Fréttablaðið - 15.08.2008, Side 23
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA HELGIN VINNUVÉLAR O.FL.
Sigurður Frosti, matreiðslumaður á Humar-
húsinu, gefur gómsæta uppskrift að humri með
seljurót og hollandaise-sósu.
Sigurður Frosti Baldvinsson, matreiðslumaður á
Humarhúsinu, hefur í nógu að snúast þessa dagana.
Blaðamaður náði tali af honum milli rétta og fékk upp-
skrift að einum af matseðlinum. „Rétturinn heitir
Humar og seljurót og getur bæði verið forréttur eða
aðalréttur,“ segir Sigurður en uppskriftin skiptist í
þrennt; seljurótarmauk, hollandaisesósu og steiktan
humar. „Byrjað er á því að afhýða seljurótina og skera
hana í teninga. Þá er hún soðin í g-mjólk þar til hún er
orðin meyr og fín, síðan sigtuð frá og maukuð í mat-
vinnsluvél. Rjóma er bætt við maukið og saltað og
piprað eftir smekk,“ segir Sigurður og lýsir svo hol-
landaisesósunni. „Þeytt er saman einni eggjarauðu og
örlitlu ediki þar til blandan er orðin ljós og létt. 100
grömmum af bræddu smjöri er hellt út í í mjórri bunu
og þeytt áfram þar til eggið og smjörið binst saman.
Kryddað er til með salti, pipar og limesafa og söxuð-
um kóríander blandað saman við. Að lokum er humar-
inn snöggsteiktur á vel heitri pönnu og kryddaður með
örlítilli hvítlauksolíu og salti. Seljurótarmaukið er sett
í djúpan disk, humrinum raðað ofan á og örlítilli sósu
hellt yfir.“
Lesendur geta þreytt sig á þessari gómsætu upp-
skrift sem Sigurður segir að sé ekki svo flókin. Blaða-
manni leikur forvitni á að vita hvort eldamennskan sé
jafn metnaðarfull þegar heim er komið, en Sigurður á
tvö börn með konu sinni. „Ég elda bara eitthvað ofboðs-
lega auðvelt, eitthvað sem fjölskyldan getur borðað.
Ég panta mér þó aldrei mat.“ mariathora@frettabladid.is
Pantar sér aldrei mat
Sigurður eldaði humar með seljurót en rétturinn getur bæði verið for- og aðalréttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KÁTT Í KÚREKABÆ
Kántrýdagar verða haldnir um
helgina á Skagaströnd.
Dagskráin er fjölbreytt
og ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi,
sýningar eða
námskeið.
HELGIN 3
ÞJÓÐLEGT Í SVEITINNI
Veitingastaðurinn að Hrauns-
nefi liggur við þjóðveginn,
um þrjá og hálfan kíló-
metra frá Bifröst. Matseð-
illinn er bæði fjölbreyttur
og þjóðlegur en á honum er
meðal annars grjónagrautur.
MATUR 2
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
gb
ro
t
Ódýrt og gott
í hádeginu
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti á
frábæru verði: Fylltar pönnukökur (crépes), samlokur, pizzur,
súpubar, nýbökuð brauð og gómsætan salatbar. Eins er hægt
að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls kyns ísrétti, kökur og
tertur. Nýlega bættust svo belgískar vöfflur á matseðilinn
(láttu það eftir þér – þær eru algerlega þess virði).
Við Perluna eru næg ókeypis bílastæði.
4ra rétta tilboð
á veitingastað Perlunnar
Léttreyktur lax
með granateplum og wasabi-sósu
Rjómalöguð humarsúpa
með grilluðum humarhölum
Lambahryggur
með lambaskanka og rósmarínsósu
Banana- og súkkulaðifrauð
með vanillusósu
Verð: 6.490 kr.
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!