Fréttablaðið - 11.08.2008, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 11.08.2008, Blaðsíða 17
® TJÓNASKOÐUN RÉTTINGAR - SPRAUTUN RÚÐUÍSETNINGAR ALMENNAR VIÐGERÐIR CAR-O-LINER RÉTTINGARBEKKUR Réttir Bílar ehf Sími & Fax: 554-3044 • rettirbilar@rettirbilar.is Vesturvör 24 • 200, Kópavogur A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Á þingmannsheimili Ármanns Kr. Ólafssonar í Kópavogi eru dýrmætustu eigurnar frá afa hans og nafna úr Öxnadal. „Af öllu mínu innbúi hef ég mest dálæti á vasaúrskeðju og svipu úr lífi afa míns, þótt mér þyki sýnu vænna um keðjuna,“ segir alþingismaðurinn Ármann Kr. Ólafs- son. „Við afi vorum nafnar og úrkeðjuna gaf hann mér árið 1975. Hún var fermingargjöf frá foreldrum hans og í hana grafið: „Frá mömmu og pabba, 1917“ með mynd af Kristjáni IX. Danakonungi. Gjöfin var vel undirbúin hjá gamla manninum og hann lét hafa fyrir því að gera keðjuna upp, en ég hefði kosið að hann hefði látið það ógert því mér þótti hún fallegri orðin máð og slitin eftir ævinotkun afa. Ég geymi hana í nátt- borðsskúffunni og annað veifið, þegar ég hugsa til baka, finnst mér gott að taka keðjuna úr skúffunni og handfjatla meðan hugurinn reikar,“ segir Ármann, sem hluta af bernsku sinni ólst upp á bænum Þverá í Öxna- dal, þar sem afi hans var bóndi. „Við afi vorum miklir vinir og hann kenndi mér margt sem veganesti út í lífið. Í sveitinni hlustuðum við á Bændaspjall og Þingfréttir í útvarpinu, og útvarpsleikritið á fimmtudagskvöldum, því sjónvarp náðist seint í Öxnadal. Afi hafði mikið dálæti á Jónasi og kenndi mér að meta skáldskap hans, en Hraun með hrikalega Hraundrangana ofan við bæinn stendur mót Þverá,“ segir Ármann og handleikur svipuna góðu frá afa sínum. „Í svipuna er grafið: „Þverá“, en afi notaði hana lengst af í sínum búskap þegar bílar og dráttarvélar þekktust ekki á bæjum og hestur var eini farkosturinn. Í dag er hún stofustáss hjá mér.“ thordis@frettabladid.is Heimili með ljúfa fortíð Ármann Kr. Ólafsson alþingismaður í fótsporum afa síns úr Öxnadal í stórborgarysnum heima. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Púðar eru góð leið til að gera sófann eða stólinn á heim- ilinu hlýlegan, hvort sem það er einn púði eða margir. Gaman er að skipta um lit á púðum eftir árstíðum. Kvöldin eru farin að verða dimmari. Tími kertanna og kertastjak- anna er að koma aftur. Fátt er betra en að sitja inni við kertaljós þegar dimmt er úti. Skemlar eru þægilegir fyrir fætur eða sem sæti. Þeir eru auðveldir í notkun og fljótlegt er að færa þá á milli herbergja. Hægt er að fá skemla á mörgum stöðum í bænum, til dæmis Eggi, Smáratorgi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.