hann er nú á
spítala og er á góðum batavegi en að sögn Atla mátti
engu muna. „Við héldum að hann væri að deyja.
Læknarnir segja að á mælikvarðanum einn til tíu þá
hafi þetta verið hjartáfall upp á níu,“ segir Atli.
Veislan var haldin á Silfrinu, Hótel Borg, en Mummi
hafði ákveðið að bjóða aðeins nánustu vinum og
ættingjum sem taldi um 25 manna hóp. Sem betur
fer var þarna fólk sem kunni að bregðast rétt við.
Hringt var á sjúkrabíl sem kom sjö mínútum síðar
og var farið með Mumma beint á spítalann. Honum
var bjargað á elleftu stundu. „Þetta var í upphafi
veislu. Mummi var slappur, með brjóstsviða og hafði
ekkert borðað en drukkið þeim mun meira af kaffi.
Og var eitthvað stressaður. Svo versnaði þetta hratt.
Var alveg rosalegt. Svo hneig hann niður. Og var
farinn að kenna doða í útlimum,“ segir
Atli.
Kærasta Mumma, Sunna Ólafs-
dóttir flugfreyja, fór með honum á
spítalann en veislugestirnir ákváðu
að sitja áfram. Ákvörðun sem Atli
segir hafa verið þá einu réttu í
stöðunni – eins og átti eftir að koma
í ljós. Vinir Mumma, innsti hringur,
var óvænt samankominn á þessari
ögurstundu. Og reyndist þetta
veisla sem Atli segir afar
sérstaka og muni seint
líða sér úr minni.
„Mjög skrítin
framan af yfir þeim
góða mat sem fram
var borinn: Forrétt-
inum og aðal- réttinum. Við fengum fréttir með reglu-
legu millibili og svo áður en
eftirrétturinn kom bárust þau tíðindi að
aðgerðin hefði tekist vel. Og þá urðu allir
ofsaglaðir. Mikill feginleiki braust út og
því er þetta einhver besta veisla sem ég
hef upplifað,“ segir Atli sem hefur heimsótt
Mumma vin sinn á spítalann þar sem hann er
farinn að braggast og segja brandara og taka
upp gjafir. jakob@frettabladid.is
GUÐMUNDUR TÝR ÞÓRARINSSON: VAR VIÐ DAUÐANS DYR
Mummi fékk hjartaáfall
í afmælisveislu sinni
MUMMI Í GÖTUSMIÐJUNNI Fékk hjartaáfall í byrjun
fimmtugs-afmælisveislu sinnar og var hætt kominn.
Vesturheimsk draumaferð Baggalúts
Fyrrverandi Idolstjarnan og Drag-
kóngur Íslands árið 2007, Ylfa Lind
Gylfadóttir, fæddi á dögunum
fyrsta barn sitt, soninn Gylfa Val.
Drengurinn er skírður í höfuðið á
föður Ylfu Lindar og bróður henn-
ar og að eigin sögn gekk fæðingin
vel. „Meðgangan gekk áfallalaust
fyrir sig og fæðingin sjálf gekk
líka mjög vel. Ég gekk tíu daga
fram yfir með barnið en fór svo
sjálf af stað.“ Ylfa Lind er einhleyp
en segist ekki kvíða því að ala
barnið upp einstæð móðir þar sem
hún eigi góða fjölskyldu til að
styðja við bakið á sér. „Ég ákvað að
gera þetta ein, það er langbest að
sjá bara um þetta sjálfur,“ segir
Ylfa Lind, en aðspurð út í faðerni
barnsins sagðist hún ekki vilja
ræða málið að svo stöddu.
Ylfa Lind segir það vera ótrú-
leg tilfinningu að vera orðin
mamma og að sonurinn sé mjög
vær. „Þetta er eitt af því merki-
legasta sem maður getur gengið í
gegnum. Barnið sefur allan sólar-
hringinn og vaknar aðeins til þess
að fá að drekka, þannig að hann
er algjör engill.“ Þegar hún er
spurð hvort hún haldi að drengur-
inn muni feta í fótspor móður
sinnar og leggja sönginn fyrir sig
segir hún að það gæti vel verið,
hann sé duglegur að þenja radd-
böndin nú þegar.
Ylfa Lind mun krýna arftaka
sinn sem Dragkóng Íslands 6.
ágúst næstkomandi og segist hún
hlakka mikið til þess að vera við-
stödd keppnina. „Ég held að ég
muni líklega bara skreppa að
heiman til þess að krýna næsta
Dragkóng og fara svo aftur heim
til barnsins. En ég hlakka mjög
mikið til þess að sjá keppnina í ár,
þetta er alltaf jafn gaman,“ segir
hin nýbakaða móðir.
- sm
Dragkóngur eignast barn
STOLT MÓÐIR Ylfa Lind eignaðist sitt
fyrsta barn fyrir stuttu og gekk fæðingin
vel.
ATLI BERGMANN
Vinir Mumma sátu
milli vonar og ótta
í veislunni meðan
afmælisbarnið var í
aðgerð.
Rottweiler-hundar eru
nú á leið til Ósló þar
sem þeir ætla að spila
fyrir rappglaða Nojara
20. september en
áður ætla þeir að
ferðast um Skandin-
avíu og spila vítt og
breitt. Í nægu er því
að snúast hjá for-
söngvara Rottweiler
en Erpur Eyvind-
arson bíður nú
frumsýningar myndar
Sólveigar Anspach
„Skrapp út” í ofvæni en
þar leikur hann stórt hlutverk.
Fréttablaðið greindi frá því, hér
á þessum stað, um helgina að
Steini í Kók (sem sumir kalla
nú Steina í Tab),
eða Þorsteinn M.
Jónsson hafi fest
kaup á ómáluðu verki
Hallgríms Helgason-
ar á fjáröflunarupp-
boði UNICEF fyrir
margt löngu. Svo
skemmtilega vill
til að þeir munu
frændur, Steini
og Hallgrímur.
Hallgrímur er
sonarsonur systur Jóns Þórarins-
sonar sem er pabbi Steina. Systir
Jóns var Málfríður Þórarinsdóttir og
sonur hennar er Helgi Hallgríms-
son, fyrrum vegamálastjóri, svo
ættfræðinni sé nú til haga haldið.
Meðan aðdáendur Ólafs Gunn-
arssonar rithöfundar bíða næstu
skáldsögu þessa sagnameistara
geta þeir stytt sér stundir við að
glugga í fyrstu skáldsögu Ólafs,
Milljón prósent menn (1978), sem
kom nýverið út á ensku. Ólafur
á sér aðdáendur
víða og til dæmis
vitna JPV-menn,
útgefendur
Ólafs, í Julian
Evans hjá BBC
sem segir Ólaf
einn beittasta
og viðkunnanleg-
asta íslenska
rithöfundinn.
Og: „Í miðri
skáldsögu
Laxness er logn, en í hjarta skáld-
sagna Ólafs er hyldjúpt mannlegt
öngþveiti.” - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
GANGA.IS
Ungmennafélag Íslands
STÓR HUMAR, LÚÐA,
LAX, TÚNFISKUR
Úrval skrétta á grillið