Fréttablaðið - 15.08.2008, Side 49
FÖSTUDAGUR 15. ágúst 2008 29
Jamie Lynn Spears, litla systir söngkon-
unnar Britney Spears, á nú ekki sjö
dagana sæla. Nýverið kom í ljós að
unnusti hennar, Casey Aldridge, hefur
átt í löngu ástarsambandi við eldri
konu.
Hin sautján ára Jamie Lynn og hinn
nítján ára gamli Casey eignuðust
saman dótturina Maddie Brianne fyrr í
sumar og trúlofuðu sig í kjölfar þess.
En nú hefur ástkonan komið fram og
gert ástarsamband sitt við Casey
opinbert.
Í viðtali við tímaritið In Touch
Weekly segir Kelli Dawson að
hún og Casey hafi átt í tólf
mánaða löngu ástarsambandi.
„Við hittumst í teiti hjá
systur minni og okkur leist
strax mjög vel á hvort annað. Hann
átti frumkvæðið og vinir hans
sögðu við mig að honum þætti ég
falleg,“ segir Kelli í viðtalinu.
Kelli segir að þau hafi slitið
sambandinu stuttu áður en
Jamie Lynn eignaðist Maddie í
lok júní. „Við hittumst enn þá
reglulega og kyssumst en sofum
ekki saman,“ segir Kelli.
Kærastinn heldur fram hjá
SVIKIN Unnusti Jamie
Lynn Spears hefur átt í
ástarsambandi við
aðra konu.
Nýjasta lag Sálarinnar, Það amar
ekkert að (ég get svo svarið það),
er komið út. Textinn fjallar um ást
í meinum og þá afneitun sem hún
getur haft í för með sér.
Síðasta lag Sálarinnar, Gott að
vera til, var vinsælasta lag
landsins í þrjár vikur og því eru
miklar væntingar gerðar til nýja
lagsins. Þess má geta að Sálin
spilar í fyrsta sinn á tuttugu ára
ferli sínum í Þorlákshöfn á
laugardag og þar verður nýja
lagið vitaskuld spilað fyrir
Sálarþyrsta heimamenn.
Syngja um
ást í meinum
Paul Thomson, trommari bresku
sveitarinnar Franz Ferdinand,
steig á svið með Sigur Rós á
tónleikum hennar á Way Out
West-hátíðinni í Gautaborg á
dögunum.
Að því er kemur fram á
bloggsíðu John Best, aðstoðar-
manns Sigur Rósar, var Thomson
fenginn til að tromma eins og
hann ætti lífið að leysa í laginu
Gobbledigook. Thomson fetaði
þar í fótspor Bjarkar Guðmunds-
dóttur og Ólafar Arnalds sem
trommuðu eftirminnilega með
Sigur Rós í sama lagi á náttúru-
tónleikunum í Laugardal fyrr í
sumar.
Trommaði í
Gobbledigook
PAUL THOMSON Trommari Franz Ferd-
inand trommaði með Sigur Rós á Way
Out West í Gautaborg.
Í frétt blaðsins í gær, þar sem
sagði af því að Sena hefði keypt
Einar Bárðarson út úr þeim hluta
fyrirtækisins sem fæst við tón-
leikahald, varð myndabrengl.
Meðal annars var rætt við Björn
Sigurðsson framkvæmdastjóra
Senu en í hans stað birtist mynd af
starfsmanni Senu: Karli Schiöth.
Þó báðir séu glæsimenni breytir
það ekki því að Karl er Karl og
Björn Björn og eru þeir beðnir
velvirðingar á mistökunum.
Karl Schiöth er
ekki Björn
GLÆSIMENNI HJÁ SENU Karl Schiöth er
til vinstri en Björn Sigurðsson til hægri.
Leikkonan Angelina Jolie fer með
aðalhlutverkið í nýrri njósnamynd
í stað Tom
Cruise sem átti
upphaflega að
fara með
hlutverkið.
Nokkrir
karlkyns
leikarar höfðu
lýst yfir áhuga á
að taka við
hlutverkinu af
Cruise en eftir
að Jolie sýndi
áhuga var henni
kippt um borð.
Næst á dagskrá verður að breyta
handritinu fyrir Jolie auk þess sem
titli myndarinnar verður breytt.
Þetta verður fyrsta mynd Jolie
síðan hún eignaðist tvíburana
Vivienne Marcheline og Knox
Leon í Frakklandi í síðasta mánuði.
Síðast lék hún í hasarmyndinni
Wanted sem naut töluverðrar hylli.
Jolie í stað
Tom Cruise
ANGELINA JOLIE
Leikkonan Angelina
Jolie fer með aðal-
hlutverkið í nýrri
njósnamynd.